Frjáls verslun - 01.05.2012, Síða 22
22 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
borgir byggjast upp
Í kringum flugVelli
þRÓUN BORGA:
F
lug og flugrekstur skapa störf
– og þá ekki síður flug vellir.
Í nýlegri skýrslu Hag fræði
stofnunar kom í ljós að allt
að fjórðung starfa á Suður
nesjunum er hægt að rekja til Kefla
víkur flugvallar sem sýnir vel þau miklu
efna hagslegu áhrif sem hann hefur á sitt
nán asta umhverfi.
Keflavíkurflugvöllurinn er einnig í
örum vexti. Farþegaaukningin þar á síð
asta ári var um 18% og veltan í Frí höfn
inni jókst um tæp 20% á milli áranna 2010
og 2011. Samkvæmt nýútkominni skýrslu
Oxford Economics er þjóðhagslegt
mikil vægi flugstarfsemi nær hvergi
í heim inum meira en á Íslandi. Árið
2010 stóð flugrekstur undir 6,6% af
lands framleiðslu og 5,5% af vinnuafli
lands ins. Í nágrannalöndum okkar eru
sambærilegar tölur 2,6% af lands fram
leiðslu í Noregi, 3,9% í Svíþjóð og 2,3% í
Danmörku.
Ef við bætum við framlagi til ferða þjón
ustu þá hækkar talan á Íslandi í 12,9%
af landsframleiðslu og 12,3% af heildar
vinnuafli landsins.
Þessi vöxtur og þetta efnahagslega
mikilvægi flugs vekur spurningar um
framtíðarþróun höfuðborgarsvæðisins
á Íslandi. Mun byggðin halda áfram að
færa sig í norður og austur frá Reykjavík,
í burtu frá flugvellinum, eða mun hún
þróast í átt að flugvellinum sem dregur
til sín fyrirtæki og fólk í kjölfarið?
Stærsta einkaframkvæmd í heiminum
í dag er ekki í Bandaríkjunum, Evrópu
eða Abu Dhabi heldur í SuðurKóreu.
Verkefnið, Songdo International Business
district (eða New Songdo), kostar um
35 milljarða dollara og er hugsað sem
fyrirmynd að borg framtíðarinnar. Þar er
þegar búið að byggja 100 byggingar sem
eru samtals yfir 2,3 milljónir fermetra.
Framkvæmdir hófust árið 2005. Þúsundir
byggingarverkamanna vinna hörðum
höndum að því að reisa 200 byggingar
til viðbótar sem eru samtals 1,4 milljónir
fermetra.
Hugmyndasmiðir verkefnisins lögðu af
stað með draum um borg framtíðarinnar
hvað varðar sjálfbærni, upplýsingatækni
og samgöngur. Þeir vildu þó ekki
byrja frá grunni og tóku því að láni vel
heppn aðar hugmyndir úr nokkrum af
skemmtilegustu borgum Vesturlanda.
Þannig mun borgin New Songdo búa yfir
almenningsgarði í ætt við Central Park,
síki að hætti Feneyja og breiðgötu í líki
ChampsÉlyssées.
Fjöldi sambærilegra verkefna er í gangi
víða um heim þar sem byggð eru upp
heilu hverfin í kringum flugvelli undir
heitinu flugborgir (Aerotropolis). Þetta er
nýjasti kaflinn í þróun borga sem hefur
verið á þessa leið: Borgir byggja upp
flugvelli, íbúar kvarta yfir flugvellinum
og berjast fyrir flutningi hans og flug
völlurinn er fluttur í burtu. Það sem
gerist næst kemur kannski á óvart miðað
við það sem á undan gekk: Borgin færir
sig til hins brottflutta flugvallar.
Flugvellir eru samgöngumiðstöðvar
nútímans. Borgir hafa ávallt byggst upp
í kringum auðlindir eða samgöngu
teng ingar. Fyrst byggðust borgir upp í
kringum fljót, svo hafnir, lestarstöðvar,
hraðbrautir og nú flugvelli.
John Kasarda, kennari við NorðurKaró
línuháskóla, hefur haldið því fram að
flugvellir séu ekki einungis stoðþjónusta
við borgir heldur geti þeir verið segull
sem dregur að sér fjárfestingu. Kasarda
vakti fyrst almenna athygli þegar tíma
ritið Fast Company fjallaði um hann og
hugmyndafræði hans árið 2006.
* Flugvellir skapa störf.
* Fjórðung starfa á Suðurnesjunum má rekja til
Keflavíkurflugvallar.
* Stærsta einkaframkvæmd í heiminum í dag er
„flugborgin“ New Songdo í Kóreu.
* Flugrekstur á Íslandi stendur undir 6,6% af
landsframleiðslu.
Í stuttu máli
Óli Örn Eiríksson.
FLUgvALLAborgir
Borgir byggja upp
flug velli, íbúar kvarta
yfir flugvellinum og
berjast fyrir flutningi
hans og flugvöllurinn
er fluttur í burtu. Það
sem gerist næst kemur
kannski á óvart miðað
við það sem á undan
gekk: Borgin færir
sig til hins brottflutta
flug vallar.
Landsbankinn
hjálpar fyrirtæki
þínu að vaxa
Landsbankinn 410 4000landsbankinn.is
Landsbankinn veitir fyrirtækjum víðtæka þjónustu og ráðgjöf um allt
land. Hjá okkur geta stærstu fyrirtæki landsins jafnt sem þau smæstu
fengið alhliða fjármálaþjónustu og greiðan aðgang að faglegri ráðgjöf.
Þarfir fyrirtækja breytast og þróast með tímanum.
Landsbankinn getur veitt þínu fyrirtæki alhliða
fjármálaþjónustu og hjálpað því að takast á við ný
verkefni og breytilegar aðstæður.
Hvort sem það er fjármögnun, ávöxtun lausafjár,
fjölbreyttar kortalausnir eða metnaðarfullur
netbanki beintengdur við bókhald, þá er
Landsbankinn til þjónustu reiðubúinn.