Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 33
RANNSÓKN Tafla IV. Tuttugu slysatíðustu vegarkaflar landsins utan þéttbýlis á hverja milljón ekna km 2007-2010. Vegur Landsvæði Leið Slys per milljón ekna km 1. Þórshöfn - Vopnafjörður Austurland Sandvíkurheiði 3,42 2. Stykkishólmur - Búðardalur Vesturland Skógarströnd 2,88 3. Þjóðvegur 1 - Vopnafjörður - Þjv. 1 Austurland Hellisheiði/Vopnafjarðarheiði 2,54 4. Þingeyri - Súðavík Vestfirðir Vestfjarðagöng 2,17 5. Stykkishólmur - Hellissandur Vesturland Snæfellsnes 1,89 6. Brjánslækur - Þingeyri Vestfirðir Dynjandis-/Hrafnseyrarheiði 1,89 7. Brjánslækur - Patreksfjörður - Bíldudalur Vestfirðir Kleifaheiði, Hálfdán 1,81 8. Neskaupstaður - Stöðvarfjörður Austurland Oddsskarð, Fáskrúðsfjarðargöng 1,68 9. Kópasker - Þórshöfn Norðurland Öxarfjarðarheiði 1,65 10. Djúpivogur - Höfn Austurland Þvottárskriður, Almannaskarðsgöng 1,61 11. Stokkseyri - Grindavík Suðurland Herdísarvík 1,55 12. Egilsstaðir - Djúpivogur Austurland öxi 1,52 13. Súðavík - Reykjanes Vestfirðir Djúp 1,51 14. Seyðisfjörður - Reyðarfjörður Austurland Fjarðarheiði, Fagridalur 1,50 15. Stöðvarfjörður - Djúpivogur Austurland Berufjörður 1,47 16. Dettifoss (afleggjari) - Egilsstaðir Austurland Mýrdalsöræfi 1,41 17. Egilsstaðir- Borgarfjörður Austurland 1,35 18. Jökulsárlón - Skaftafell Suðurland 1,34 19. Blönduós - Varmahlíð Norðurland Vatnsskarð 1,31 20. Borgarnes - Stykkishólmur Vesturland Vatnaleið 1,31 fyrir fjölda slysa en raðtöluna 2 fyrir tíðni slysa og meðaltalið því 1,5. Hættulegasti vegarkaflinn hefur því lægstu tölunar. Marktækni sambandsins milli staðsetningar og alvarleika slysa var reiknuð með kí-kvaðratprófi. Fylgni milli fjölda slysa á hvern ekinn km og fjölda slysa á hverja milljón ekna km var reiknuð sem Pearson's r. Tölfræðileg marktækni miðaðist við p-gildi <0,05. Niðurstöður Tafla I sýnir skiptingu slysa milli höfuðborgarsvæðis, annars þétt- býlis, þjóðvegar 1 utan þéttbýlis og annarra vega á rannsóknar- tímabilinu. I um 85% umferðarslysa urðu engin meiðsl á fólki en í 0,2% tilvika urðu dauðaslys. Rúmur helmingur slysanna varð á höfuðborgarsvæðinu þar sem íbúafjöldi er mestur og umferð þyngst. Þar varð jafnframt rúmlega helmingur slysa þar sem engin meiðsli urðu. Hins vegar varð minnihluti slysa með meiðslum á höfuðborgarsvæðinu og einungis lítill hluti banaslysa. Svipað á raunar við um slys í öðru þéttbýli þar sem minniháttar slys eru hlutfallslega algeng en al- varleg slys fátíð. Slys á vegum úti voru 29% allra umferðarslysa, þar af voru 9% þeirra á þjóðvegi 1. Hins vegar varð um helmingur allra slysa með meiðslum og þrjú af hverjum fjórum banaslysum í umferðinni á þessum vegum. Banaslys urðu þannig fjórfalt fleiri á þjóðvegi 1 og tvöfalt fleiri á öðrum vegum en búast hefði mátt við miðað við heildarfjölda slysa. Um 0,7% allra slysa á hringveginum voru banaslys en 35% allra banaslysa í umferðinni urðu á hringveg- inum. Tafla II sýnir fjölda slysa á 45 helstu vegarköflum utan þétt- býlis. Alls voru vegarkaflarnir rúmlega 3500 km að lengd, á þeim eknir um fjórir milljarðar km á árunum 2007-2010 og fjöldi slysa var 3.861. Á Suðvesturlandi urðu flest slys eða 8,5 á hvern kílómetra vega samanborið við 1,1 á landinu öllu. Hins vegar urðu slys á milljón ekna kílómetra nokkru færri þar en á öðrum landsvæðum. Á Vest- fjörðum og Austurlandi voru tiltölulega fá slys á hvem kílómetra en fjöldi slysa á milljón ekna kílómetra ríflega helmingi meiri en meðaltalið á landsvísu. Slysaflestu vegarkaflnr lattdsins utan þéttbýlis Tafla III sýnir þá 20 vegarkafla þar sem flest slys urðu á hvern kílómetra. Efst er Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Kefla- víkur (10,3 slys/km), síðan Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Selfoss (10 slys/km) og í þriðja sæti Vesturlandsvegur frá Þing- vallaafleggjara að Borgarnesi (6,2 slys/km). I hópi þeirra 10 vegarkafla landsins þar sem flest slys verða er einnig að finna tvo vegarkafla á Suðurlandi, frá Laugarvatni að Eyrarbakka og milli Hvolsvallar og Selfoss. í þessum hópi eru jafnframt kaflarnir frá Staðarskála um Blönduós og Varmahlíð til Akureyrar, frá Seyðisfirði til Reyðarfjarðar um Fjarðarheiði og Fagradal og frá Neskaupstað til Stöðvarfjarðar um Oddsskarð og Fáskrúðsfjarðargöng. Meðal 20 slysaflestu vegarkaflanna eru til viðbótar þrír kaflar á Suðurlandi, þrír á Vesturlandi, þrír á Norð- urlandi og einn á Vestfjörðum. Aðeins einn kafli á Vestfjörðum er í hópi þeirra 20 þar sem flest slys urðu á hvern km. Milli Þingeyrar og Súðavíkur um Gemlu- fallsheiði og Vestfjarðagöngin varð að meðaltali eitt slys á hvern km á þessu fjögurra ára tímabili. Af þeim 60 slysum sem urðu á þessum kafla á tímabilinu urðu 13 slys á tæplega 5 km kafla norðan Súðavíkur í átt til Isafjarðar og 13 slys á 7 km kafla frá LÆKNAblaðið 2012/98 105
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.