Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2010, Síða 19

Læknablaðið - 15.12.2010, Síða 19
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Heilsukvíði - aukin þekking og meðferðarmöguleikar Sóley Dröfn Davíðsdóttir1 klínískur sálfræðingur Ólafur Árni Sveinsson2 taugalæknir Lykilorð: heilsukvíði, líkömnunarraskanir, hugræn atferlismeðferð, serótónín- endurupptökuhemlar. 1Kvíðameðferðarstöðinni, Reykjavík, 2taugadeild Karolinska sjúkrahúsins, Stokkhólmi. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Ólafur Sveinsson, taugadeild Karolinska sjúkrahússins, Stokkhólmi, Svíþjóð olafur.sveinsson@ karolinska.se Ágrip Heilsukvíði einkennist af óhóflegum og hamlandi kvíða þar sem fólk óttast að vera haldið alvarlegum sjúkdómi þrátt fyrir að niðurstöður læknisskoðana og rannsókna bendi til annars. Heilsukvíðnir hafa margir hverjir ítrekað gengist undir læknisrannsóknir sem ekki hafa verið til þess fallnar að veita trúverðugar skýringar á þeim vanda sem fyrir er. Endurteknar fregnir af því hvað sé líklegast ekki að hrjá hinn heilsukvíðna slær aðeins á kvíða hans í skamman tíma og getur aukið á ráðaleysið og grafið undan trausti hans á heilbrigðiskerfið þegar til lengri tíma er litið. Aukinn áhugi hefur vaknað á heilsukvíða á síðastliðnum árum og áratugum. Ekki síst er það góður árangur hugrænnar atferlismeðferðar sem getið hefur af sér þertnan aukna áhuga. Samkvæmt hugrænu skýringarlíkani á heilsukvíði rætur í og er viðhaldið af rangtúlkunum á eðlilegum líkamseinkennum. Auk þess hefur lyfjameðferð með sértækum serótónín-endurupptökuhemlum getið af sér ágætis árangur. Hefur vandinn löngum þótt illviðráðanlegur en með hugrænni atferlismeðferð og/eða lyfjameðferð hefur náðst betri árangur í meðferð þessa oft illvíga vanda. Tilgangur þessarar greinar er að auka þekkingu íslensks heilbrigðisstarfsfólks á heilsukvíða og ekki síst að gera grein fyrir auknum meðferðar- möguleikum. Inngangur Hóflegar áhyggjur af heilsunni geta verið gagn- legar og stuðlað að heilsusamlegu líferni. Hjá sumum verða þessar áhyggjur hins vegar að óhóflegum og hamlandi kvíða þar sem fólk óttast að vera haldið alvarlegum sjúkdómi þrátt fyrir að niðurstöður læknisskoðana og rannsókna bendi til annars. Þetta ástand nefnist á ensku hypochondriasis og var áður þýtt sem ímyndunarveiki. Ekki er sú þýðing heppileg því vanlíðanin sem vandanum fylgir er engin ímyndun. Undanfarið hefur orðið heilsukvíði (health anxiety) verið notað og mun það einnig gert hér. Greiningarskilmerki heilsukvíða (DSM-IV) má sjá í töflu I.1 Heilsukvíði er flokkaður með líkömnunar- röskunum í bæði DSM-IV og ICD-10 greining- arkerfunum. Einkennast þessar raskanir af líkam- legum einkennum sem talin eru eiga sér sálrænar orsakir. Undir þennan flokk heyra geðraskanir, svo sem hugbrigðaröskun (conversion disorder) og líkamsgervingarheilkenni (somatisation dis- order). Heilsukvíðnir hafa ósjaldan gengið á milli lækna og eiga margir hverjir flókna sjúkrasögu að baki. Þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir eru þeir oft óánægðir með þjónustuna sem þeir hafa fengið enda hafa þeir oftar fengið að heyra hvað sé ekki að þeim en trúverðugar skýringar lækna á því hvað sé raunverulega að hrjá þá.2 Þeir upplifa að þeim sé illa sinnt og ekki teknir alvarlega. Því missa þeir oft traust á læknum og telja þá illfæra um réttar sjúkdómsgreiningar. Á sama hátt geta þessir einstaklingar reynst læknum erfiðir. Læknarnir upplifa að heilsukvíðnir hlusti ekki á þá, treysti þeim ekki og leiti til annarra lækna og erfiðlega gengur að sannfæra þá um að vandinn eigi sér sálrænar rætur.3 Aukinn áhugi hefur vaknað á heilsukvíða á síðastliðnum árum og áratugum. Ekki síst er það góður árangur hugrænnar atferlismeðferðar sem Tafla I. Greiningarskilmerki heilsukviða.1 Viðkomandi er gagntekinn af þeirri hugmynd að hann sé haldinn alvarlegum sjúkdómi sökum mistúlkunar á líkamlegum óþægindum eða breytingum. Þessi hugmynd viðhelst þrátt fyrir viðeigandi læknisfræðilegt mat og hughreystingar. Hugmyndin um að vera haldinn alvarlegum sjúkdómi er ekki ranghugmynd í ströngum skilningi eins og í hugvilluröskun (delusional disorder) og takmarkast ekki við áhyggjur af útlitinu eins og líkamslýtaröskun (body dysmophic disorder). Röskunin hefur í för með sér markverða þjáningu eða minnkaða starfshæfni. Ástandið hefur varað í að minnsta kosti sex mánuði. Vandinn skýrist ekki betur af almennri kvíðaröskun, þráhyggju- og árátturöskun, felmtursröskun, þunglyndisskeiði, aðskilnaðarkvíða eða annarri líkömnunarröskun. LÆKNAblaðið 2010/96 755

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.