Þjóðlíf - 01.05.1987, Blaðsíða 72
TÆKNI O G VÍSINDI
Spáð í
tölvumarkaðinn
fyrir 20 mb tölvu með 360 kb vinnsluminni
eða 84.700 kr. Innifalið er grafískt skjákort,
klukka og gulbrúnn skjár. Fylgiforrit eru
Turbo Prolog, Planner, Ritvinnsla 2 og MS-
DOS ásamt bók. Síminn er: (91) 621163.
Þetta er „oríginalinn" — frumritið sem allir
aðrir reyna að líkja eftir og samhæfa sínar
tölvur. Söluaðilar eru þrír og bendum við á
skrifstofur IBM til að fá nánari upplýsingar
um þá.
Ótrúlega misjafnt verð
- og gæði
BÓKABÚD BRAGA birti í síðasta tölu-
blaði Þjóðlífs, og einnig í þessu, auglýsingu
sem vakti þegar í stað mikla athygli. Búðin
auglýsir Amstrad PC-tölvur á hreint ótrú-
lega lágu verði: 20 mb Amstrad PC 1512 á
aðeins 67.900 krónur. Margir höfðu sam-
band við blaðið til þess að grennslast fyrir
um tölvuna og verðið. Því miður gátum við
ekki gefið neinar upplýsingar, enda ekki á
okkar færi eða valdsviði að gefa upplýsingar
um vörur sem auglýstar eru í blaðinu.
Þessi viðbrögð urðu til þess að við ákváð-
um að kanna verð á sambærilegum tölvum
sem bjóðast á íslenska markaðnum í dag.
Mismunurinn á verðinu kom verulega á
óvart. 20 mb PC-tölvur eru boðnar á verð-
bilinu 44.000 kr. upp í 134.000 kr. Nú er
nokkuð mismunandi hvað fylgir með í þessu
verði, svo sem hvers konar skjár er á ferð-
inni, hvaða forrit eru innifalin o.s.fv. Sá eða
sú sem er í tölvuleit skyldi því athuga vel
sinn gang og kynna sér málin nákvæmlega
áður en farið er af stað. Þær upplýsingar
sem við gefum hér að neðan má ekki skoða
sem tæmandi — aðeins sem leiðbeiningar
gegnum frumskóg tilboðanna sem okkur
berast frá þeim sem selja tölvur. Fái fólk
áhuga á að kynna sér einhverja þeirra tölva
sem nefndar eru hér, er vissara að afla sér
enn fekari upplýsinga um gripinn hjá um-
boðsaðilum.
Atari. Ódýrasta 20 mb PC-tölvan á mark-
aðnum virðist tvímælalaust vera Atari, sem
Marco hefur umboð fyrir. Hún er seld á
44.000 krónur sléttar. Með í þessu verði
fylgir mús, íslensk ritvinnsla undir heitinu
Fast Word og TOS-stýriforrit. Að sögn um-
boðsaðila má keyra Mackintosh-forrit í
henni og einnig DÖS-stýrikerfi, en hvorugt
fylgir þessu verði. Tölvan er ekki alveg til-
búin í bókhaldsvinnslu á íslensku en fá má
enskt bókhaldsforrit hjá umboðinu. Sími
umboðsaðila er: (91) 687971.
Amstrad. Með svart-hvítum sk.já kostar
20 mb tölva 67.900 kr. Vilji menn litaskjá
kostar hún 79.800 kr. í þessu verði er inni-
falið MS-DOS og Basic 2. Vinnsluminnið er
512 kb og skjárinn 14 tommu. Sími umboðs-
aðila: (91) 621122 og 29311.
Atlantis. Það góða við þessar tölvur er að
þær eru settar saman hérlendis, þ.e. ef
menn vilja „íslenskt". Verðið er einnig gott
Corona. PC-tölva, 20 mb með 521 kb
vinnsluminni og grafískum skjá kostar hjá
Microtölvunni 89.000 kr. Skjárinn er 14
tommur og innifalið í verði hvort heldur
grænn eða brúnn skjár. MS-DOS og Basic
fylgja með. Þessar tölvur hafa getið sér gott
orð, m.a. fyrir að vera hljóðlátar og með
góðum skjá. Sími umboðsaðila: (91)
688944.
Victor. Victor-tölvurnar eru komrar íram
með 30 mb hörðum diski og kosta ekki
meira en tölvurnar með 20 mb. Verðið er
92.900 kr. og innifalið er stýriforrit og Basic.
Hægt er að fá Victor með litaskjá og þá er
verðið 123.000 ki. Nefna má, að skjárinn á
Victor þykir hafa mun fínni upplausn en
aðrir skjáir á markaðnum í dag.
IBM. PC-tölva með 20 mb hörðum diski,
640 kb vinnsluminni, 360 kb disklingadrifi
og 12 tommu grænum skjá kostar hjá sölu-
aðilum 97.970 kr. Meðfylgjandi er DOS 3.2.
Greiða þarf aukalega fyrir forritið Basic kr.
2.725 og vilji fólk heldur brúnan skjá en
grænan kostar hann 7.000 kr. aukalega.
Wang. Fyrir 20 mb PC-tölvu með 512 kb
vinnsluminni greiðast kr. 134.000. Innifalið
er stýrikerfi, valmyndakcrfi og Wang-rit-
vinnsla. Menn geta valið um grænan skjá
eða brúnan og greiða ekki aukalega fyrir
brúnan skjá. Verðið er hátt miðað við það
sem gengur á markaðnum. Rök umboðs-
aðilans, Heimilistækja h.f., eru þau að mun-
urinn á Wang og öðrum tölvum sé eins og sá
hvort maður kaupir sér bfl með dekkjum
eða án - og benda þá á ritvinnslukerfið og
valmyndakerfið sem fylgja tölvunni. Nokk-
uð til í þessu, því öll kerfi eru dýr og vert að
hugsa sinn gang örlítið áður en lagt er í
kaupin. Sími umboðsaðila: (91) 27500.
Fleiri tölvur en þessar eru á markaðnum
og við viljum benda fólki á að hafa augu og
eyru opin. Af dæmunum hér að ofan má sjá
að mikil breidd ríkir í verði á PC-tölvum 20
mb — og eflaust í gæðum líka en á það er
ekki lagður dómur hér. Þetta fer einnig eftir
þeim kröfum sem hugsanlegur kaupandi
gerir, svo og þeirri notkun sem hann ætlar
sinni tölvu.
72