Frjáls verslun - 01.05.2012, Qupperneq 8
8 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Í stuttu máli
SpENNA í LOFTI:
WoW sakar
iceland express um njósnir
WOW Air sakar Pálma Haraldsson, eiganda Iceland Express og félag hans um viðskipta njósnir
og vill að lögreglan rannsaki málið. Iceland Express neitar sök og segist telja út úr vélum WOW
og furðulegt sé að segja að þeir hleri eigin Tetra-rás.
Það er spenna í lofti á milli flugfélaganna Iceland Ex-press og WOW Air. Þessi spenna komst þó á nýtt stig þegar fréttir bárust um
að Pálmi Haraldsson, eigandi Iceland
Express, hefði verið sakaður um við
skipta njósnir og að hafa látið hlera
fjar skipti WOW Air. Í frétt Morgunblaðs
ins af málinu sagði að Björn Vilberg
Jónsson, rekstrarstjóri Iceland Express,
hefði viðurkennt þetta fyrir starfsmanni
Isavia og í framhaldinu hefðu WOW Air
og Keflavík Flight Services (KFS) kært
þá Pálma og Björn Vilberg til lögreglu og
vildu að hún hæfi opinbera rannsókn á
málinu.
Það er sitthvað að kæra eða vera
ákærður eftir rannsókn. Það er allsend is
óvíst hvað kemur út úr slíkri lög reglu
rann sókn.
Ekki stóð á hörðum viðbrögðum Ice-
land Express við þessum fréttaflutningi
og hélt félagið blaðamannafund þar sem
því var lýst yfir að það væri sérkennilegt
að bera það á borð að Iceland Express,
sem ætti Tetrarásina hjá Neyðarlínunni
og KFS hefði haft aðgang að henni, væri
að hlera eigin rás.
„Við höfum lokað aðgengi KFS að
þess ari Tetrarás okkar og þjónustuaðili
WOW Air á Keflavíkurflugvelli getur því
ekki lengur notað samskiptarás Iceland
Express,“ sagði Heimir Már Pétursson,
upplýsingafulltrúi Iceland Express, á
blaðamannafundinum.
Á fundinum sagði Skarphéðinn B. Steinarsson, forstjóri Iceland Ex-
press, að fyrirtækið teldi farþega út úr
vélum WOW og annarra flugfélaga, þó
ekki Ice landair þar sem þær tölur lægju
allar fyrir og auðvelt væri að nálgast þær.
„Með því að finna út farþegafjöldann
áttum við okkur á hvernig samkeppnin
liggur, þetta gerum við ekki einungis hjá
WOW heldur öllum þeim flugfélögum þar
sem þetta liggur ekki fyrir.“
Pálma Haraldsson, eigandi Iceland Express.
Júlí er bjórmánuðurinn á Íslandi og miðað við veðurfarið að undanförnu er líklegt að þessi mánuður verði með
þeim bestu í sölu. Íslendingar drekka að
jafnaði 76 þúsund lítra af bjór dag í júlí. Það
er því skolað úr nokkrum glösum.
Um 13% af sölu bjórs í vínbúðum ÁTVR
fer fram í júlí en sá mánuður sem kemur
næstur í sölu bjórs er desember; sjálfur
jólamánuðurinn. Þessir tveir mánuðir skera
sig úr í sölu. Í fyrra seldu vínbúðir ÁTVR um
14,4 milljónir lítra af bjór á öllu árinu og þar
af um 1,8 milljónir lítra í júlí. Barir og veit
ingahús eru með 20% af bjórsölunni þannig
að heildarsalan af bjór í júlí í fyrra var 2,3
milljónir lítra eða 76 þúsund lítrar á dag.
júlÍ er bjórmánuðurinn
Íslendingar drekka 76 þúsund líta af bjór á dag í júlí.