Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 48
ÖLDUNGADEILD Fyrsti sjúklingurinn Mér verður ávallt eftir- minnilegur fyrsti sjúk- lingurinn sem ég þurfti að annast sem héraðs- læknir fyrir nærfellt hálfri öld síðan. Þá var hin svokallaða héraðs- skylda læknakandíd- ata við lýði, áður en almennt lækningaleyfi fengist. Aðeins var um einmenningshéruð úti á landi að ræða og lenti ég í fremur af- skekktu héraði. Gamli héraðslæknirinn var að hætta störfum, og ég varð fljótlega var við það að hann hafði undirbúið komu mína ræki- lega, þótt ekki væri nú beint á þann hátt sem ég hefði helst kosið. Það væri sem sé von á glæstum stórkírúrg að sunnan sem leysa myndi flestan vanda. Þessi efnilegi kírúrg hafði hins vegar í raun aðeins lokið 6 mánaða kúrs á handlæknisdeild - og í þokkabót sjónlaus á öðru auga. Eldsnemma fyrsta morguninn hringdi síminn. Þetta var dæmigerður sveitasími, sameiginlegur fyrir alla bæi sveitarinnar og greinilega margir komnir á línuna þeg- ar hringdar voru „ 3 stuttar" til læknisins. Ákveðin kvenrödd hljómaði í símanum: „Jæja, þá er tíminn kominn! Ef það gengur ekki hjá Hrefnu minni í þetta skiptið, þá er hún bara búin að vera. Þú verður að koma strax, ef hún á að halda lífi!" Ég náði að stynja upp hvort hún hefði lengi verið svona aðframkomin og hver væru nú aðaleinkennin. Hvað meinar læknirinn eiginlega? Var ekki búið að segja honum frá Hrefnu? Nei, það hafði nú gleymst - og kannski með vilja. „Hún Hrefna mín er með stærðar æxli og á sín von innan viku, og verði æxlið ekki fjarlægt í tæka tíð kemur hún til með að missa alla mjólkina." „Bíddu við, kona góð, er hún Hrefna dóttir þín og er æxlið í brjóstinu?" Það heyrðust andköf í símanum, síðan undrunarhljóð og loks stigvaxandi hlátur, allra þeirra sem lágu á línunni. Loks gat konan stunið upp: „Hrefna er mér vissulega kær sem dóttir, en hún er nú besta mjólkurkýrin á bænum og herslið er aftanvert á júgrinu og stíflar mjólkurkirtlana. Síðast þegar hún bar, datt öll nytin niður, en við ákváðum að gefa henni eitt tækifæri enn og nú stendur allt og fellur með því að þessi aðgerð heppnist. Og nú ertu loksins kominn, nýi læknirinn að sunnan." Ég fann svitann spretta fram um leið og ég gerði mér fullljóst, að nú væri að duga eða drepast, með engan dýralækninn í hér- aðinu. Ég kippti með mér böggli með sótt- hreinsuðum áhöldum sem ég hafði fengið matrónu Katrínu á skurðstofu Landspítal- ans til að útbúa og ætlaði að eiga í bak- höndinni ef mikið lægi við. En að fara að sólunda þessu dýrmæti í einhverja belju- skjátu - því hefði mig aldrei órað fyrir. Ég var ekki leiddur í bæ, heldur beint í fjós. Þar beið þessi fyrsti sjúklingur minn bundinn á bás, heftur á afturfótum, með halann uppfestan. Hér var engrar undan- komu auðið. Ég mátti þakka mínum sæla fyrir reynslu af kúagæslu á árum áður, og átti því að vita hvað sneri fram og hvað aftur á einni ósjálfbjarga belju. - Eða var hún ekki svo bjargarlaus? Öll fjölskyldan var mætt í fjósið. „Þarna er herslið," benti bóndinn. Mikið rétt, appelsínustórt bandvefsæxli bungaði út við dvergspenann. Ég opnaði varlega pakkann með sótthreinsuðu áhöldunum og lagði á flórstéttina aftan við skepnuna, dró svo aleiguna af deyfiefni upp í 10 ml sprautu og byrjaði að stað- deyfa. Mótstaðan reyndist gífurleg, rétt eins og sprautað væri í harðviðardrumb, - nálin af, og megnið af innihaldinu frussaðist í allar áttir. Mér var vel ljóst að deyfingin var af skornum skammti. Hrefna var öll á iði meðan á þessu stóð og náði að slíta af sér halafestinguna og hefndi sín með hnitmið- aðri halasveiflu beint í góða augað. Ég beit á jaxlinn. Þetta varð að takast. Byrjaði að skera, - en hvar var deyfingin? Hrefna tók viðbragð, rykkti í haftið, og síðan opnuðust allar flóðgáttir og kýr- hlandið slettist yfir fínu sótthreinsuðu græjurnar mínar á stéttinni, svo ekki sé nú talað um þann sem sat, eða nánast kraup við afturenda sjúklingsins. En þetta var bara byrjunin. Áður en tækist að forða tólum og tækjum undan þessu úrhelli, tók við þvílík ræpa frá endaþarmi, að slett- urnar gengu yfir allt nálægt og var andlit operators þar ekki undanskilið. Við aðra skurðartilraun var skepnunni endanlega nóg boðið. Með krampakenndum spörkum rykkti hún í haftið, hentist upp að aftan og lenti svo harkalega með afturfæturna niður í hálum flórnum. Þar rann hún sam- stundis á ræpunni niður á afturendann og náði í leiðinni að spyrna kófsveittum, taugaspenntum unglækninum niður í flórinn með sér. En nú var allt hik og óöryggi á brott. Reiðin hafði náð völdum. Með nánast lok- uð, samanklesst augu tókst að skræla æxlið út, saumuð voru ein tíu spor og endað með risaskammti af penisillíni í herðakambinn á vesalings Hrefnu. Það var lítið sofið næstu nætur og fáir sjúklingar af mannakyni hættu sér á stofuna til mín. Það var ekki fyrr en skókassi fullur af ábrystum og eggjum barst með mjólkur- bílnum, - ásamt þakklætisnótu, - að ég vissi að ég var hólpinn. Skopmyndin Kristbjörn Tryggvason prófessor (1909 -1983) Teikning: Sigurður V. Sigurjónsson Þröstur Laxdal Stjórn Öldungadeildar: Öldungaráð Umsjón siðu: Páll Ásmundsson Sigurður E. Þorvaldsson formaöur, Jón Hilmar Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson 120 LÆKNAblaðið 2012/98 0ldungadeild Leeknafelags íslands J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.