Læknablaðið - 15.12.2010, Qupperneq 43
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
FRUMKVÖÐLASETUR
Það kemur eflaust einhverjum á óvart að
frumkvöðlasetur hafa verið rekin hérlendis í
ellefu ár og á þeim tíma hefur ekki eitt einasta
fyrirtæki innan þeirra farið á hausinn. „Þetta
undirstrikar að þrátt fyrir áhættuna af því að
hrinda í framkvæmd nýrri hugmynd, þá verður
hin faglega aðstoð og faglega umgjörð setursins til
þess að draga umtalsvert úr áhættunni."
Samanlagt eru á milli 90 og 100 viðskipta-
hugmyndir vistaðar hjá Nýsköpunarmiðstöð
og er mjög mismunandi hversu langt þær hafa
verið þróaðar. „Sumar eru nánast á frumstigi,
aðrar eru komnar vel áleiðis í framleiðslu og
sölu. Hér á heilsutæknisetrinu KÍM eru þetta flest
lengra komin verkefni sem eiga sér nokkurra
ára sögu. Menntunarstig fólksins sem hér starfar
er mjög hátt og sérfræðikunnáttan er mikil. Við
vonumst til að tengjast betur Háskólunum og
að hingað sæki doktorsnemar til að vinna að
rannsóknarverkefnum sínum í framtíðinni."
Mikil bjartsýni
Sigríður segir að þrátt fyrir tímabundna erfiðleika
í íslensku efnahagslífi þá sé ástæðulaust að
glata bjartsýninni. „Hér er menntunarstig hátt
og þekking almenn, það er auðvelt að stofna
fyrirtæki á íslandi, auðvelt að afla sér tengsla
og upplýsinga. Þessu verður að halda á lofti og
þrátt fyrir að fjárfestar séu í biðstöðu núna er
engin ástæða til að leggja árar í bát. Síður en svo.
Alþingismenn sem komu hingað nýlega höfðu
sérstaklega orð á því hversu gaman væri að finna
„Fyrirtækin njóta
tiálægðarinnar við
hvert annað," segir
Sigríður Ingvarsdóttir
framkvæmdastjóri.
hve fólkið hér hefði sterka trú á framtíðinni. Hér
hafa komið erlendir gestir sem hafa kolfallið fyrir
hugmyndinni og talað fjálglega um að setja á stofn
svona setur heima fyrir. Hér er mikil bjartsýni
ríkjandi og gestir okkar finna sannarlega fyrir
því."
Það felst í hugmyndinni um frumkvöðlasetur
að á einhverjum tímapunkti hleypi fyrirtækin
heimdraganum og standi á eigin fótum. „Það
tekur hins vegar mun lengri tíma en margir gera
sér grein fyrir að þróa nýja hugmynd alveg frá
grunni. A setrum Nýsköpunarmiðstöðvar íslands
eru fyrirtæki sem búin eru að vera í nokkur ár
og er það mjög eðlilegt, þar sem þróunartími
tæknilegra nýsköpunarhugmynda er langur og
auðvelt að benda á að fyrirtæki á borð við Marel,
Össur og Actavis tóku ekki flugið fyrr en eftir
12-14 ár. Við vonumst til þess að þegar fyrirtækin
eru orðin það stór að þau rúmist ekki hér lengur
á setrum Nýsköpunarmiðstöðvar, þá flytji þau frá
okkur. Margir frumkvöðlar hafa lýst þeirri reynslu
sinni að þeir hefðu aldrei náð sér á strik nema af
því að þeir nutu skjóls hjá okkur meðan þeir voru
að koma undir sig fótunum. "
Sigríður segir að ekki hefði verið mögulegt
að stofna KÍM-Medical Park án öflugs stuðnings
iðnaðarráðuneytisins og Summit eignarhalds-
félags, en hvert setur á sér sína stuðningsaðila í
gegnum sveitarfélög, fyrirtæki og eignarhalds-
félög. „Það er samvinna margra aðila sem hefur
skilað þessu góða starfi frumkvöðlasetranna og
erum við afar þakklát fyrir hve vel hefur tekist til."
LÆKNAblaðið 2010/96 779