Læknablaðið - 15.01.2011, Side 42
UMRÆÐUR O G
LÆKNADAGAR
F R É T T I R
Krabbamein og kynlíf
Á Læknadögum í janúar verður haldið málþing um krabbamein
og kynlíf þar sem hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet
Gianotten hefur framsögu um efnið. Hann mun einnig stýra
vinnustofu fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga um hvemig leiðbeina
eigi skjólstæðingum sem glíma við krabbamein um þetta efni.
„Það er undantekning
efekki er hægt að gera
eitthvað fyrir sjúklinginn,
þráttfyrir mjög alvarleg
veikindi," segir Woet
Gianotten sérfræðingur í
kynheilsu og kynheilbrigði.
Woet Gianotten er heimsþekktur á þessu sviði
lækninga en hann hefur starfað um árabil við
lækningar og ráðgjöf á sviði kynheilsu (sexology)
við háskólasjúkrahúsin í Utrecht og Rotterdam.
Sérhæfing hans felst í ráðgjöf og meðferð um
kynheilsu þar sem sjúkdómar, líkamleg fötlun
og læknisfræðileg inngrip eru meginástæða kyn-
lífsvanda skjólstæðingsins.
„f mínu starfi við endurhæfingu á kynheilbrigði
er vandi sjúklinganna afleiðing ýmissa sjúkdóma
en vandi krabbameinssjúklinga stafar af
meðferðinni. Þetta er mikilvægur rnunur. Á
íslensku Læknadögunum mun ég fara nokkuð
nákvæmlega ofan í hið síðarnefnda og ræða
hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á kynlíf
og kyngetu og hvernig læknar geta aðstoðað og
leiðbeint sjúklingunum. í vinnustofunni mun
ég kenna þeim aðferðir til að ræða á eðlilegan
og opinskáan hátt um kynlíf með krabbameini
og í kjölfar þess. Þrátt fyrir að almenn umræða
um kynlíf sé nokkuð opinská nú á tímum þá
virðist hún ekki vera auðveld þegar kemur að
samskiptum læknis og sjúklings. Þetta er reynsla
okkar hér í Hollandi þó við séum talin fremur
frjálslynd. Læknar eiga margir erfitt með að opna
umræðu við sjúkling um kynlíf og nánd og þeir
þurfa því ekki bara þekkinguna á efninu heldur
líka fæmina til að ræða þetta. Það er færnin sem
ég ætla að reyna kenna og miðla í vinnustofunni.
Þetta geri ég með því að lýsa fyrir þeim tilfellum
sem ég hef haft til meðferðar og þátttakendur
verða síðan að leika hlutverk læknis og sjúklings
og æfa sig þannig í að ræða þetta."
Minnkandi kynlöngun og kyngeta
Gianotten segir að vandi karlmanna sé annar
en kvenna og nálgast verði kynin á ólíkan hátt
í ráðgjöfinni. „Karlmönnum er umhugað um
að halda kyngetunni, geta náð stinningu og
fengið fullnægingu. Konur leggja meira upp úr
nánu sambandi við makann, þeim er umhugað
um að vera aðlaðandi og hafa þörf fyrir kynlíf.
Fyrir karlmenn getur meðferð við krabbameini
í blöðruhálskirtli haft mjög afgerandi áhrif á
möguleikann til að ná stinningu en áhrif aðgerðar
og meðferðar á útlitið er mjög mikið atriði í huga
kvenna. Ef fjarlægja þarf brjóst vegna krabbameins
hefur það eðlilega mikil áhrif á kynímynd
konunnar. Krabbameinsmeðferð hefur mikil og
bein áhrif á kynfærin, liminn og blöðruhálskirtil
í karlmönnum og brjóst, leggöng og leg kvenna.
Lyfjameðferð hefur einnig mikil áhrif á löngun og
getu til kynlífs og margir upplifa mjög sterkt að
löngunin minnkar. Þá valda algeng þunglyndislyf
einnig minnkandi kynlöngun og kyngetu og
eitt af algengustu þunglyndislyfjunum hefur þá
staðfestu aukaverkun að um helmingur sjúklinga
nær ekki fullnægingu."
42 LÆKNAblaöií 2011/97