Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Blaðsíða 31

Þjóðlíf - 01.05.1987, Blaðsíða 31
I N N L E N T 10 prósent hjóna óviljandi barnlaus Jón Hilmar Alfreðsson kvensjúkdómalæknir AUKINN FJÖLDI ættleiðinga hin síðari ár og vaxandi eftirsókn eftir ættleiðingum erlendra barna vekur upp spurningar um fjölda barnlausra hjóna og para hér á landi. Hver er tíðni ófrjósemi? Færist ófrjósemi í aukana? Er hægt að ráða bót á barnleysi eftir öðrum leiðum en með ættleiðingu, - leiðum læknavísindanna? Á kvennadeild Landspítalans starfar Jón Hilmar Alfreðsson, sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Jón hefur haft yfirumsjón með tæknifrjóvgunum sem gerðar hafa verið á kvenna- deildinni allt frá árinu 1980. Nú munu milli 50 og 60 íslensk börn vera getin með þessum tæknilegu aðferðum, tæknifrjóvguninni, en fleiri ráð eru til. PJÓÐLÍF leitaði til Jóns Hilmars um frekari upplýsingar. „Það er enginn vafi á því að óviljandi barnleysi er mörgum mikið vandamál. Vandamál vegna barnleysis koma yfirleitt ekki upp fyrr en eftir nokkurra ára sambúð, vígða eða óvígða, en þegar fólk gerir sér það ljóst að það getur af einhverjum ástæðum ekki átt barn verður það því oftast mikið áfall og það vill allt gera sem tiltækilegt er til að ráða bót á barnleysinu," segir Jón. Reynir fólk þá œttleiðingarleiðina áður en það leitar til læknis? „Nei, oftar er það á hinn veginn, að fólk leitar sér læknishjálpar en ef hún gengur ekki þá verður ættleiðing síðasta úrræðið.“ Hversu algengt er að fólk geti ekki átt barn? „Það er í reynd engin leið að fá nákvæmar upplýsingar um það en reynt hefur verið að meta þetta eftir ýmsum leiðum. í ná- grannalöndunum er talið að um tíu til 15 prósent hjóna séu óvilj- andi barnlaus en hér á landi eru það sennilega um eða yfir tíu Prósent. Þetta er auðvitað mikill fjöldi þegar tíunda hvert par getur ekki átt barn og virðist heldur færast í aukana. Helsta ástæðan felst líklega í því að fólk fer seinna af stað með barneignir en áður. Unga fólkið í dag vill mennta sig og ná starfsframa áður en barneignir hefjast og notar því getnaðarvarnir. Það telur sig öruggt fyrir getnaði og leyfir sér meira frjálsræði í kynlífi. Þetta hefur aftur á móti í för með sér aukna hættu á að eitthvað gerist með árunum sem veldur því að barneignir takast ekki þegar loks á að eignast börn. Kynsjúkdómar eru hluti af orsökinni og hafa aukist á seinni árum. Niðurstaðan af þessu verður svo sú að viljandi barnlaus hjón geta °rðið óviljandi barnlaus af þessum ástæðum. En með þeim úr- ræðum sem nú eru tiltæk ætti að vera hægt að hjálpa nær helmingn- nrn af þessu fólki.“ Jón segir að einkum sé um fernskonar úrræði að ræða: í fyrsta lagi tæknifrjóvgun sem er orðin mjög algeng, þá smásjárskurðlœkn- 'tigar á lokuðum eða of þröngum eggjaleiðurum, í þriðja lagi [yfjagjöf til að framkalla egglos og loks glasabörn. „Það má segja að 'nð höfum kost á öllum þessum úrræðum hér á landi — að glasa- oörnunum undanskildum,“ segir hann. Fegar karlinn er ófrjór hefur þurft að framkvæma tæknifrjóvgun nteð sæði óþekktra sæðisgjafa sem oftast hefur komið frá sæðis- ’nnka í Danmörku. Þessu gat fylgt sú hætta að smitsjúkdóinar ^ærust með sæðinu, að sögn Jóns, s.s. kynsjúkdómar, lifrarbólgu- virus og nú síðast eyðniveiran. Hafa verið gerðar ráðstafanir til að yrirbyggja þessa hættu og er talið að það hafi tekist svo að nrnsækjendur um tæknifrjóvgun í dag þurfa ekki að hafa áhyggjur þessu. »Byrjað var að framkvæma tæknifrjóvganir hér árið 1980 og voru ■ Jón Hilmar Alfreðsson, kvensjúkdómalæknir: Fernsiconar úr- ræði eru til handa barnlausum hjónum. Tæknifrjóvganir, en þær eru orðnar þó nokkuð margar hér á landi, smásjárskurðlækningar á lokuðum eða of þröngum eggjaleiðurum, lyfjagjafir til að fram- kalla egglos og glasabörn, en síðasttalda leiðin er ekki farin hér á landi. Jón Hilmar kemur hér fram með þá athyglisverðu hugmynd að reynt verði að hafa áhrlf á þær konur sem ætla að gangast undir fóstureyðingu í þá átt að ganga heldur með barnið og gefa barnlausum hjónum. gerðar milli tíu og 15 aðgerðir á ári allt til 1986 er þær féllu niður á meðan verið var að koma betri reglu á þessi mál og gera varúðar- ráðstafanir,“ segir Jón. „Nú er þetta hins vegar að komast í gang aftur og gengur vel enda skilar þessi aðferð yfirleitt góðum árangri. Fólk hefur verið ánægt því þetta er tiltölulega einföld aðgerð og henni fylgja ekki nein vandamál.14 Pessi úirrœði gagnast þó ekki öllum og eftir stendur stór hópur fólks sem sér ekki önnur ráð en ættleiðingu til að ráða bót á barnleysi sínu. Hefurðu orðið var við vanda vegna þessa nú þegar dómsmálaráðuneytið hefur takmarkað ættleiðingar barna erlendis frá? „Já, ég hef fundið það. Læknar hafa kynnst ættleiðingum er- lendra barna hér vegna þess að öll ættleidd börn þarf að koma með til læknisrannsóknar við komuna til landsins og við gefum út vottorð um heilbrigði þeirra. Þetta hefur helst verið í verkahring barnalækna en ég hef þó orðið var við að þegar ættleiðingar hafa svo til stöðvast nú er ljóst að margt fólk á í verulegum vandræðum því það er mjög lítið um að hægt sé að fá ungbörn ættleidd hér innanlands. Hérgeta því fóstureyðingar komið inn í myndina vegna þess að nú eru gerðar yfir 700 fóstureyðingar á ári og það er íhugunarefni hvort ekki væri hægt að koma málum þannig fyrir að einhverjar konur sem sækja um fóstureyðingu af félagslegum ástæð- um vildu ganga með barnið og fæða það fyrir ættleiðendur. Ég hef töluvert velt þessu máli fyrir mér og finnst full ástæða til að reynt verði að hafa áhrif þarna á.“ Svo er það farið að tíðkast víða erlendis að konur taka það beinlínis að sér að ganga með barn fyrir konur sem árangurslaust hafa reynt að vcrða þungaðar... „Já, þessa svokölluðu „surrogate“ eða staðgengilsmeðgöngu, þar sem konur ákveða að verða ófrískar í fjáröflunarskyni, þekkjum við m.a. frá Bandaríkjunum en Bretar hafa bannað þetta og það er ekki hrifning yfir þessu, enda tíðkast þetta ekki hér, enn sem komið er a.rn.k." 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.