Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 55

Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 55
I N N L E N T Skólabörn í reiðuleysi Þjóðfélagsbreytingar kalla á breytt hlutverk skóla löngu liðin er sú tíð þegar börn ís- lands gátu gengið að móður sinni vísri í eldhúsinu lungann úr deginum. Nú koma skólabörn velflest heim í tómt hús að skóla loknum og oftar en ekki verða þau að bjarga sér sjálf. f flestum þeim ríkjum sem við viljum bera okkur saman við er skólastarf rekið á öðrum grundvelli en hér, eins og bent er á í OECD- skýrslunni um skólamál á íslandi. Höfundar skýrslunnar segja m.a. að það sæti furðu hve stuttur skóladagurinn og skólaárið séu hér á landi, einkum þegar tekið er mið af því að ísland er rekið m.a. með vinnuafli kvenna eins og títt er um vestræn nútímasamfélög. Skólar landsins hafi að óverulegu leyti kom- 'ð til móts við þjóðfélagsbreytingar undan- farinna áratuga. Nokkrir skólar hafa reynt að svara kröf- "m um lengri skóladag, þannig að foreldrar geti verið nokkurn veginn öruggir um líðan barna sinna meðan þeir eru í vinnu. Lengst hafa þó skólayfirvöld í Hafnarfirdi gengið í þessa átt. Nú eftir áramótin var æskulýðs- °g tómstundamiðstöðin við Flatahraun tekin að hluta undir athvarf fyrir hafnfirsk skólabörn á aldrinum 7-11 ára. Þarna geta þau dvalið fyrir eða eftir skóla, 4-5 tíma á dag, undir öruggri handleiðslu og gæslu Malinar Sveinsdóttur uppeldisfulltrúa og Guðmundar B. Guðmundssonar. Fyrir þetta greiða foreldrar barnanna 2.500 krón- ur á mánuði. Þau Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, og Árni Guðrnundsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi, sögðu ÞJÓÐLÍFI að vfða í Skandinavíu væru ®skulýðsheimili nýtt undir starfsemi af Þessu tagi á daginn, því yfirleitt stæðu slík heimili ónotuð nema á kvöldin. Jóna Ósk Sagði að oft hefði verið rætt um vanda skóla- harna í bæjarstjórninni, en engin lausn hefði fundist á málinu þar sem skólastjórar teldu skóla mjög ásetna og erfitt um vik að bæta v'ö skóladaginn í skólunum sjálfum. Árna hefði dottið þessi lausn í hug, og hún hefði gefist mjög vel. „Þjóðfélagið byggist allt á Pví að báðir foreldrar vinni utan heimilis," sagði hún, „en í reynd viðurkennir þjóðfé- 'agið það alls ekki. Vinnutími fólks er oft ^Jög langur vegna lágra launa, dagvistar- Peiniili eru aðeins fyrir forgangshópa og skólakerfið tekur lítið sem ekkert mið af Pessum þjóðfélagsbreytingum. Auðvitað Verða allir ábyrgir aðilar að fara að huga r<ekilega að þessum málum ef ekki á að fara illa fyrir yngstu kynslóðum þessa lands. Sú lausn sem Árni fann hér fyrir Hafnfirðinga er að mínu mati ákjósanleg - en auðvitað væri best að hafa slíka starfsemi innan skólanna.“ Og það eru einmitt til nokkrir skólar á höfuðborgarsvæðinu sem hafa slíka starf- semi innan sinna veggja. í Kópavogi tekur slík starfsemi reyndar aðeins til sex ára barna, sem geta verið í skóla sínum fimm klukkutíma dag hvern í stað IV2-2V2 sem er algengur viðverutími sex ára barna. Fyrir aukatímana greiða foreldrar 1.000 krónur á mánuði. Til stendur að taka upp sama fyrir- komulag fyrir sjö ára börn næsta haust. Skóli ísaks Jónssonar hýsir nemendur á aldrinum 5-9 ára. Síðasta vetur var tekið upp það fyrirkomulag að börnin geta mætt í skólann kl. 8.30 og verið til kl. 1 eða mætt kl. 1 og verið til kl. 5.30. Eftir viðverutíma í skólastofum fara þau í aðrar stofur þar sem þrír kennarar taka á móti þeim og skipu- leggja með þeim starf. Fyrir aukatímana greiða foreldrar 850 krónur á mánuði og að auki greiða þeir 1.000 krónur í upphafi skólaárs til kaupa á bókum og leikföngum. Að sögn Sonju Backman, ritara skólastjóra, mælist þessi tilhögun mjög vel fyrir. Hún hafi verið tekin upp vegna fyrirspurna frá foreldrum og eftir að skólastjórn hafði kannað eftirspurnina meðal foreldra var af- ráðið að taka upp þessa þjónustu þrátt fyrir mjög þröng húsakynni. Með góðum vilja allra aðila bjargast þessi mál þó vel. Grandaskóli er nýr skóli í höfuðborginni og enn sem komið er hýsir hann aðeins nemendur upp að 10 ára bekk. Kristjana Kristjánsdóttir er þar skólastjóri og hún sagði okkur að sér fyndist nauðsynlegt að bæta við skólatíma barna og að þetta væri að sínu mati sú stefna sem allir skólar yrðu að taka. Hún sagði einnig, að foreldrar væru margir hverjir mjög áhyggjufullir og skóla- stjórar almennt fyndu fyrir miklum þrýstingi í þá átt að hýsa börnin lengur í skólum en nú er almennt gert. Börnin í Grandaskóla geta átt viðveru í skólanum ýmist frá kl. 8-1 eða frá 12-5. Eftir skólatímana fara þau yfir í félagsmiðstöðina í Frostaskjóli þar sem þau eru við leiki og störf undir leiðsögn tveggja fullorðinna. Ef foreldrar nýta sér fulla viðveru greiða þeir 1.200 krónur á mánuði, en fyrir hálfa við- veru 600 krónur. Skólastjórinn kvað að- sóknina mjög mikla en skólinn hefði þó enn sem komið er getað annað eftirspurn. Frostaskóli er einnig nýr skóli og þar er Arnfinnur Jónsson skólastjóri. í þeim skóla hefur ákveðið rými í skólanum verið tekið undir viðveru barna eftir skólatíma og þar dvelja tveir fullorðnir með þeim. Börnin í Grafarvoginum á aldrinum 6-9 ára geta ver- ið mun lengur í skólanum sínum en annars staðar tíðkast í Reykjavík, því þau geta dvalið í þessu athvarfi annað hvort fyrir eða eftir skóla. Fyrir nokkrum árum datt þáverandi for- stöðumanni félagsmiðstöðvarinnar Ársels í Árbænum, Valgeiri Guðjónssyni, í hug að opna athvarf í félagsmiðstöðinni fyrir skóla- börn í Árbænum. Börnin í hverfinu geta komið í miðstöðina og dvalið þar 4-5 klst. á dag, fyrir eða eftir skólatíma. Foreldrar innrita börnin sín í þessa starfsemi og greiða 2.300 krónur á mánuði. Börnin hafa með sér nesti en geta einnig keypt máltíð í fé- lagsmiðstöðinni. Anna H. Dyrset, mynd- menntakennari, hefur yfirumsjón með þessu starfi og hefur tvær konur sér til að- stoðar. Hún sagði að mikið og gott samband væri milli félagsmiðstöðvarinnar og skóla í hverfinu og lagði ríka áherslu á, að ekki væri litið á þessa aðstöðu sem geymslu fyrir börn- in heldur færi þarna fram markvisst uppeld- isstarf. Aðsóknin í þetta er mikil af hálfu foreldra og í vetur hefur verið fullbókað eftir hádegið. ÞJÓÐLIF fann ekki fleiri skóla á höfuð- borgarsvæðinu sem buðu upp á þjónustu af þessu tagi — þjónustu sem í velflestum menningarsamfélögum telst þó sjálfsögð. Skólastjórar sem rætt var við fundu flestir þessari starfsemi margt til foráttu og báru við tví- og þrísetnum skólum og að þessi starfsemi myndi raska öllu skólastarfi. Sum- ir skólastjórar eru þó tilbúnir til þess að leggja þetta á sig, sbr. dæmin hér að ofan - skólastjórar sem búa við síst minni þrengsli og álag en gengur og gerist. Það virðist því fara eftir vilja hvers og eins skólastjóra hvort börn landsins alast upp á götunni. ■ Eftir Aufti Styrkársdóttur 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.