Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 44
Voltaren Dolo 25 mg verkjatöflur fást nú
einnig á íslandi!
Á níunda áratug síðustu aldar var unnið að þróun Voltaren Dolo, sem er
skjótvirkara en upphaflega lyfið. Einn milljarður manna í fleiri en 120 löndum
hefur notað Voltaren.
Vel rannsakað verkjalyf
• Voltaren Dolo 25 mg byggir á traustum grunni.
Díklófenak hefur verið notað í lækningalegum
tilgangi um víða veröld í meira en 30 ár.
• Er að minnsta kosti jafn árangursríkt og
íbúprófen og parasetamól við verkjum og
sótthita, í þeim tilvikum þegar lyf sem ekki eru
lyfseðilsskyld henta.
• Hættan á aukaverkunum á maga og þarma er
mun minni við notkun samkvæmt ráðleggingum
í fylgiseðli en þegar lyfið er notað í langan tíma í
stórum skömmtum.
• Tiltækar upplýsingar benda ekki til aukinnar
hættu á aukaverkunum á hjarta og æðar, við
notkun díklófenaks í litlum skammti (hámark
75 mg á sólarhring) í allt að 3 sólarhringa.
Notkunarleiðbeiningar
Voltaren Dolo 25 mg veitir verkjastillandi áhrif og gerir einstaklingum kleift að halda áfram
daglegum störfum.
• Venjulegur skammtur fyrir fullorðna: 1 tafla á fjögurra til sex klukkustunda fresti, eftir þörfum
• Hámarksskammtur er 3 töflur á sólarhring
• Notist ekki lengur en 3 sólarhringa.
• Eins og á við um öll bólgueyðandi og verkjastillandi lyf sem innihalda íbúprófen og
acetýlsalicylsýru, t.d. íbúfen og Treo, gildir eftirfarandi fyrir Voltaren:
- Notist í eins litlum skammti og eins stuttan tíma og mögulegt er
Þeir sem eru með/hafa verið með magasár, astma eða eru með ofnæmi fyrir acetýlsalicylsýru
eða hitalækkandi lyfjum, verkjalyfjum og bólgueyðandi lyfjum eiga ekki að nota Voltaren.
Þungaðar konur eða konur sem eru að reyna að verða þungaðar skulu forðast notkun
Voltaren eða nota það eingöngu samkvæmt læknisráði.
Volta
Do/o 25 n
Diclofena
Verkjastillandi og ból|
20 húðaöar töflur