Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2011, Qupperneq 36

Læknablaðið - 15.01.2011, Qupperneq 36
FRÆÐIGREINAR T I L F E L L I MÁNAÐARINS Svar við tilfelli mánaðarins Case of the month: A boy with a notable skin rash Key words: Lyme disease, Borrelia burgdoferi, erythema migrans Myndirnar sýna multiple erythema migrans. I ljósi skýrrar sjúkrasögu vaknaði strax grunur um Lyme-sjúkdóm. Því var ákveðið að meðhöndla sjúklinginn með amoxicillín 50 mg/kg/dag í tvær vikur. Drengurinn varð einkennalaus við meðferð og útbrotin hurfu. Mótefnamælingar (ELISA mæling, Statens Serum institut, Danmörk) sýndu jákvætt IgM og neikvætt IgG mótefnasvar gegn Borrelia burgdorferi, sem staðfesti nýlegt smit. Lyme-sjúkdómur orsakast af ónæmissvari líkamans gegn B. burgdoferi sem smitast með biti blóðmaura. Algengasta einkenni Lyme-sjúkdóms eru húðbreytingar (erythema migrans) sem byrja á bitstað blóðmaursins og koma oftast fram sjö til tíu dögum eftir bit.1 Breytingum geta fylgt ósértæk einkenni á borð við hita, slappleika, höfuðverk og bein- og vöðvaverki. Komist sjúkdómurinn á snemmkomið dreift form (e. earhj disseminated form) geta komið fram fleiri erythema migrans- breytingar auk þess sem heilataugalamanir (einkum andlitstaugarlömun) og einkenni heila- himnubólgu geta komið fram.1 Hjartabólgur sem hafa áhrif á leiðslukerfi hjarta eru fátíðar.2 Snemmkomið dreift form kemur oftast fram þremur til fimm vikum eftir upphaflega bitið.1 Algengasta einkenni síðkomins forms Lyme- sjúkdóms eru liðbólgur (einkum í hné), sem koma fram hjá allt að 10% fullorðinna og 5% barna.3 Meðal sjaldgæfari einkertni síðkomna formsins má nefna heilabólgur og fjöltaugabólgur.1 Þá ber að geta þess að í Skandinavíu (þar sem sjúkdómurinn er gjarnan kallaður neuroborreliosis) eru einkenni frá taugakerfi algengust, en í Bandaríkjunum eru liðbólgur algengastar. Þetta skýrist mögulega af mismunandi undirtegundum B. burgdoferi.' Greining snemmkomins Lyme-sjúkdóms má staðfesta með sjúkrasögu og skoðun þegar erythema migrans-útbrot eru til staðar. I upphafi sjúkdómsgangsins er mótefnamæling óáreiðanleg. Mótefnamælingar geta verið hjálplegar ef sjúk- lingur er talinn vera með Lyme-sjúkdóm á seinni stigum og engin útbrot eru til staðar. Hins vegar er algengi jákvæðs IgG-svars hátt í löndum þar sem B. burgdoferi er landlæg, sem eykur hættu á ofgreiningu sjúkdómsins. Greinist sjúkdómurinn á snemmkomnu stigi vegna húðútbrota og ósértækra einkenna er mælt með 14 daga meðferð með doxycýklíni, amoxi- cillíni eða cefúroxími á töfluformi.3 Alvarlegri einkenni þarf að meðhöndla með sýklalyfjum í æð.3 Batahorfur sjúklinga eru góðar, sérstaklega hjá þeim sem fá viðeigandi meðferð á frumstigum sjúkdómsins.4 Einkennum, greiningu og meðferð Lyme-sjúk- dóms var lýst í Læknablaðinu 1989.5 Nýlega hefur skógarmítill (Ixodes ricinus) fundist á íslandi, en hann getur borið B. burgdoferi. Bakterían hefur ekki greinst í skógarmítli hér. Ekki er heldur þekkt að innlent smit hafi valdið Lyme-sjúkdómi (Læknablaðið 2009; 95: 791). B. burgdoferi bakterían er hins vegar algeng í blóðmaurum í Skandinavíu sem og í Norðurríkjum Bandaríkjanna. í ljósi tíðra ferðalaga íslendinga utanlands og algengi sjúkdómsins í nágrannalöndum okkar ættu læknar á íslandi að karvnast við einkenni Lyme-sjúkdóms. Heimildir 1. Shapiro ED, Gerber MA. Lyme disease. Clin Infect Dis 2000; 31:533-42. 2. Manzoor K, Aftab W, Choksi S, Khan IA. Lyme carditis: sequential electrocardiographic changes in response to antibiotic therapy. Int J Cardiol 2009; 137:167-71. 3. Girschick HJ, Morbach H, Tappe D. Treatment of Lyme borreliosis. Arthritis Res Ther 2009; 11: 258. 4. Gerber MA, Shapiro ED, Burke GS, Parcells VJ, Bell GL. Lyme disease in children in southeastern Connecticut. Pediatric Lyme Disease Study Group. N Engl J Med 1996; 335:1270-4. 5. Steingrímsson Ó, Kolbeinsson A. Lyme sjúkdómur. Læknablaðið 1989; 75: 71-4. 36 LÆKNAblaðið 2011/97
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.