Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2013, Síða 14

Læknablaðið - 15.10.2013, Síða 14
RANNSÓKN Tafla IV. Orsakir bráðs andnauðarheilkennis. Fjöldi Látnir Dánarhlutfall APACHE II Dagar I öndunarvél Legudagar á gjörgæslu PO/FiO, hlutfall Aldur Lungnabólga 41 13 31,7% 18,5 14,2 17,1 113,2 56,9 Sýklasótt 26 10 38,5% 19,4 18,7 22,5 110,0 52,1 Ásvelging 12 3 25,0% 18,8 8,7 11,6 95,5 48,4 Lífhimnubólga 7 3 42,9% 15,2 16,3 19,0 123,6 58,3 Kviðarholsaðgerð 5 1 20,0% 18,2 12,0 15,6 127,0 65,0 Fjöláverkar 4 1 25,0% 16,8 16,8 20,8 126,9 61,3 Stoðkerfisaðgerð 4 0 0,0% 15,7 6,8 14,0 148,7 52,8 Ósæðaraðgerð 3 2 66,7% 12,3 13,0 19,0 94,2 65,0 Heilahimnubólga 2 0 0,0% 21,5 8,5 13,0 144,2 55,5 Briskirtilsbólga 2 0 0,0% 12,0 2,5 7,0 116,0 53,5 Hjartastopp 2 0 0,0% 22,0 4,5 7,0 145,0 27,5 Æðaaðgerð 2 1 50,0% 20,5 18,0 21,0 118,5 83,5 Lyfjaeitrun 1 0 0,0% 19,0 1,0 5,0 81,8 74,0 Brjóstholsaðgerð 1 0 0,0% 18,0 36,0 42,0 88,6 56,0 Bruni 1 0 0,0% 21,0 30,0 48,0 92,6 16,0 Drukknun 1 1 100,0% 30,0 9,0 9,0 140,0 11,0 Krabbameinsmeðferð 1 0 0,0% 16,0 7,0 8,0 181,0 58,0 Gallblöðrubólga 1 0 0,0% 14,0 5,0 8,0 110,0 57,0 Annað 4 1 25,0% 20 12,15 13,8 89,9 49 Alls 120 36 30,0% Orsök innan lungna 56 17 30,4% Orsök utan lungna 64 19 29,7% APACHE II = ástandsstigun, LIS = Lung Injury Scale, PaO 2 = súrefnisstyrkur í blóði, Fi02 = hlutfall súrefnis í innöndunarlofti. galla þar sem hugsanlega hefði verið hægt að greina einhverja sjúklinga með nánari athugun. Hins vegar er um fremur lítinn fjölda sjúklinga að ræða og þrátt fyrir að einungis sé farið yfir sjúk- linga Landspítalans hefur orðið marktæk fjölgun tilfella. Nýlegar rannsóknir erlendis frá gefa hins vegar vísbendingu um að tíðni sé jafnvel lækkandi síðastliðin ár.15 Ekki er ljóst af hverju nýgengi hefur aukist hér á landi, við greiningu tilfella var stuðst við sömu aðferð í báðum rannsóknum. Tíðnitölur hafa verið misjafnar síðan heilkenninu var fyrst lýst árið 1967, sennilega vegna breytilegra skilgreininga. Notast var við alþjóðlega AECC-skilgreiningu frá 1992 í þessari rannsókn sem og í eldri íslensku rannsókninni, og eru niðurstöður því bornar saman við niðurstöður nýlegra erlendra rannsókna, sem stuðst hafa við sömu skilgreiningu. Samkvæmt niðurstöðum skoskrar rannsóknar frá 1999 reyndist nýgengi þar vera 16 tilfelli á 100.000 íbúa/ári.16 Niðurstöður bandarískrar rann- sóknar bentu til þess að nýgengi væri 58,7 tilfelli á 100.000 íbúa/ ári.7 í samnorrænni rannsókn sem náði meðal annars til íslands var kannað nýgengi framvirkt á fjögurra vikna tímabili árið 1999. Samkvæmt niðurstöðum þeirrar rannsóknar er nýgengi 13,5 tilfelli á 100.000 íbúa/ári, miðað við íbúafjölda 15 ára og eldri.17 Þessar niðurstöður benda til þess að nýgengi bráðs andnauðarheilkennis sé nokkru lægra hér á landi, þrátt fyrir aukningu frá árunum 1988- 1997. Dánarhlutfall Af þeim 120 sjúklingum sem féllu undir skilgreiningu á bráðu andnauðarheilkenni létust 36 (30%) á gjörgæsludeild. Dánar- hlutfall hefur því lækkað marktækt frá árunum 1988-1997 þegar dánarhlutfallið var 40% (p<0,01). Pa02/FiO, hlutfall og APACHE II stig þeirra sem létust voru marktækt lægri en þeirra sem lifðu og greinilegt að horfur versna með hækkandi APACHE II stigi og lágu Pa02/Fi02. Samanburður við niðurstöður eldri rannsóknar sýnir að á tímabilinu 2004-2008 höfðu sjúklingar marktækt hærra APACHE II stig (p=0,003). Þetta bendir til þess að ástand sjúkling- anna sé alvarlegra en í fyrri rannsókn en þrátt fyrir það er árangur meðferðar betri. Pa02/Fi02 hlutfall er hins vegar marktækt hærra, sem bendir til þess að annaðhvort sé ástand lungna almennt betra eða að bætt öndunarvélameðferð sé að skila sér í betri loftskiptum sjúklinga, sem hlýtur að teljast líklegri skýring. Ætla má að aukin reynsla starfsfólks, betri öndunarvélameðferð og betri stuðnings- meðferð almennt stuðli einnig að betri lifun sjúklinganna. Niður- stöður rannsóknarinnar benda til þess að dánarhlutfall sjúklinga með brátt andnauðarheilkenni á gjörgæsludeildum á Islandi sé ekki hátt miðað við niðurstöður erlendra rannsókna sem hafa sýnt um 30-50% dánarhlutfall.71617 Árangur meðferðar virðist því vera nokkuð góður hér á landi og sambærilegur við niðurstöður erlendra rannsókna. Orsakir Orsakir fyrir bráðu andnauðarheilkenni eru fjölmargar og voru á þriðja tug samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar. Algengustu orsakir reyndust vera lungnabólga, sýklasótt og ásvelging en stór- ar aðgerðir og fjöláverkar voru líka algengar orsakir. Líklegt er að þetta skýri mun á tíðni sjúkdómsins milli gjör- gæsludeilda Landspítala. Fleiri greindust á gjörgæsludeild í Foss- vogi en vegna sérhæfingar koma fleiri sjúklingar þar til meðferðar 446 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.