Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 43
UMFJÖLLUN O G GREINAR „Þessar umræður vöktu mikla athygli þar og voru dagblaðafréttir en virtust ekki komast neitt sérstaklega í hámæli hér á landi. Kannski er hluti af ástæðunni að lágkolvetnafæði er orðið töluvert útbreitt í Svíþjóð og Noregi og má rekja upphaf þess til þess er sænski heimilislæknirinn Ann- ika Dahlqvist var kærð til heilbrigðiseftir- litsins fyrir átta árum og flæmd úr starfi sínu, fyrir að ráðleggja of feitum skjólstæð- ingum sínum og sykursýkissjúklingum lágkolvetnamataræði. Var þess krafist að lækningaleyfið yrði tekið af henni. Þetta varð töluvert blaðamál og heilbrigðiseftir- litið dró ákvörðun sína til baka eftir að hafa farið yfir þær rannsóknir og gögn sem þá lágu fyrir og 2008 fékk Dahlqvist uppreisn æru, enda var þá talið að óhætt væri að mæla með lágkolvetnfæði fyrir offeita og sykursjúka. í nýjustu leiðbeiningum frá sænska heilbrigðiseftirlitinu um næringarráð til sykursjúkra tegund II er nú boðið uppá fjórar gerðir mataræðis þar sem þrjú eru lágkolvetna en einungis eitt er samkvæmt hinu gamla fituskerta." Hildur segir að þarna megi sjá upphaf opinberrar stefnubreytingar í næringar- ráðgjöf, sennilega að miklu leyti vegna vinnu lækna eins og Anniku Dahlqvist og Andreas Eenfelds. Mér skilst að Svíþjóð sé nánast eina landið í heiminum þar sem hægir á offituógninni í hlutfalli við aukningu á smjörsölu „Ég vildi gjarnan sjá sambærilegar breytingar í lýðheilsuráðgjöf hér á íslandi. Það er fleiri möguleikar en lágfitufæði, lyf og hjáveituaðgerðir enda er ástand þjóðarinnar verulega slæmt, offita hvergi meiri en hér á Norðurlöndunum og við höldum áfram að þyngjast. Þeirri þróun verður að snúa við. Ég tel einnig brýnt að litið verði á hluta offituvandans sem fíknsjúkdóm og meðhöndla hann sem slíkan þar sem það á við, því töluvert af rannsóknarniðurstöðum styður það að um taugaefnafræðilegar breytingar í heila sé að ræða. Ég vil hvetja þá kollega sem annast sjúklinga með offituvandamál og áunna sykursýki að hugleiða hvort einhverjir gætu fallið undir að vera með matarfíkn og gætu nýtt sér hjálp til dæmis MFM, Matarfíknimiðstöðvarinnar, sem Esther Helga Guðmundsdóttir hefur starf- rækt frá árinu 2006 með góðum árangri, eða 12 spora samtaka sem eru tvö starf- andi hér á landi í anda AA-samtakanna, OA og GSA. Þess má einnig geta þess að í apríl síðastliðnum voru stofnuð regnhlífarsam- tökin Matarheill sem munu starfa í svip- uðum anda og SAA. Samtökin sameina þá sem vilja vinna að forvörnum, fræðslu og meðferð og einnig fólk sem glímir við matarfíkn, átröskun eða offitu." Hildur vill benda fólki sem vill kynna sér þessi mál nánar á vefsíðurnar: • kostdoktorn.se • dietdoktor.com • drhexeberg.no • garytaubes.com • docsopinion.com • mataraedi.is • foodaddictioninstitute.org • authoritynutrition.com • matarfikn.is • oa.is • gsa.is • matarheill.is Einnig bendir hún á mjög góðan fyrir- lestur á netinu eftir Robert H. Lustig sem nefnist Sugar, The Bitter Truth og sjónvarps- þættina Skinny on Obesity, sem finna má á Youtube. Helse Forde HF yter spesialisthelsetenester til dei 108 500 innbyggjarane i Sogn og Fjordane. Foretaket er i stadig utvikling for á gjere tilbodet best mogeleg innanfor dei rammene styresmaktene set og brukarane forventar. Helse Forde har sjukehus og psykiatriske institusjonar i seks kommunar og ansvar for ambulanseteneste. Tal pá tilsette er omlag 2500, og budsjettet er pá 2,4 milliardar kroner. Foretaket er organisert i 4 klinikkar. Det er det statlege Helse Vest RHF som eig Helse Forde. Helse Forde skal sá langt som rád avspegle mangfaldet i befolkninga. Det er difor eit personalpolitisk mál á oppná ein balansert alders- og kjonnssamansetnad, og á rekruttere kvalifiserte personar med innvandrarbakgrunn. MEDISINSK KLINIKK / HUD POLIKLINIKK sökjer: Legespesialist, Dermatologi Heimelsnr. 6227, nr.id.: 13625. Helse Forde har ledig fast stilling som legespesialist i dermatologi. Dette er ein spennande sjanse i et framtidsretta helseforetak. Hudavdelinga, Helse Forde driv poliklinisk virksomhet, har sitt hovudsete ved Forde Sentralsjukehus, Forde og har underavdelingar i Eid, Floro, Lærdal og Sogndal. Kontaktperson: Avdelingssjef 0ystein Vatne (+47) 57839367 Referansenummer: 1872850505 Saknadsfrist: 22.10.2013 For á lese meir og á sokje pá stillinga: www.helse-forde.no • • • Helse Forde LÆKNAblaðið 2013/99 475
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.