Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2011, Side 39

Læknablaðið - 15.10.2011, Side 39
UMFJÖLLUN O G GREINAR „Ég vil gjaman hafa áhrif á starfsumhverfi mitt og þjónustu við sjúklingana," segir Anna Gunnarsdóttir formaður læknaráðs Landspítala. mjög lítil sérgrein eins og margar undirsérgreinar skurðlækninga eru. Við erum lítill en góður hópur skurðlækna sem höfum lagt þetta fyrir okkur og sérhæfðar aðgerðir eru fáar. Það voru því mikil viðbrigði faglega að koma heim. Ég skal alveg viðurkenna að fyrstu mánuðina leið varla sá dagur að ég velti því ekki fyrir mér hvort ég ætti ekki flytja út aftur. En það er um tvennt að ræða. Annaðhvort flytur maður aftur út eða ekki og ég ákvað að vera hér. Vissulega hafa aðrir þættir mikil áhrif á slíka ákvörðun eins og til dæmis starf makans og hvar maður vill búa börnunum sínum heimili. A móti kemur að maður vill heldur ekki upplifa þá tilfinningu að vera komin á endastöð faglega þegar heim er komið. Á stórum erlendum háskólasjúkrahúsum bjóðast ýmsir möguleikar á meiri sérhæfingu en hér heima þarf maður að hafa breiðari grunn og sinna meira almennari verkefnum auk þessara sérhæfðari, vegna fámennisins. Við heimkomuna er okkur læknunum því oft kippt útúr þeirri sérhæfingu sem við stefnum ósjálfrátt að erlendis, sem eru líka mikil viðbrigði. Það má þó ekki gleyma því að heimurinn hefur minnkað og það er lítið mál í dag að ferðast á milli landa. Maðurinn minn stundaði sína vinnu hér á Islandi í fimm af þeim árum sem ég var í sérnáminu í Svþjóð og fór vikulega á milli landanna. Ég sinni minni yfirlæknisstöðu í Stokkhólmi með því að fara reglulega á milli. Þetta er hægt í dag en var ekki hægt hér áður. Það hefur verið heilmikið í umræðunni undanfarið að læknar séu að vinna og flytjast út. Það má þó alls ekki eingöngu líta á það sem neikvæðan hlut að íslenskir læknar starfi að hluta til erlendis þar sem möguleikarnir eru miklir hvað varðar aukið samstarf milli Landspítala og sjúkrahúsa erlendis og hvað varðar þjálfun og endurmenntun á okkar starfsfólki. Það er þó vissulega mikið áhyggjuefni þegar læknar ákveða að flytja alfarið frá landinu. Læknismenntunin er alþjóðleg og við eigum auðvelt með að fá vinnu erlendis, bæði austanhafs og vestan. I kjölfar kreppunnar og falls krónunnar eru tekjumöguleikarnir mun meiri erlendis og það sem við erum að sjá núna, sem er alveg nýtt, er að læknar á miðjum aldri taka sig upp og flytja utan til starfa. En það er ekki bara spurning um tekjumöguleika, vinnuaðstaðan og hvernig við hlúum að okkar starfsfólki og möguleikar til framþróunar skipta gríðarlega miklu máli fyrir starfsánægju og það er eitt af því sem við í læknaráði Landspítalans viljum beita okkur fyrir til að halda sérfræðingunum okkar hér heima og laða þá sem eru að ljúka sérnámi heim." Sóttist ekki eftir formennsku „Auðvitað er margt jákvætt við að starfa á Islandi," segir Anna. „Islendingar eru drífandi skorpufólk að eðlisfari og koma ýmsu í verk með því að setja ekki formsatriði of mikið fyrir sig. Þetta er oft kostur en þó ekki alltaf. Svíar eru sem þjóð mjög skipulagðir og allir verkferlar eru þar í mjög föstum skorðum og farið er eftir reglunum. Stundum eru þeir þó næstum um of ósveigjanlegir. Hér ganga hlutirnir hraðar fyrir sig en eru oftar háðir einstaklingsframtakinu og LÆKNAblaðið 2011/97 551

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.