Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 25

Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 25
E R L E N T Sambúðin wið Indverja. Yfirlýsing Zia kann aö hafa þau áhrif að sambúö Pakistana °g Indverja versni til muna. Bæði ríkin hafa ^regið herlið til baka af mörgum landa- mærastöðvum, einkum í Rajasthan. Bæði ríkin hafa stranga gát á Punjab, en svo v<röist sem þau haldi mjög að sér höndum síðan við lá fyrir nokkrum vikum að stríð brytist út milli herfylkja á mörgum stöðum. Það stríð hefði orðið það fjórða í röðinni m’Hi þessara grannríkja. Þegar forystumönnum tókst að koma í veg fyrir að átök yrðu milli ríkjanna var Zia ákaft hælt, bæði í Islamabad og Nýju Dehlí, fyrir vasklega framgöngu meðan hættu- astandið ríkti. Hann sagði að upptök átak- anna hefðu verið hjá Indverjum, en réðst síðan gegn haukunum í eigin herbúðum og kom þannig í veg fyrir styrjöld. Hann segir þó að enginn geti útilokað átök milli ríkj- anna í framtíðinni. Afganistan. Styrjöldin í Afganistan kann að reynast báðum ríkjunum þungur baggi, einkum þó Pakistönum sem hafa opinskátt blandað sér í málin. Mujaheddín-skæruliðar fá aðstoð sína frá vestrinu í gegnum Pakist- an og margar herbúðir þeirra eru innan landamæra Pakistan. Margir forystumenn Pakistana hafa af því þungar áhyggjur að Sovétmenn og Afganistar hyggi á hefndir og ráðist inn í Pakistan til að uppræta búðir skæruliða. Reyndar eru innhlaup Afganista inn í Pakistan við landamærin orðin daglegt brauð og á þessu ári hafa 39 manns látið lífið í sprengingum hermdarverkamanna sem tal- ið er að afganska leyniþjónustan styðji. Pak- istanir álíta, að Sovétmenn voni að þessi innhlaup verði til þess að þvinga Pakistani til að samþykkja skilmála Sovétmanna í samningaviðræðum Afgana og Pakistana í Genf. Zia ul-Hak lýsti því yfir við bandarísk stórblöð að Sovétmenn myndu halda áfram skemmdarverkum á landamærum Pakistan og Afganistan. Hann hefur sett þau skilyrði, að Sovétmenn dragi allt herlið sitt til baka frá Afganistan gegn því að Pakistanir hætti öllum stuðningi við mujaheddín-skæruliða. Þetta á að gerast á fjórum mánuðum. Sovét- menn hafa viljað fallast á þessi skilyrði — en á fjórum árum. Og það nýjasta í málinu er að Sovétmenn hafa boðið 18 mánuði, Pak- istanir sjö. Zia ul-Hak kveðst ekki ýkja bjartsýnn á að nokkuð gerist í Genfarvið- ræðum Pakistana og Afganista. Stórveldin verða að jafna þessar deilur, segir hann, og bendir á fund utanríkisráðherra Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna, þeirra Shultz og Shervardnadze, sem verður lokið þegar þetta kemur fyrir augu lesenda. Augljóst er, að Sovétmenn vilja af heilum hug losna úr Afganistanmálinu. Þeir hafa, eins og áður var nefnt, boðist til að draga herlið sitt til baka á 18 mánuðum í stað fjögurra ára. í janúar lagði stjórn Afganist- an fram tilboð um vopnahlé og talaði, óljóst þó, um n.k. þjóðstjórn. í Moskvu er ekki lengur talað um sósíalísku stjórnina í Kabúl heldur er henni nú lýst sem lýðræðislegu yfirvaldi sem allir geti átt sæti í, meira að segja and-kommúnistar. Þreytu er tekið að gæta í herliði Sovétmanna svo og á heima- velli og er það talin ein helsta ástæðan fyrir því að Sovétmenn eru tilbúnir til að draga herlið sitt til baka. Talið er að um tíu þús- und Sovétmenn hafi fallið á vígstöðvunum og um 20 þúsund særst. Engin lausn virðist í sjónmáli og stríðið hefur dregist mjög á langinn. Skæruliðar hafa fengið frá Banda- ríkjamönnum herflaugar til að granda flug- vélum, og ekki hefur það dregið úr erfið- leikum Sovétmanna. Zia ul-Hak heldur því fram að Sovétmenn hafi misst þrisvar til fjórum sinnum fleiri menn á vígvöllunum í Afganistan heldur en Bandaríkjamenn misstu í Víetnam. En hverjir eiga að taka við völdum í Ka- búl þegar Sovétmenn fara, er spurt. Sovét- menn hafa bent á leiðtoga Afganista, hers- höfðingjann Mohammed Najibullah, og sagt að til greina komi að stjórnarandstæð- ingar fái aðild að ríkisstjórn. Zia ul-Hak segir á hinn bóginn að ekki komi til greina annað en að sú ríkisstjórn sem taki við verði skæruliðum þóknanleg, og sömuleiðis verði hún að falla þeim tveimur milljónum af- gangskra flóttamanna sem dvelja í Pakistan vel í geð. En til þess verða Sovétmenn að taka á honum stóra sínum. Og víst er að yfirlýsingar Zia ul-Hak um kjarnorkuvopna- getu Pakistana verða síst til þess að greiða fyrir samningsvilja þeirra, hvað sem allri stríðsþreytu þeirra líður. ■ Auöur Styrkársdóttir/Time o.fl. 25

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.