Læknablaðið - 15.10.2013, Side 31
UMFJÖLLUN O G GREINAR
en ég fékk stöðu þar sem deildarlæknir
á æða- og brjóstholsskurðdeild Svæðis-
sjúkrahússins. Þarna var ég í rúmt ár og
hafði nóg að gera í æða- og lungnaaðgerð-
um. Þarna var yfirlæknir Sam Nordström,
mjög hæfur og skemmtilegur maður, og
með honum tékkinn Jan Malina, fyrr-
verandi Evrópumeistari í kúluvarpi og
frábær skurðlæknir, auk vinar míns Carlos
Ortega, fyrrverandi krókódílaveiðimanns
frá Bólivíu, sem hafði komið til Svíþjóðar
eftir valdaránið í Chile. Carlos hafði unnið
á Kúbu með Rússanum sem fyrstur þróaði
heftibyssurnar í skurðlækningum. Þetta
var mjög öflugur hópur sem gaman var
að vinna með, mjög mikil vinna en frábær
skóli fyrir ungan mann. Þá var það sem
Hörður Alfreðsson, sem þá var aðstoðar-
læknir á brjósthols- og hjartaskurðdeild
Háskólasjúkrahússins í Uppsölum, benti
mér á lausa stöðu aðstoðarlæknis á deild-
inni, sem ég sótti um og fékk, enda taldi
ég að með þv£ fengi ég góða viðbót við
kunnáttu mína. Þetta reyndist mjög farsæl
ákvörðun og í Uppsölum bjuggum við fjöl-
skyldan í góðu yfirlæti í sjö ár, þar til við
fluttum heim 1985. Háskólasjúkrahúsið í
Uppsölum er eitt þriggja stærstu sjúkra-
húsa Svíþjóðar. Yfirlæknir var á þeim tíma
sem ég kom þangað Lennart Johansson,
frábær skurðlæknir og mjög sterkur pers-
ónuleiki. Hann hafði starfað sem aðstoðar-
læknir með Craaford í Stokkhólmi á sínum
námstíma þegar Craaford var að þróa sína
„Það má auðvitað velta þvífyrir sér
hversu rökrétt það er að miða slarfs-
hæfni manna við eitthvert sérstakt
aldursár, ekki síst efskortur er á
reyndu fólki í viðkomandi grein,"
scgir Þórarinn Arnórsson hjarta-
skurðlæknir sem lét afstörfum í vor.
fyrstu hjarta- og lungnavél og gerði sína
fyrstu aðgerð rétt á eftir Gibbon, sem varð
fyrstur til. I Uppsölum var með honum
sterkur kjarni af mjög hæfum mönnum og
deildin stóð framarlega á alþjóðavísu. Á
þessum árum var mikil framþróun í öllum
tækjabúnaði og aðgerðatækni og starfsem-
in öll að komast af frumherjastiginu yfir á
það stöðuga ástand sem er í dag og mjög
gaman að hafa tekið þátt í þeim tíma. Það
var mikil vinna, aðgerðir alla vinnudaga
og ég fékk því góða þjálfun og reynslu.
Framan af var ég í aðstoðarlæknisstarfi
en seinni hluta tímans gegndi ég stöðu
aðstoðaryfirlæknis um rúmlega eins
árs skeið og leysti einnig af tímabundið
sem yfirlæknir. Sérfræðiviðurkenningu í
brjósthols- og hjartaskurðlækningum fékk
ég í Svíþjóð 1982. Fyrri hluta tímans í Upp-
sölum sá ég fljótlega um allflestar lungna-
aðgerðirnar, en seinni hluta starfstímans
fékkst ég nær eingöngu við hjartaaðgerðir
og þegar ég kom heim til íslands var ég
búinn að gera um 500 hjartaaðgerðir og
enn fleiri lungnaaðgerðir. Þetta var mikil
vinna og góður skóli."
Upphaf hjartaaðgerða á íslandi
„Það hafði legið í loftinu um allangt skeið
að hefja hjartaskurðlækningar á íslandi.
Sú saga hefur verið rakin annars staðar en
það voru mjög skiptar skoðanir um hvort
ætti að hefja slíka starfsemi hér heima.
Þórður Harðarson lýsir framgangi þess-
ara mála ágætlega í grein í Læknablaðinu
í september á þessu ári og má ef til vill
bæta við að ég og Hörður áttum viðtal
við Matthías Bjarnason, þá heilbrigðis-
ráðherra, á árinu 1985 eða árinu áður en
LÆKNAblaðið 2013/99 463