Þjóðlíf - 01.05.1987, Blaðsíða 59
I N N L E N T
Ungbarnanudd
Nýjung meðal
íslenskra mæðra
■SLENSKAR mæður ungbarna í Reykjavík
og nágrenni eiga þess nú kost að komast á
námskeið í ungbarnanuddi þar sem kennd
eru ævagömul handbrögð indverskra
mæðra. Fyrir námskeiðinu stendur Ragn-
heiður Þormar, en hún lærði ungbarnanudd í
Kaupmannahöfn og fannst tilvalið að breiða
út þá þekkingu meðal landsins kvenna.
Franski læknirinn Leboyer, sem þekktur
er m.a. fyrir frönsku fœðingaraðferðina,
flutti ungbarnanuddið heim með sér frá Ind-
■andi, en þar í landi hafa konur um langa
hríð örvað ung börn sín með nuddi og telst
þetta hluti af daglegri umhirðu ungbarna.
Leboyer gaf meira að segja út bók um þetta
sem á ensku kallast „Loving Hands". En
það er í gegnum Bandaríkin sem ungbarna-
nuddið fer nú sem eldur í sinu um vestur-
•önd. Þar byggði kona ein upp kennslupróg-
famm í ungbarnanuddi og er nuddið orðið
útbreitt þar í landi og er að skjóta rótum í
Evrópu.
Tilganginn með nuddinu segir Ragn-
heiður Þormar vera þann að stuðla að vellíð-
an barnanna. Nuddið sé bæði til líkamlegrar
uppbyggingar en kannski ekki síður til efl-
'ngar tengsla milli barns og foreldra - líkt
°germ.a. hliðarhlutverk brjóstagjafar. Hún
segir að 20 mínútna nudd á dag sé nægjan-
|egL þannig að stressaðir foreldrar með lít-
'nn tíma ættu ekki að láta það aftra sér frá
nuddinu. Þetta er, að sögn Ragnheiðar, af-
skaplega gott fyrir öll börn, en þó megi
henda á að magakveisubörn hafi einstaklega
gott af slíku nuddi svo og fyrirburðir. Nudd-
'ð geta foreldrar veitt börnum sínum fram
eftir öllum aldri og jafnvel hvort öðru, þótt
úlíkum aðferðum sé þá beitt.
Ragnheiður segist hvergi hafa auglýst ung-
harnanuddið en þó sé aðsóknin mikil. Hún
Segist hafa orðið vör við viðhorfsbreytingu
J^eðal foreldra á síðustu árum; foreldrar vilji
*eggja mikla rækt við börnin sín, sérstaklega
hpnur, en mikil útivinna hamli því og síðan
h'tt að lítið tillit er tekið til barna opinber-
lega, t.d. í sambandi við dagvistarheimili,
skipulag útivistarsvæða og varðandi skóla-
tlma. En í nuddinu hjá Ragnheiði geta mæð-
ungra barna a.m.k. fengið klukkutíma
hvfld frá daglegu amstri í rólegu og hlýlegu
npdrúmslofti þar sem allt miðast við þarfir
lns unga einstaklings.
" Eftir Aufti Styrkársdóttur
Kynntu þér APEX-fargjöldin
h innanlandsflugi Flugleida
hjá næstu söluskrifstofu fólagsins,
umboðsmanni
eöa ferðaskrifstofu.
FLUGLEIDIR
■ Ragnhei&ur Þormar lei&beinir. Linda Hannesdótt-
ir nuddar Jóhann Leó.
3 ■ ^ ^ r ferðir
naUfó|kÍMÓ1aít)ö|rnarðra
b^ð>. íjJ' J
uifl rflá nefn3’
m\^t£oí
FERÐA
SKRJFSTOFA
STUDENTA
HrtngbrauL síml 16850
Við erum ferðaskrifstofa allra
sem ekki vaða í peningum.
59
TlMABÆR