Læknablaðið - 15.12.2010, Page 27
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI
Gauti R.
Vilbergsson1
aðstoðarlæknir
Sylvía O.
Einarsdóttir2
aðstoðarlæknir
Sigríður Erla
Óskarsdóttir1
læknir
Eydís
Ólafsdóttir1
augnlæknir
Einar
Stefánsson13
augnlæknir
Lykilorð: augnslys,
flugeldar, börn, líknarbelgur,
glerhlaupsaögerð, aðskotahlutur,
hornhimna.
’Landspítala,
2Heilbrigðisstofnun
Vesturlands,
3læknadeild HÍ
Fyrirspurnir og
bréfaskipti:
Einar Stefánsson,
augnlækningadeild
Landspítala
einarste@landspitali.is
Víti til varnaðar
Tvö alvarleg augnslys vegna fikts við flugelda
Agrip
Tveir unglingspiltar fengu meðferð á augndeild
Landspítalans vegna alvarlegra augnáverka eftir
fikt með heimatilbúnar sprengjur úr flugeldunum
„Víti" sem sprungu í höndunum á þeim. Annar
pilturinn fékk glerflís inn í auga og þurfti
glerhlaupsaðgerð til að fjarlægja flísina. Einnig
fékk hann talsverða áverka á húð í andliti og á
hendi. Hinn pilturinn brenndist illa á hornhimnu
og í andliti. Hornhimnurnar voru meðhöndlaðar
meðal annars með líknarbelgshimnu. í báðum
tilfellum fór betur en á horfðist. Tilgangur
greinarinnar er að vekja athygli á hversu
hættulegt fikt með flugelda getur verið. „Víti"
hefur verið vinsæll flugeldur til að fikta við og
er auðvelt að finna leiðbeiningar á spjallrásum
á veraldarvefnum. Æskilegt er að herða eftirlit
með sölu flugelda og efla forvamaraðgerðir,
sérstaklega gagnvart börnum og unglingum.
Mynd 1. Tilfelti 1: Unglingspiltur við komu á bráðamóttöku.
Andlitsbruni eftir skoteldasprengingu.
Inngangur
Augnáverkar vegna flugelda eru árviss viðburður
á íslandi, en misalgengur þó. Fyrir 20 árum
urðu fjölmörg alvarleg augnslys og meirihluti
þeirra vegna svonefndra tívolíbomba, sem voru
bannaðar fyrir almenning í beinu framhaldi.
Um áramótin 2008-9 urðu tvö alvarleg augnslys
vegna tiltekinnar tegundar flugelds sem nefndur
er „Víti". Spjallrásir á veraldarvefnum gefa
nákvæmar leiðbeiningar um hvernig má fikta
við þessar sprengjur og búa til heimatilbúna
flugelda.1'2 Tveir drengir á unglingsaldri sem léku
þennan leik, urðu fyrir mjög alvarlegum augn-
áverkum sem við gerum nánar grein fyrir hér.
Sjúkratilfelli 1
Unglingspiltur var með yngri bróður sínum og
nágrönnum að sprengja flugelda. Hann hafði
keypt flugelda sem kallast „Víti" og tekið í sundur
í smærri efningar og kveikt í þeim. Einum þeirra
náði hann ekki að henda frá sér í tæka tíð og sprakk
þá flugeldurinn framan í hann. Pilturinn var ekki
með hlífðargleraugu. Hann missti ekki meðvitund
en við komu á bráðamóttöku í Fossvogi gat hann
ekki opnað augun (mynd 1). Við skoðun var mikill
yfirborðsbruni og sót í báðum augum. Hann gat
efnungis greinthandahreyfingar. Tölvusneiðmynd
af andlitsbeinum var eðlileg. Augnskoðun í
svæfingu sýndi blæðingu á hvítu augans á báðum
augum, stór yfirborðssár og hlutþykktarskurði
á hornhimnu (mynd 2). I vinstra auga var
lítil forhólfsblæðing. Augun voru hreinsuð og
Mynd 2. Tilfelli 1: Bjúgur, skurðir og sót í auga eftir
skoteldasprengingu.
LÆKNAblaðið 2010/96 763