Læknablaðið - 15.01.2011, Page 47
U M R Æ Ð A
O G
F R É T T I R
D O K T O R
Nýr doktor
Ofþyngd meðal norskra barna
Pétur Benedikt Júlíusson varði doktorsritgerð sína
22. október síðastliðinn við háskólann í Bergen.
Doktorsritgerðin ber heitið „Overweight and
obesity in Norwegian children".
Ofþyngd og offita meðal bama er alþjóðlegt
heilsufarsvandmál. Tölur hafa sýnt jafna aukningu
á algengi þessa vandamáls í hinum vestræna
heimi síðastliðin 20-30 ár.
í vaxtarrannsókninni í Bergen (Vekststudien
i Bergen, www.vekststudien.no) voru mælingar
gerðar á 8299 bömum á aldrinum 0-19 ára á
tímabilinu 2003-2006. Tekið var tilviljanakennt
úrtak barna á heilsugæslustöðvum, leikskólum
og skólum. Upplýsingar um heilsu bamanna og
lífshætti voru fengnar skriflega frá foreldrum.
Rannsóknin hefur gefið mikilvægar upplýsing-
ar um breytingar í vexti og þyngd, ásamt algengi
ofþyngdar og offitu hjá börnum og unglingum.
Þegar tölur voru bomar saman við mælingar
gerðar í sömu borg á ámnum 1971-1974 kom í ljós
aukning í hlutfalli líkamsþyngdar og hæðar.
Mestu breytingamar höfðu orðið í efstu
hundraðshlutunum, það er þyngstu börnin voru
orðin þyngri. Þyngdarbreytingamar voru mestar
meðal leikskólabama. Mælingar á húðfellingum
sem endurspegla xmdirhúðarfitu sýndu breytingar
sem voru enn meiri.
Algengi ofþyngdar var 13,8% og offitu
2,3% hjá 2-19 ára gömlum börnum, skilgreind
með alþjóðlegum staðli (International Obesity
Task Force, IOTF) sem er grundvallaður á
líkamsþyngdarstuðli (body mass index (kg/m2)).
Enginn kynjamunur fannst þegar allir aldurshópar
vom teknir saman, en meðal barna á leikskólaaldri
var ofþyngd algengari hjá stúlkum en drengjum.
Offita var hins vegar algengari hjá ung-
lingsdrengjum en unglingsstúlkum. Saman-
burður við alþjóðleg vaxtarlínurit frá Alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni (WHO growth standard)
sýndi að norsk börn vom þyngri, en þau voru
einnig hærri og með stærra ummál höfuðs. Þetta
var einnig sjáanlegt meðal barna sem höfðu fengið
brjóstanæringu samkvæmt ráðleggingum WHO.
Hætta á ofþyngd og offitu var meiri hjá bömum
sem áttu fá systkini og hjá börnum foreldra með
stutta skólagöngu að baki. Atvinna foreldra eða
þjóðemi hafði ekki áhrif. Ekki fundust tengsl á
Pétur Benedikt Júlíusson
milli ofþyngdar og hvort barn ólst upp með einu
foreldri eða báðum foreldrum.
Foreldrar höfðu mikla tilhneigingu til að
vanmeta ofþyngd hjá börnum sínum. Sjötíu
prósent barna með ofþyngd (IOTF-skilgreining)
á aldrinum 2-19 ára og yfir 90% af börnum með
ofþyngd á barnaskólaaldri, voru metin í kjörþyngd
af foreldrum sínum. Þetta endurspeglar mikilvægi
reglulegra mælinga á hæð og þyngd barna í
heilsugæslunni.
Pétur Benedikt Júlíusson fæddist og ólst upp
í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá læknadeild
Háskóla íslands 1991 og stundaði framhaldsnám
í barnalækningum í Noregi. Hann er yfirlæknir
innkirtla- og efnaskiptasviðs bamadeildar Hauke-
land-háskólasjúkrahússins í Bergen í Noregi.
Hann hefur leitt vaxtarrannsóknina í Bergen
frá upphafi árið 2003. Rannsóknarhópurinn
birti ný vaxtarlínurit fyrir norsk börn árið 2009
í norska læknatímaritinu Tidsskrift for Det norske
legeforening (hægt er að nálgast línuritin á www.
vekststudien.no) - Júlíusson PB, Roelants M, Eide
GE. Vekstkurver for norske bam. Tidsskr Nor
Legeforen 2009; 129: 281-6.
LÆKNAblaðið 2011/97 47