Þjóðlíf - 01.05.1987, Blaðsíða 85
L í F S S T í L L
Rökréttur, lipur,
þægilegur
Þjóðlíf prófar Peugeot 309 Profil
pEUGEOTINN er vissulega sýn sem gleð-
Ur augað; rennilegar línur, fimm dyra limós-
l.na’ nema hvað sitthvað vantar upp á lengd-
lna til að hann geti kallast raunveruleg lim-
°sína. Dyrnar að aftan og rúðan opnast í
c'nu lagj sem gerj að verkum að bíllinn fær
góða straumlínulögun. Peugeot 309 Profil
var kjörinn bfll ársins 1987 í Danmörku og
settur f flokk með Kadett, Golf og Escort.
^kki dónalegur selskapur það.
»Ég gerj þær kröfur til bíla að það sé
Pægilegt að sitja í þeim, allt sé vel innan
seflingar og öryggisbúnaður í hæsta flokki,“
Anna (Jlafsdóttir Björnsson, sem
, . ÐLÍF bauð að prufukeyra bflinn. Anna
á Álftanesi ásamt manni og tveimur
°rnum, er þar í hreppstjórn og skipar ann-
? sæí‘ó á lista Kvennalistans á Reykjanesi í
°ntandi kosningum. Hún ferðast mikið um
°g vegna búsetu þarf hún að geta treyst þeim
1 sem hún hefur undir höndum. Barnanna
egna hefur hún auga með öryggisútbúnaði
1 reiða og fjölskyldan spennir ávallt beltin.
eugeot 309 Profil eru einnig belti í aft-
Ursætum sem stærri börn geta hæglega
notað.
Anna varð strax hrifin af öryggisútbúnaði
eugeotsins. Því auk barnalæsingar innan í
urðum sem verkar þannig að aðeins er
ægt að opna afturdyr utan frá, eru ljósin
Pe'm eiginleikum búin að því aðeins er hægt
d slökkva þau að drepið sé á bflnum. Peug-
eotinn ekur því um með ljósin stanslaust á.
Að þessu hljóta allir bifreiðaframleiðendur
að keppa áður en langt um líður.
Við ókum frá Jöfri, sem hefur nú umboð
fyrir Peugeot, út á Álftanes — hægt og ró-
lega meðan Anna áttaði sig á bflnum. Hún
átti fyrst í erfiðleikum með gírstöngina;
fannst gírarnir liggja of nálægt hver öðrum.
Hún vandist þessu þó fljótt og að ökuferð-
inni lokinni var hún orðin fyllilega sátt við
þá. Annað mál var með bakkgírinn. Hann er
við hlið fyrsta gírs og Anna hafði margsinnis
á orði að þetta væri stór galli við bflinn því
hætt væri við að ökumenn kynnu að ruglast á
Tæknilegar upplýsingar
4-5 manna, fimm dyra, framhjóladrifinn,
fimm gíra beinskiptur.
Lengd: 4.05
Hæð: 1.63
Breidd: 1.38
Þyngd: 800 kg
Vél: 4ra strokka, 1294 rúmsm. Þjöppun:
9.4:1. 1-100 km/klst: 14.8 sek. Hámarks-
hraði: 162 km/klst.
Framleiðandi: Automobiles Peugeot,
Frakklandi.
Umboð: Jöfur h.f. Nýbýlavegi 2 Kóp.
Sími:42600.
þessum tveimur gírum í aðgátsleysi og aka
áfram í stað þess að bakka — eða öfugt.
Þegar hún hins vegar reyndi að bakka frá
húsinu sínu á Álftanesi kom babb í bátinn.
Það reyndist nefnilega ekkert auðvelt að
ruglast á fyrsta gír og bakkgírnum; reyndar
var þetta svo erfitt að við urðum að lokum
að kalla ljósmyndarann á vettvang og annan
karlmann til. Ljósmyndarinn var kunnugur
Peugeot-bflum og sagði að það væri alltaf
eitthvað eitt við þessa bfla sem væri ekki eins
og í öðrum bflum. Og það reyndist rétt vera!
Ýta þarf litlu handfangi sem er á gírstöng-
inni upp til þess að geta sett í bakkgír! Þegar
þetta var komið á hreint hrósaði Anna þess-
ari hönnun á gírunum.
Anna ók bflnum eftir þröngum malar-
troðningi með háum kambi á Álftanesinu.
„Þetta er minn mælikvarði á það hvort bfll sé
nógu hár fyrir íslenskar aðstæður," sagði
hún og renndi bflnum eftir slóðanum. Hann
stóðst prófið með glans.
Börn Önnu sátu í aftursætunum dágóða
stund og sögðu að aðstæður þar væru hinar
bestu. Þau voru sett af við barnaskólann
énda áttu bæði að mæta þar í tíma, og þá var
bflinn prófaður á góðum, löglegum hraða.
Anna hrósaði bflnum að því loknu. „Á þess-
um vegi eru tveir afskaplega slæmir kaflar
þar sem jafnvel bestu bflar nötra eins og
tómar blikkdósir," sagði hún. „Þessi fann
ekki fyrir þessu.“
Bfllinn reyndist einnig góður í hraðahindr-
un í Hafnarfirði, sem Anna sagði að væri
mesti skelfir ökumanna þar í bæ, enda ein-
staklega úfin. Plássið í aftursætum var mjög
gott þannig að leggjalengstu menn geta teygt
vel úr sér, en e.t.v. eiga mjög háir menn
erfitt með að reka ekki höfuðið uppundir.
Farangursgeymslan reyndist gríðarstór.
„Fínn fjölskyldubfll,“ var einkunn Önnu Ól-
afsdóttur Björnssonar.
Endanlegur dómur hennar var sá, að Peu-
geot 309 Profil væri spennandi bíll með af-
skaplega góða kosti. Stýrið fannst henni gott
og bfllinn stöðugur, „liggur eins og klessa!“.
Útsýnið reyndist mjög gott úr bflnum og
engir dauðir blettir. Speglakerfið eins og
best verður á kosið, reyndar hægt að stilla
hliðarspegla innanfrá sem alltaf er mjög góð-
ur kostur. „Það er mjög rökrétt skipan á öllu
innandyra; maður er fljótur að átta sig á öllu
og allt er innan seilingar,“ sagði Anna. „Bfll-
inn fær því mín bestu meðmæli, en e.t.v. er
hann í hærri kantinum hvað verð snertir ef
hann er hugsaður sem fjölskyldubfll fyrir
almenning. En hann er líka í háum gæða-
flokki. Þá finnst mér galli að ekki skuli vera
snúningshraðamælir í bflnum, því ég vil geta
fylgst með því hvort ég er að pína bflinn. En
hönnuðir fá hrós fyrir klukkuna í mælaborð-
inu — hún er nauðsynleg stressuðu nútíma-
fólki!“
Geta má þess að unnt er að fá útgáfu af
Peugeot 309 Profil með snúningshraðamæli,
en þá er hann orðinn nokkuð dýrari, eða
496.200 í stað 460.400, en í þeirri gerð eru
framsætin upphituð og betra áklæði í sætum.
■ Eftir Aubl Styrkársdóttur
85