Læknablaðið - 15.01.2011, Side 36
FRÆÐIGREINAR
T I L F E L L I MÁNAÐARINS
Svar við tilfelli mánaðarins
Case of the month:
A boy with a notable skin
rash
Key words: Lyme disease,
Borrelia burgdoferi, erythema
migrans
Myndirnar sýna multiple erythema migrans. I ljósi
skýrrar sjúkrasögu vaknaði strax grunur um
Lyme-sjúkdóm. Því var ákveðið að meðhöndla
sjúklinginn með amoxicillín 50 mg/kg/dag í tvær
vikur. Drengurinn varð einkennalaus við meðferð
og útbrotin hurfu. Mótefnamælingar (ELISA
mæling, Statens Serum institut, Danmörk) sýndu
jákvætt IgM og neikvætt IgG mótefnasvar gegn
Borrelia burgdorferi, sem staðfesti nýlegt smit.
Lyme-sjúkdómur orsakast af ónæmissvari
líkamans gegn B. burgdoferi sem smitast með biti
blóðmaura. Algengasta einkenni Lyme-sjúkdóms
eru húðbreytingar (erythema migrans) sem byrja á
bitstað blóðmaursins og koma oftast fram sjö til
tíu dögum eftir bit.1 Breytingum geta fylgt ósértæk
einkenni á borð við hita, slappleika, höfuðverk
og bein- og vöðvaverki. Komist sjúkdómurinn
á snemmkomið dreift form (e. earhj disseminated
form) geta komið fram fleiri erythema migrans-
breytingar auk þess sem heilataugalamanir
(einkum andlitstaugarlömun) og einkenni heila-
himnubólgu geta komið fram.1 Hjartabólgur
sem hafa áhrif á leiðslukerfi hjarta eru fátíðar.2
Snemmkomið dreift form kemur oftast fram
þremur til fimm vikum eftir upphaflega bitið.1
Algengasta einkenni síðkomins forms Lyme-
sjúkdóms eru liðbólgur (einkum í hné), sem koma
fram hjá allt að 10% fullorðinna og 5% barna.3
Meðal sjaldgæfari einkertni síðkomna formsins má
nefna heilabólgur og fjöltaugabólgur.1 Þá ber að
geta þess að í Skandinavíu (þar sem sjúkdómurinn
er gjarnan kallaður neuroborreliosis) eru einkenni
frá taugakerfi algengust, en í Bandaríkjunum eru
liðbólgur algengastar. Þetta skýrist mögulega af
mismunandi undirtegundum B. burgdoferi.'
Greining snemmkomins Lyme-sjúkdóms má
staðfesta með sjúkrasögu og skoðun þegar
erythema migrans-útbrot eru til staðar. I upphafi
sjúkdómsgangsins er mótefnamæling óáreiðanleg.
Mótefnamælingar geta verið hjálplegar ef sjúk-
lingur er talinn vera með Lyme-sjúkdóm á seinni
stigum og engin útbrot eru til staðar. Hins vegar
er algengi jákvæðs IgG-svars hátt í löndum þar
sem B. burgdoferi er landlæg, sem eykur hættu á
ofgreiningu sjúkdómsins.
Greinist sjúkdómurinn á snemmkomnu stigi
vegna húðútbrota og ósértækra einkenna er mælt
með 14 daga meðferð með doxycýklíni, amoxi-
cillíni eða cefúroxími á töfluformi.3 Alvarlegri
einkenni þarf að meðhöndla með sýklalyfjum í
æð.3 Batahorfur sjúklinga eru góðar, sérstaklega
hjá þeim sem fá viðeigandi meðferð á frumstigum
sjúkdómsins.4
Einkennum, greiningu og meðferð Lyme-sjúk-
dóms var lýst í Læknablaðinu 1989.5 Nýlega hefur
skógarmítill (Ixodes ricinus) fundist á íslandi, en
hann getur borið B. burgdoferi. Bakterían hefur
ekki greinst í skógarmítli hér. Ekki er heldur
þekkt að innlent smit hafi valdið Lyme-sjúkdómi
(Læknablaðið 2009; 95: 791). B. burgdoferi bakterían
er hins vegar algeng í blóðmaurum í Skandinavíu
sem og í Norðurríkjum Bandaríkjanna. í ljósi
tíðra ferðalaga íslendinga utanlands og algengi
sjúkdómsins í nágrannalöndum okkar ættu læknar
á íslandi að karvnast við einkenni Lyme-sjúkdóms.
Heimildir
1. Shapiro ED, Gerber MA. Lyme disease. Clin Infect Dis 2000;
31:533-42.
2. Manzoor K, Aftab W, Choksi S, Khan IA. Lyme carditis:
sequential electrocardiographic changes in response to
antibiotic therapy. Int J Cardiol 2009; 137:167-71.
3. Girschick HJ, Morbach H, Tappe D. Treatment of Lyme
borreliosis. Arthritis Res Ther 2009; 11: 258.
4. Gerber MA, Shapiro ED, Burke GS, Parcells VJ, Bell GL. Lyme
disease in children in southeastern Connecticut. Pediatric
Lyme Disease Study Group. N Engl J Med 1996; 335:1270-4.
5. Steingrímsson Ó, Kolbeinsson A. Lyme sjúkdómur.
Læknablaðið 1989; 75: 71-4.
36 LÆKNAblaðið 2011/97