Frjáls verslun - 01.05.2012, Side 24
24 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Í stuttu máli
sannleiks-
og sáttadóm-
stóll
þJÓÐMÁL:
E
nginn ærlegur Íslendingur
vill að hrunið gleymist
og sársaukinn sem fylgdi
hruninu er svo alvarlegur
fyrir marga einstaklinga og
fyrirtæki, að nauðsynlegt er að komast
að sannleikanum um hvað gerðist hér á
landi í raun og veru. Nauðsynlegt er að
ljúka málinu sómasamlega, réttlátlega
og ná sátt með þjóðinni, öðruvísi er
erfitt að halda áfram á þeirri löngu og
flóknu vegferð sem við höfum fyrir
hönd um. Landsdómur hefur leitt í ljós
yfir gripsmikla samskiptaörðugleika
íslenskra embættismanna og vanhæfni í
mörgum tilvikum. Víða er pottur brotinn
í íslenskri stjórnsýslu, sem verður að
laga. Stjórnmálahreyfingin Hægri grænir,
flokk ur fólksins vill setja á stofn fimmtán
manna sannleiks og sáttadómstól sem
myndi skoða alla hrunsöguna til dagsins
í dag. Margir telja að siðbresturinn hafi
byrjað með gjaldþroti Sambandsins,
því í kjölfar þess myndaðist tómarúm
á eignarhaldi á nokkrum mikilvægum
fyrir tækjum tengdum Sambandinu og
inn í þetta tómarúm gengu ýmsir og
hirtu félögin. Einkavæðing bankanna
upp úr aldamótum hefur verið umdeild,
svo og endurreisn þeirra eftir hrun. Ekki
á að setja sannleiks og sáttadómstólinn
á laggirnar til þess að dæma menn til
þungra refsinga eða fangelsisvistar held
ur til að þjóðin sameinist um heiðar
legt verklag sem við viljum hafa með
okk ur inn í framtíðina, sem er bjartari en
margan grunar. Ekki er verið að álykta
með þessu að sekir eigi að sleppa við
refsingu. Sérstakur saksóknari er að
vinna sína vinnu gaumgæfilega og lýkur
henni á næstu misserum. Dómstólar taka
svo við þessum málum og skera úr um
sekt eða sakleysi manna.
AlþINGI steNDUr sIG ekkI
Þessi sannleiks og sáttadómstóll ætti að
byrja á því að rannsaka hvort Alþingi
hafi uppfyllt ályktun Alþingis við skýrslu
rann sóknarnefndar Alþingis, því öðruvísi
næst ekki sátt í þjóðfélaginu. Aþingi Ís
lendinga samþykkti með 63 atkvæðum
gegn engu þingsályktun um viðbrögð
Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis 2010. Þar segir:
• Alþingi ályktar að skýrsla rann
sóknar nefndar Alþingis sé
vitni s burður um þróun íslensks
efna hagslífs og samfélags undan
geng inna ára og telur mikilvægt að
skýrslan verði höfð að leiðarljósi í
fram tíðinni.
• Alþingi ályktar að brýnt sé að
starfshættir þingsins verði teknir
til endurskoðunar. Mikilvægt sé að
Alþingi verji og styrki sjálfstæði sitt
og grundvallarhlutverk.
• Alþingi ályktar að taka verði
gagn rýni á íslenska stjórnmála
menn ingu alvarlega og leggur
áherslu á að af henni verði dreginn
lær dómur.
• Alþingi ályktar að skýrsla rann
sóknarnefndar Alþingis sé áfellis
dómur yfir stjórnvöldum, stjórn
málamönnum og stjórnsýslu,
verk lagi og skorti á formfestu.
• Alþingi ályktar að stjórnendur og
helstu eigendur fjármálafyrirtækja
á Íslandi beri mesta ábyrgð á
banka hruninu.
• Alþingi ályktar að eftirlitsstofnanir
hafi brugðist.
Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, flokks fólksins, segir að flokk ur-
inn vilji setja á stofn fimmtán manna sannleiks- og sáttadómstól sem myndi skoða alla
hrunsög una til dagsins í dag. Hann segir að margir telji að siðbresturinn hafa byrjað með
gjaldþroti Sambandsins.
TexTi: guðMundur franklín jónsson.
Mynd: geir ólafsson.
Guðmundur Franklín Jónsson, viðskiptafræðingur og formaður
Hægri grænna, flokks fólksins.