Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 24

Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 24
24 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 Í stuttu máli sannleiks- og sáttadóm- stóll þJÓÐMÁL: E nginn ærlegur Íslendingur vill að hrunið gleymist og sársaukinn sem fylgdi hruninu er svo alvarlegur fyrir marga einstaklinga og fyrirtæki, að nauðsynlegt er að komast að sannleikanum um hvað gerðist hér á landi í raun og veru. Nauðsynlegt er að ljúka málinu sómasamlega, réttlátlega og ná sátt með þjóðinni, öðruvísi er erfitt að halda áfram á þeirri löngu og flóknu vegferð sem við höfum fyrir hönd um. Landsdómur hefur leitt í ljós yfir gripsmikla samskiptaörðugleika íslenskra embættismanna og vanhæfni í mörgum tilvikum. Víða er pottur brotinn í íslenskri stjórnsýslu, sem verður að laga. Stjórnmálahreyfingin Hægri grænir, flokk ur fólksins vill setja á stofn fimmtán manna sannleiks­ og sáttadómstól sem myndi skoða alla hrunsöguna til dagsins í dag. Margir telja að siðbresturinn hafi byrjað með gjaldþroti Sambandsins, því í kjölfar þess myndaðist tómarúm á eignarhaldi á nokkrum mikilvægum fyrir tækjum tengdum Sambandinu og inn í þetta tómarúm gengu ýmsir og hirtu félögin. Einkavæðing bankanna upp úr aldamótum hefur verið umdeild, svo og endurreisn þeirra eftir hrun. Ekki á að setja sannleiks­ og sáttadómstólinn á laggirnar til þess að dæma menn til þungra refsinga eða fangelsisvistar held­ ur til að þjóðin sameinist um heiðar ­ legt verklag sem við viljum hafa með okk ur inn í framtíðina, sem er bjartari en margan grunar. Ekki er verið að álykta með þessu að sekir eigi að sleppa við refsingu. Sérstakur saksóknari er að vinna sína vinnu gaumgæfilega og lýkur henni á næstu misserum. Dómstólar taka svo við þessum málum og skera úr um sekt eða sakleysi manna. AlþINGI steNDUr sIG ekkI Þessi sannleiks­ og sáttadómstóll ætti að byrja á því að rannsaka hvort Alþingi hafi uppfyllt ályktun Alþingis við skýrslu rann sóknarnefndar Alþingis, því öðruvísi næst ekki sátt í þjóðfélaginu. Aþingi Ís­ lendinga samþykkti með 63 atkvæðum gegn engu þingsályktun um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2010. Þar segir: • Alþingi ályktar að skýrsla rann­ sóknar nefndar Alþingis sé vitni s burður um þróun íslensks efna hagslífs og samfélags undan­ geng inna ára og telur mikilvægt að skýrslan verði höfð að leiðarljósi í fram tíðinni. • Alþingi ályktar að brýnt sé að starfshættir þingsins verði teknir til endurskoðunar. Mikilvægt sé að Alþingi verji og styrki sjálfstæði sitt og grundvallarhlutverk. • Alþingi ályktar að taka verði gagn rýni á íslenska stjórnmála­ menn ingu alvarlega og leggur áherslu á að af henni verði dreginn lær dómur. • Alþingi ályktar að skýrsla rann ­ sóknarnefndar Alþingis sé áfellis­ dómur yfir stjórnvöldum, stjórn­ málamönnum og stjórnsýslu, verk lagi og skorti á formfestu. • Alþingi ályktar að stjórnendur og helstu eigendur fjármálafyrirtækja á Íslandi beri mesta ábyrgð á banka hruninu. • Alþingi ályktar að eftirlitsstofnanir hafi brugðist. Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, flokks fólksins, segir að flokk ur- inn vilji setja á stofn fimmtán manna sannleiks- og sáttadómstól sem myndi skoða alla hrunsög una til dagsins í dag. Hann segir að margir telji að siðbresturinn hafa byrjað með gjaldþroti Sambandsins. TexTi: guðMundur franklín jónsson. Mynd: geir ólafsson. Guðmundur Franklín Jónsson, viðskiptafræðingur og formaður Hægri grænna, flokks fólksins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.