Frjáls verslun - 01.05.2012, Síða 6
6 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Við bjóðum
fyrirtækjum
sérþekkingu
Okkar vinna snýst um að þín vinna gangi vel. Við leggjum okkur fram um að
setja okkur vel inn í það sem þú ert að gera, og þó að við þekkjum kannski ekki
viðfangsefnin í þínu starfi jafn vel og þú, þá vitum við hvað starfið gengur út á.
Starfsfólk Íslandsbanka býr yfir áratuga reynslu í þjónustu við sjávar útveginn
og hjá bankanum starfar stór hópur fólks með sérþekkingu á greininni. Þannig
getum við ávallt tryggt fyrirtækjum í þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðar
innar þá bankaþjónustu sem hún þarfnast.
Þekking sprettur af áhuga.
Hallgrímur Magnús Sigurjónsson hefur
yfir 30 ára reynslu af sjávarútvegi og
fjármögnun fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi.
Hallgrímur Magnús er útibússtjóri hjá
Íslandsbanka á Ísafirði.
leIðArI
rið 2007 hefur fengið ákveðinn sess í
íslenskri hagsögu. „Þetta er svo mikið
2007“ merkir í huga fólks einhvers
konar geggjun þegar hagkerfið var
drifið áfram af erlendu lánsfé, verð
hlutabréfa náði hæstu hæðum og
Íslendingar lifðu í lífsins lystisemdum
og voru stórhuga í eyðslu og alls kyns fjárfestingum;
samanber húsnæði og íburðarmikla sumarbústaði. Í
golfi voru teiggjafir fyrir tækja á boðsmótum svo glæsi
legar að undrum sætti. Þegar leið á árið 2008 kom
stóri skellurinn; útbólgnir af erlendu lánsfé hrundu
bankarnir og flest stærstu fyrir tækin í kjölfarið. Eftir
margra ára hagvöxt stóð atvinnu lífið allt í einu uppi
stórskuldugt eftir að æði hafði runn ið á bankana við að
skipta um eigendur að flestum fyrirtækjum landsins.
En er 2007 komið aftur? Ekki er hægt að halda því
fram. Eflaust viljum við heldur ekki 2007 aftur með
þeirri ímynd geggjunar sem það ár hafði á sér þótt
við sækj umst auðvitað eftir þeirri landsframleiðslu
sem þá var og gott betur. Einhver kynni að segja að
núna væri frekar 2006 á mælikvarða landsframleiðslu
þótt það glitti í 2007eyðslusamfélagið. Stórir jeppar
með enn stærri hjólhýsi í eftirdragi sjást á vegum
lands ins – farartæki sem fengu um tíma viðurnefnið
skulda hali. Utanlandsferðir seljast betur en áður. Sala
á íbúðum hefur mjakast upp. Allt þetta gerist eftir að
nýju bankarnir eru búnir að afskrifa hundruð milljarða
króna hjá stórfyrirtækjum og heimilum og erlendir
kröfu hafar hafa afskrifað líklegast um sex þúsund
millj arða vegna gömlu bankanna.
Frjáls verslun helgaði fyrsta tölublað þessa árs þeirri
spurningu hvort kreppan væri búin og komst að því
að svo væri ekki – en það hefðu orðið umskipti og við
mjökuðumst upp frá botninum eftir að um 3% hag
vöxt ur hefði orðið á árinu 2011. Samkvæmt ströng
ustu skilgreiningu hagfræðinnar er kreppa sögð búin
ef hagvöxtur mælist tvo ársfjórðunga í röð. Það er
þröng nærmynd. Stóra myndin er að við erum enn
í öldu daln um. Á mælikvarða atvinnuleysis er enn
kreppa. Hag stofan mælir yfir 8% atvinnuleysi og spáir
miklu atvinnu leysi næstu fjögur árin, eða til ársins
2016. Það vantar um 8% hagvöxt til að þjóðarkakan
nái sömu stærð og hún var í skömmu fyrir hrun.
Vísitala kaupmáttar ráð stöfunartekna, sem er mun
betri mælikvarði á kjör en vísitala kaupmáttar launa,
sýnir 16,4% rýrnun árið 2009 og 12,6% rýrnun árið
2010. Fólksflótti frá hruni er sá mesti í heila öld og
gott vinnuafl er dýrmætur fram leiðsluþáttur. Myndin
verður skuggalegri þegar horft er á hlutfall fjárfestinga
af landsframleiðslu. Það er aðeins um 13% og hefur
aldrei verið eins lítið. Þetta er hættulegt vegna þess að
hagvöxtur á Íslandi hefur ævinlega verið drifinn áfram
af fjárfestingu og útflutningi. Ofan á bætist að hagkerfi
heimsins spóla vegna minni eftirspurnar í heim in
um og Evrópa er að kikna undan skuldakreppu sem
dregur mjög úr hagvexti þar á bæ.
Nýlega gaf Fjármálaeftirlitið út skýrslu um stöðu
líf eyris sjóða á Íslandi. Fram kemur að fyrir hrunið 2008
áttu flestir almennir lífeyrissjóðir fyrir skuldbindingum
en hrunið breytti því. Núna er staða sjóðanna neikvæð
um 550 milljarða króna. Hjá sjóðum starfsmanna ríkis
og sveitarfélaga vantar yfir 400 milljarða króna upp á
að endar nái saman. Verði ekkert að gert þarf ríkið að
borga aukalega milli 15 og 20 milljarða króna á ári eftir
rúman áratug þegar núverandi sjóðir tæmast. Þetta er
snjóhengjan sem hvílir yfir ríkissjóði og gerir allt tal
um árangur við rekstur ríkissjóðs léttvægari.
Landsframleiðslan óx á árinu 2011 og heldur áfram
að mjakast upp. Atvinnulífið er þó miklu veikara en
það þyrfti að vera. Í rauninni er stórmerkilegt að orðið
hafi uppgangur þrátt fyrir stöðugar ógnanir í garð at
vinnu lífsins og bremsur stjórnvalda. Steingrímur J.
Sigfússon, sem sölsar hvert ráðuneytið undir sig af
öðru, ber sér á brjóst um að hann hafi bjargað Íslandi
út úr kreppunni. Er það svo? Hvað hefur Stein
grímur J. í raun gert? Hann hefur hækkað skatta, gert
skattkerfið mjög flókið, ráðist á sjávarútveginn og
er haldinn efnahagslegri mið stýringaráráttu gamals
kommúnista. Hann býr til vinnuletjandi umhverfi í
stað vinnuhvetjandi. Afskriftir banka hjá fyrirtækjum
og einstaklingum eru ekki honum að þakka heldur
neyðarlögunum sem létu erlenda lán veitendur bera
ábyrgð á eigin gjörðum. Steingrímur telur að hægt
sé að stórauka hagvöxt með því að hækka skatta og
taka fé af atvinnulífinu til að bora göng hér og þar um
landið í stað þess að skera niður á fjárlögum og draga
úr ríkisútgjöldum.
Það væri hægt að gera svo miklu betur við að byggja upp sterkt atvinnulíf á Íslandi og jafnvel ná árlegum hag vexti upp á um 4% næstu árin.
Við höfum hins vegar valið leið veiks atvinnulífs, sem
skilar varla meiri hagvexti en á bilinu 1 til 2% á ári. Það
er undarlegt að finna það út að besta efnahagsúrræðið
sé að hækka skatta og bremsa atvinnulífið af. Það
heit ir að rífa sig upp á hárinu og kallast Munkhásen
að ferðin. Raunverulegur árangur í efnahagsmálum er
ekki sá sem næst heldur sá sem hægt væri að ná – ef
stjórnvöld stæðu rétt að málum.
Við erum enn í öldudalnum og það er hægur upp
gang ur. Landsframleiðsla ársins 2007 næst væntanlega
á næstu árum ef ekki verður stóráfall í Evrópu. Óskin
er sterkt atvinnulíf vegna þess að það er eina undir staða
vel megunar. Fæstir vilja geggjunina frá 2007 þótt margt
bendi til að ýmsir sakni glyss og glam úrs þess tíma.
Er 2007 komið aftur?
Jón G. Hauksson
Raunveru-
legur árangur
í efnahags-
málum er
ekki sá sem
næst heldur
sá sem hægt
væri að ná.