Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 70

Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 70
TÆKNI O G VÍSINDI Heitur heimur Ósonlagið þynnist, hitastig hækkar ÁRIÐ 2037 E. KR. Borgaryfirvöld í París og Fíladelfíu hafa gefið út viðvörun um yfirvofandi flóðahættu. Vatnsyfirborðið á götum New York borgar er 1 meter og einnig í Kvos Reykjavíkur. Flestir íbúar nærliggjandi húsa hafa yfirgefið heimili sín. Tíunda árið í röð hafa húðkrabbameinstilfelli margfaldast um allan heim og eru komin í 500 milljónir. Purrkar hafa eyðilagt uppskeru í Mið-vesturríkjum Bandaríkjanna og á Krímskaga enn eitt árið í röð. Rækjur og krabbi hafa horfið af hefðbundnum miðum. Góðu fréttirnar eru þessar. Á íslandi liggur fólk í sólbaði í september og túrisminn blómstrar á norðurslóðum. Og Síbería er orðin aðal- kornforðabúr veraldar! Eitthvað á þessa leið kynnti bandaríska stórtímaritið Time þær ógnvænlegu fréttir sem berast nú um heimsbyggðina frá mörgum helstu vísindamönnum heims. Þannig gœti veröldin litið út eftir fimmtíu ár ef stór skref eru ekki tekin nú þegar til að draga úr stórfelldri notkun klórflúorkarbónata - efna sem maðurinn hefur fundið upp. Þessi efni eru að ganga á ósonlag jarðarinnar, en það lag dregur úr áhrifum útfjólublárra geisla sólarinnar. Notkun þessara efna ásamt því að maðurinn framleiðir allverulegt magn af karbondíoxíði hefur komið af stað hættulegri þróun; þessi þróun hefur á máli vísindamanna hlotið heitið „gróðurhúsaáhrif" — og hún gæti hækkað meðalhitastig jarðarinnar allverulega. GÖT Á ÓSONLAGIÐ. Árið 1985 komust vísindamenn að því, að göt voru komin í ósonlagið yfir Norðurheimskautinu og virðast þau myndast árlega í september og október. Þá minnkar óson- lagið á þessum stöðum um heil 40 prósent. Og á síðasta ári varð vart við samskonar fyrirbæri á ósonlaginu yfir Spitsbergen í Nor- egi. Margar skýringar hafa verið nefndar á þessu fyrirbæri, m.a. vindáttir á þessum stöðum og áhrif sólardepla. En spjótin beinast samt í síauknum mæli að notkun klórflúorkarbónata. Ef svo heldur áfram sem horfir mun draga verulega úr vörn okkar gegn útfjólublárri geislun, en sú geislun er talin orsök margra tegunda húðkrabbameina. Þetta mun einnig valda því að lífkeðja sjávarins raskast og uppskera stórminnka á mörgum fæðutegundum, einkum sojabaunum og káli. Verksmiðjureykur- inn víða um lönd mun stóraukast. Næstu fimmtíu árin mun meðalhitastig jarðar hækka um 1.5 til 4.5 gráður á Celsíus. ísinn á bæði Norður og Suðurskauti mun byrja að bráðna og yfirborð sjávar hækka um hálfan til einn og hálfan meter. Stöku sinnum mun flæða inn í borgir sem byggðar eru við sjóinn. Landsvæði sem nú eru í góðri rækt munu breytast í skrælnaðar auðnir og svæði sem hingað til hefur ekki verið hægt að rækta á norðurslóðum munu gefa af sér góða uppskeru. HAGSMUNIR STÓRFYRIRTÆKJA. Áhrif klórflúorkarbón- ata urðu raunar fyrst kunn árið 1974 er tveir vísindamenn við Kaliforníuháskóla birtu niðurstöður rannsókna sinna. Þeir kom- ust að því að efnin brotna ekki niður heldur svífa upp í háloftin. Þar koma þau af stað flóknu efnaferli sem geta brotið niður ósonlagið. Þegar þessar niðurstöður urðu kunnar fóru umhverfis- verndarsinnar í Bandaríkjunum af stað. Herferð var farin gegn notkun hverskyns spreybrúsa, en í þeim eru þessi efni einmitt notuð. Efnin eru einnig notuð í ísskápum og kælikerfum bifreiða. 70
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.