Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 28
RANNSÓKN lingar létust innan 30 daga frá aðgerð og var miðaldur þeirra 76 ár. Fjórir þeirra fengu fylgikvilla og tveir létust af þeirra völdum. Þriggja mánaða dánartíðni sjúklinga með slag var 20% (15/76). Af 263 sjúklingum sem fengu PEG voru aðeins sjö (2,7%) til- felli metin sem siðferðileg álitamál. Miðaldur sjúklinganna var 70 ár (bil 56-89 ár) og miðgildistímalengd frá aðgerð að andláti voru 36 dagar (bil 15-123 dagar). Aðeins tveir (0,8%) sjúklingar höfðu heilabilun á endastigi og þrír (1,1%) höfðu endastigskrabbamein. Tveir höfðu endastigstaugasjúkdóma, slag og fjölkerfahrörnun. Umræða Rannsókn þessi hefur þá sérstöðu að þetta er fyrsta uppgjör á PEG- aðgerðum hjá heilli þjóð. Erfitt er að átta sig á hvort mikið eða lítið sé gert af PEG-aðgerðum á íslandi í samanburði við aðrar þjóðir því að sambærilegar tíðnitölur eru ekki fyrir hendi. Ef árlegur fjöldi PEG-aðgerða hérlendis er borinn er saman við árlegan fjölda slíkra aðgerða á sjúkrahúsum erlendis, í rannsóknum þar sem sá íbúafjöldi er upp gefinn sem sjúkrahúsið þjónustar, virðist sem aðgerðafjöldi hérlendis sé í lægri kantinum. Slíkur samanburður er þó ýmsum annmörkum háður. Rúmlega tvöföld aukning varð á PEG-aðgerðum á íslandi á seinni 5 árum rannsóknartímabilsins. Sú mikla aukning sem varð á aðgerðunum á íslandi á milli tíma- bilanna 2000-2004 og 2005-2009 er að mestu leyti tilkomin vegna aukins fjölda aðgerða á sjúklingum með taugasjúkdóma og áverka eftir slys. Rannsóknin sýnir að ábendingar PEG-aðgerða á íslandi eru í fullu samræmi við þær leiðbeiningar sem fyrir hendi eru, bæði læknisfræðilega og siðferðilega séð.6-9 Samkvæmt evrópskum leið- beiningum varðandi gervinæringu um görn er mælt með að nota PEG hjá sjúklingum sem gera má ráð fyrir að geti ekki nærst nægi- lega vel um munn í meira en tvær til þrjár vikur.6 Hjá sjúklingum með slag var miðgildistíminn frá slagi til PEG-aðgerðar 19 dagar, sem gefur til kynna að PEG-aðgerðir hérlendis séu ekki fram- kvæmdar of snemma. í birtum rannsóknum eru taugasjúkdómar ábending fyrir PEG frá 20% til 93% tilfella og krabbamein frá 13% til 70%.10'13 Flestar ábendingarnar hérlendis eru á grunni kyng- ingarerfiðleika í tengslum við taugasjúkdóma og krabbamein, sem er í samræmi við aðrar rannsóknir Af taugasjúkdómum er slag er algengasta ábendingin. Sú ábending er hvað algengust, best viðurkennd og læknisfræðilega staðreynd hvað gagnsemi varðar.1 Samanburðarslembirannsóknir á sjúklingum sem fengið hafa slag sem valdið hefur kyngingarerfiðleikum hafa sýnt fram á að nær- ing um PEG leiðir til betra næringarástands, og eykur líkur á lifun og styttri sjúkrahúslegu.14-15 Helmingur krabbameinssjúklinganna í rannsókninni hafði krabbamein í hálsi, en í flestum rannsóknum er það algengasta ábending PEG-aðgerðar krabbameinssjúklinga. Næring um PEG er oft notuð hjá þessum sjúklingum meðan á lyfja- eða geislameðferð stendur.16 Rannsóknin sýnir að tíðni fylgikvilla og aðgerðartengd dánar- tíðni er með því lægsta sem sambærilegar rannsóknir hafa sýnt. Heildartíðni fylgikvilla í rannsókninni var 6,5% og þar af voru tæplega 2% flokkaðir sem meiriháttar og 4,6% sem minniháttar. Heildartíðni fylgikvilla er allt frá 8% til 30% samkvæmt nýlegri samantekt og alvarlegir fylgikvillar sem þarfnast inngripa frá 1% til 4%.''6 í eldri samantekt á 17 rannsóknum á 2356 sjúklingum sem fóru í PEG-aðgerð fyrir 1993 var heildartíðni fylgikvilla 7,8%, meiriháttar fylgikvillar voru 2,3% og minniháttar 5,5%, að meðaltali.17 Meiriháttar fylgikvillar eru í flestum rannsóknum skilgreindir á svipaðan hátt og hér var gert. Þeir koma yfirleitt í ljós innan nokkura daga frá PEG-aðgerð og er sjúklingur því yfir- leitt enn inniliggjandi á sjúkrahúsi eða þarfnast endurinnlagnar.13 Hérlendis eru flestir inniliggjandi fyrir og eftir PEG-aðgerð. Þrátt fyrir að rannsóknin væri afturskyggn verður að teljast ólíklegt að misst hafi verið af meiriháttar fylgikvillum við yfirferð sjúkra- sögu þar sem flestir sjúklinganna voru inniliggjandi í nokkurn tíma eftir PEG-aðgerðina. Hins vegar er mögulegt að ekki hafi allir minniháttar fylgikvillar fundist þar sem rannsóknin er aftur- skyggn. Sumir hafa talið eftirfarandi til minniháttar fylgikvilla: leka meðfram PEG-slöngu, stíflu eða tæringu á slöngunni, ert- ingu eða roða í húð, lítilsháttar blæðingu eða ofholdgun í húð umhverfis slönguopið. Einnig telja sumir það til fylgikvilla að slangan losni eða sjúklingur eða einhver annar rífi hana út og ef sjúklingur þolir ekki næringu um PEG af einhverjum ástæðum. Slíkir minniháttar fylgikvillar eru oft ekki skráðir, koma seinna í ljós en þeir alvarlegu og eru oftar en ekki meðhöndlaðir af um- önnunaraðilum á öðrum stofnunum en ekki á sjúkrahúsi.13 Þessa fylgikvilla getur því verið erfitt að finna nema með framskyggnri rannsókn. Húðsýking aðlægt PEG-aðgerðarstaðnum er einn af algengari fylgikvillum PEG-aðgerðar. Hér var tíðni húðsýkinga eftir PEG-aðgerð tæp 2%. í öðrum rannsóknum var hún á bilinu 4-30%.18 Þessi breytilega tíðni húðsýkinga byggist meðal annars á því hvort fyrirbyggjandi sýklalyf séu notuð eða ekki. Samkvæmt tvíblinduðum samanburðarrannsóknum fækkar húðsýkingum úr 26% í 8% ef fyrirbyggjandi sýklalyf eru gefin 30 mínútum fyrir, við eða eftir PEG-aðgerð.19-20 Fyrirbyggjandi sýklalyfjagjöf er talin hag- kvæm, en meðhöndla þarf um 6-8 sjúklinga með fyrirbyggjandi sýklalyfjum til að koma í veg fyrir eina húðsýkingu.19,20 Sökum þessa hafa bresku og amerísku sérgreinasambönd meltingarlækna mælt með fyrirbyggjandi notkun sýklalyfja við PEG-aðgerðir.21-22 Aðeins 31% sjúklinga með fylgikvilla fengu fyrirbyggjandi sýkla- lyf en ekki var gerlegt að finna nákvæmlega hvert hlutfall fyrir- byggjandi sýklalyfjanotkunar var hjá öllu rannsóknarþýðinu. Líf- himnubólga var algengasti fylgikvillinn (2,7%) og var tíðni hennar svipuð hér og í öðrum rannsóknum (0,8-4%).23 Lífhimnubólga eftir PEG-aðgerð kviknar ef PEG-slangan dregst út, gat kemur á mag- ann eða ef magainnihaldið lekur inn í kviðarholið, og getur hún verið lífshættulegur fylgikvilli.23 Rannsóknir hafa sýnt að fækka má fylgikvillum við PEG-aðgerðir ef sjúklingar eru rétt valdir, fyrirbyggjandi sýklalyf eru notuð, reynsla lækna sem gera slíkar aðgerðir er góð og ef tveir læknar vinna saman við aðgerðina.24 Aðgerðartengd dauðsföll voru hér 0,8%. Bæði dauðsföllin urðu vegna lungnabólgu í tengslum við PEG-aðgerðina. Asvelgis- lungnabólga er vel þekktur fylgikvilli PEG-aðgerða og speglana og kemur í um 0,3% til 1,0% PEG aðgerða.4 í 6 rannsóknum á 438 PEG-aðgerðum var aðgerðartengd dánartíðni 1,3% (bil 0%-2,5%), sem er svipuð og hérlendis.25 Báðir sjúklingarir sem létust í þess- ari rannsókn voru með ýmis önnur heilsufarsvandamál og háaldr- aðir, en hvorttveggja eru þekktir áhættuþættir fyrir fylgikvilla við speglanir og PEG-aðgerðir.4 Þrjátíu daga og eins árs dánartíðni eftir PEG var 13% og 40%. Þessi dánartíðni er lág miðað við flestar aðrar rannsóknir, en í þeim er 30 daga dánartíðni frá 16% til 30% og eins árs um 60%.24 Helsta skýringin á lágri 30 daga dánartíðni er væntanlega sú að sjúklingar 100 LÆKNAblaöið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.