Læknablaðið - 15.10.2013, Side 46
UMFJÖLLUN OG GREINAR
Fundinti sóttu yfir 100 ntanns og 250 til viðbótarfylgdust með ígegnum útsendingu á netinu.
Fjölmennur og gagnlegur fundur
Læknafélag íslands efndi til fundar
fimmtudaginn 5. september um slæmt
ástand á lyflækningasviði Landspítalans
og þarf vart að tíunda það efni frekar
svo fyrirferðarmikil sem umræðan hefur
verið bæði á undan og í kjölfar fundar-
ins. Allir eru sammála um að aðgerða sé
þörf, nákvæmlega hvaða aðgerða grípa
skuli til er tekist á um og veldur þar
hver á heldur. Ekki er vafi að fundurinn
skilaði umtalsverðum árangri en í kjölfar
hans kynnti heilbrigðisráðherra tillögur
til úrbóta á lyflækningasviði Eand-
spítalans.
í umræðum að loknum framsöguer-
indum kom fram að lyflækningasviðið
sem stærsta svið spítalans er í mörgum
skilningi kjarni starfsemi alls spítalans;
flestar aðrar deildir reiða sig á samstarf
og samvinnu við lyflækningadeildir,
hvort heldur eru aðgerðadeildir eða hinar
ýmsu göngudeildir og slæmt ástand á
lyflækningadeildum snertir því nánast
alla starfsemi spítalans.
Áhugi og áhyggjur læknastéttarinnar
birtust glöggt í þeirri staðreynd að ríflega
100 manns sóttu fundinn í Hlíðasmára og
aðrir 250 fylgdust með í beinni útsendingu
á lokaðri heimasíðu Læknafélagsins.
Lætur nærri að um 40% starfandi lækna
í landinu hafi því fylgst með fundinum
og líklega enn fleiri skoðað upptöku af
honum síðar.
í samtali við Læknablaðið að loknum
fundinum kvaðst Þorbjörn Jónsson
ánægður með mætinguna á fundinn og
ekki síður hversu margir fylgdust með
fundinum á netinu. „Ég get fullyrt að við
munum sýna svona mikilvæga fundi á
netinu í framtíðinni og efla þannig tengsl
við almenna lækna. Það er mikilvægt,"
sagði Þorbjörn.
Fjölmargar hugmyndir að lausnum
Sex læknar lyflækningasviðs höfðu fram-
sögu á fundinum og lýstu þeir hver frá
sínum bæjardyrum ástandi á deildum
sviðsins sérstaklega og spítalanum
almennt. Þetta voru þau Helga Ágústa
Sigurjónsdóttir innkirtlalæknir, Friðbjörn
Sigurðsson krabbameinslæknir, Runólfur
Pálsson nýrnalæknir og formaður Félags
lyflækna, Þorbjörn Guðjónsson hjarta-
læknir, Ingibjörg Kristjánsdóttir læknir
fyrir Félag almennra lækna og Magnús
Karl Magnússon deildarforseti lækna-
deildar Háskóla íslands. Glærur með
erindum þeirra liggja frammi á heimasíðu
Læknafélagsins, www.lis.is
Framsögumenn nefndu ýmsar leiðir
til að leysa vandann og bentu einnig á að
lausnir hefðu verið lagðar fram á undan-
förnum mánuðum og misserum enda væri
vandinn ekki nýtilkominn. Kom fram að
478 LÆKNAblaðið 2013/99