Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 68

Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 68
VIÐSKIPTI O G FJÁRMÁL Flotinn á ríkisstyrk Kaupskipaútgerð í kröggum EFTIR ÖRFÁ ár renna út samningar milli Bandaríkjastjórnar og flestra stærstu skipa- félaganna þar í landi um ríkisstyrk sem nam á síðasta ári fjórum milljörðum króna. Kaupskipaútgerð í Bandaríkjunum hefur átt í erfiðleikum sem marka má af því að gáma- skipum sem þótt hafa aukið hagkvæmni í skipaflutningum, hefur fækkað um helming á sl. fimm árum frá því sem flest var og stærsta skipafélag landsins, U.S. Lines, varð gjaldþrota í nóvember í fyrra. Eins og kunn- ugt er hanga ríkisstyrkir til bandaríska kaupskipaflotans saman við hugmyndir manna um þjóðaröryggi, ekki ósvipað við- horf og gætt hefur í flugmálum hér á landi. Reaganstjórnin hefur lýst áhuga á að eyða öllum ríkisstyrkjum, en talið er að óttinn við hnignun kaupaskipaútgerðar í kjölfar þess, stefni öryggi landsins í hættu en Bandaríkja- her reiðir sig á kaupskipaflotann til að flytja 95% af öllum birgðum hans á stríðstímum. Uppakaffí Bætt ímynd kaffidrykkjumannsins MAXWELL HOUSE er sú deild í fyrirtæk- inu bandaríska General Foods sem fram- leiðir og selur kaffi. Markaðsrannsóknir deildarinnar sýndu að meginþorri kaupenda var yfir fertugu og að ungt fólk hafði meiri áhuga á öðrum drykkjum en kaffi. Ungt fólk sá hinn hefðbundna kaffidrykkjumann fyrir sér sem eldri, taugaveiklaðan reykinga- mann, og að þeir sem ekki drykkju kaffi væru athafnasamir, kynþokkafullir og al- mennt hressir og kátir. f ljósi þessarar heldur dapurlegu útkomu hóf fyrirtækið herferð sem átti að bæta ímynd kaffidrykkjumannsins. í auglýsinga- herferð sem fylgdi í kjölfarið lagði fyrirtæk- ið áherslu á gæðakaffi fyrir þá sem kynnu að meta raunveuleg lífsgæði, og hefðu efni á að borga meira. Kostnaðurinn við kynningu og auglýsingar er áætlaður um 800 milljónir króna. Herferðin er nýhafin en eftir á að koma í Ijós hvort upparnir taka við sér. Aðgöngumiðar til Ameríku Nýstárleg hugmynd frjálshyggjumanns! EIN AF NÝJUSTU hugmyndum frjáls- hyggjumanna kemur frá Gary S. Becker, prófessor í hagfræði og félagsfræði við Chi- cago-háskóla. Hún er sú að selja aðgang að Bandaríkjunum. Eins og allir vita er afar erfitt að fá leyfi til að gerast innflytjandi til Bandaríkjanna. Um 500 þúsund ríkisborg- araréttindi voru veitt á síðasta ári, en millj- ónir sóttu um. Becker telur, að þar sem eftirspurnin eftir ríkisborgararéttindum sé mun meiri en framboð eigi að láta markaðs- lögmálunum það eftir að jafna þennan mun. Hann leggur til að ríkisborgararéttindi verði seld á tvær milljónir króna stykkið og reiknar með að um 40 þúsund manns muni festa kaup á einum slíkum, eða u.þ.b. 10% þeirra sem nú öðlast slíkan rétt eftir hefð- bundnum leiðum. Þannig myndi ríkið hala inn tæplega hundrað milljarða á ári. Þetta myndi ennfremur draga úr fjölda þeirra innflytjenda sem lentu á sveitinni. 68

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.