Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 27
RANNSÓKN
Tafla II. Fylgikvillar PEG aðgerða á ísland 2000-2009 (n=17).
Aldur/kyn Ábending Fylgikvilli Dagar* Meðferð PEG fjarlægt Afdrif
Meiriháttar fylgikvillar
81/kona Krabbamein Igerð og drep í kviðvegg 4 Aðgerð Já Bati
72/karl Slag ígerð í kviðvegg 3 Sýklalyf Já Bati
53/karl Krabbamein Lífhimnubólga 0 Sýklalyf Já Bati
87/karl Slag Ásvelgislungnabólga 1 Sýklalyf Nei Lést
85/karl Parkinsonsveiki Ásvelgislungnabólga 2 Sýklalyf Nei Lést
Minniháttar fylgikvillar
82/kona Slag Ásvelgislungnabólga 1 Sýklalyf Nei Bati
81/kona Slag Lífhimnubólga 3 Sýklalyf Nei Bati
64/karl Hreyfitaugahrörnun Lifhimnubólga 0 Sýklalyf Nei Bati
90/karl Kyngingarvandamál Lífhimnubólga 1 Verkjalyf Nei Bati
64/karl Krabbamein Lífhimnubólga 2 Sýklalyf Nei Bati
62/karl Hreyfitaugahrörnun Lífhimnubólga/húðsýking 0/60 Sýklalyf Nei Bati
68/karl Slag Húðsýking 15 Sýklalyf Nei Bati
56/karl Áverki eftir slys Húðsýking 2 Sýklalyf Nei Bati
73/karl Slag PEG grafið í magaslimhúð" 790 Engin Nei Bati
52/karl Þarmalömun Blæðing í kviðvegg 1 Verkjalyf Nei Bati
67/kona Hreyfitaugahrörnun Ásvelgislungnabólga 2 Sýklalyf Nei Bati
59/kona Krabbamein Lifhimnubólga 0 Sýklalyf Nei Bati
PEG = percutaneous endoscopic gastrostomy *Tímalengd í dögum frá PEG aðgerð að greiningu fylgikvilla. ** Buried bumper syndrome 0 dagar = samdægurs
hins vegar marktækt algengari ábending á fyrra tímabilinu (23,7%
á móti 5,7%; p=0,016). Önnur algengasta ábendingin voru krabba-
mein (13,3%), en um helmingur þeirra (18/35) voru krabbamein í
höfði og hálsi. Af öðrum krabbameinum voru krabbamein í efri
hluta maga, vélinda eða lungum með kyngingarerfiðleikum al-
gengust (9/35). Um 11% PEG-aðgerða tengdust langvinnum veik-
indum á sjúkrahúsi vegna erfiðra skurðaðgerða, endastigslungna-
sjúkdóma, hjartasjúkdóma og gjörgæslulegu. Langvinn veikindi
voru marktækt algengari ábending á fyrri hluta tímabilsins (21%
á móti 7%; p=0,003). í 7% (19/263) tilfella var ábendingin áverkar
eftir slys, svo sem höfuðáverkar eða lömun vegna hálsmænuskaða,
og var sú ábending marktækt algengari á seinna tímabilinu (1,4%
á móti 9,4%; p=0,03).
í 57% tilfella (149/263) var mögulegt að meta tímann sem leið
frá því sjúkdómsástandið sem leiddi til PEG-aðgerðar hófst eða
greindist. Miðgildistímalengdin var 26 dagar en bilið var allt frá
samdægurs til 2,8 ára. Hjá 65 sjúklingum með slag var miðgildis-
tímalengdin sem leið frá slaginu til PEG-aðgerðar 19 dagar, en
tímabilið var allt frá 6 dögum til 2,9 mánaða.
PEG hafði verið fjarlægt hjá 26% (67/263) sjúklinga við lok rann-
sóknarinnar. Tæplega helmingur þeirra (32/67) voru sjúklingar
með taugasjúkdóma sem ábendingu fyrir PEG. í flestum tilvika
(64/67) var PEG fjarlægt þar sem ekki var þörf fyrir það lengur
en í þremur tilfella var PEG fjarlægt vegna fylgikvilla. Miðgildis-
tímalengd PEG-notkunar hjá sjúklingum með slag voru 53 dagar
(bil 2 dagar-3 ár).
Fylgikvillar greindust hjá 17 sjúklingum (6,5%), sjá töflu II.
Miðaldur var 67,7 ár (bil 52-90 ár). Meiriháttar fylgikvillar greind-
ust hjá 5 (1,9%) og minniháttar hjá 12 (4,6%). Lífhimnubólga var
algengasti fylgikvillinn, 41,2% (7/17) og húðsýking, með eða án
ígerðar, var fyigikvilli hjá 29% (5/17). Aðeins einn þeirra sem
fékk lífhimnubólgu eða húðsýkingu fékk fyrirbyggjandi sýklalyf
í æð í tengslum við PEG-aðgerðina. Fjórir (24%) sjúklingar fengu
ásvelgislungnabólgu einum til tveimur dögum eftir PEG-aðgerð,
sem talin var afleiðing speglunar og PEG-aðgerðar. Þrír þeirra
fengu fyrirbyggjandi sýklalyf í æð í tengslum við PEG-aðgerðina.
Tveir þeirra létust, fjórum og 5 dögum eftir PEG-aðgerð vegna
lungnabólgunnar, þrátt fyrir sýklalyfjagjöf, en tveir læknuðust.
Aðgerðartengd dauðsföll voru því tvö (0,8%), bæði af völdum
lungnabólgu. Enginn sjúklingur fékk blæðingu í meltingarveg
sem rekja mátti til PEG-aðgerðar en einn fékk blæðingu í kvið-
vegg samkvæmt tölvusneiðmynd og klíník en þurfti ekki blóðgjöf.
Fimmtán fylgikvillanna komu fram innan fjögurra daga frá PEG-
aðgerðinni en tvær húðsýkinganna komu fram 15 og 60 dögum
síðar. Hjá einum sjúklingi hafði innri hnappur slöngunnar grafist
inn í magaslímhúðina (buried bnmper syndrome) rúmum tveimur
árum eftir ísetningu. Enginn fékk áverka á önnur líffæri í tengslum
við PEG, svo sem ristil, milta, lifur eða smáþarma. Fjarlægja þurfti
PEG hjá þremur sjúklinga vegna fylgikvilla. Enginn munur var á
heildartíðni fylgikvilla á milli tímabila (5% í því fyrra og 6,5% í
því seinna).
Meðaltími eftirfylgni eftir PEG-aðgerð voru tvö ár (bil 0-10 ár).
Við lok rannsóknarinnar höfðu 166 (63%) sjúklinganna látist. Mið-
gildistímalengd frá PEG-aðgerð til andláts var 4,3 mánuður (bil 0
dagar-9.3 ár). Eins árs dánartíðni alls þýðisins var 41% (107/263) og
30% (23/76) meðal sjúklinga með slag. Þrjátíu og fimm (13%) sjúk-
LÆKNAblaðið 2012/98 99