Frjáls verslun - 01.05.2012, Síða 32
32 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
ÞAu HAFA ORðIð
Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskipta fræð i-
deild Háskóla Íslands:
FYRIRTÆKIÐ OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ
Nú er tími ferðalaga og við horfum mjög á bensínverð í því sambandi en breytingar á bensín
verði ráðast að stærstum hluta af
breytingum á heimsmarkaðsverði
og gengi dollars,“ segir Jón Snorri
Snorrason. „Nú ber vel í veiði
því saman hafa farið lækkanir á
heimsmarksverði olíu og lækkun
á gengi dollars. Verð á hráolíu á
heimsmarkaði lækkaði um 4,5%
í júní og það lækkaði um 16% í
maí. Dollarinn hefur einnig lækkað
í verði eða um 4,4%. Lækkun á
bensíni og olíu stuðlar að lækkun
verðbólgu. Vægi innfluttra vara er
tæplega 40% í vísitölu neyslu
verðs og hefur þessi gengisþróun
því mikil áhrif á verðbólguna.
Bensín og olíur eru rúmlega 0,6%
af neysluverðsvísitölu.
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu hefur ekki skilað sér að
fullu til íslenskra neytenda. Verð
á olíulítra hefur lækkað um rúmar
20 krónur frá 1. maí sem er ekki
nema 7,7% lækkun. Hafa þarf í
huga að vegna skattlagningar á
olíu og bensíni mun innanlands
verð aldrei lækka um sama hlutfall
og lækkun hráolíuverðs á heims
markaði. Lækkun ben sínsverðs
skiptir verulegu máli fyrir
ferðaþjón ustuna en margir í ferða
þjónustu á landsbyggðinni hafa
kvartað undan því að Íslendingar
hafi dregið úr ferðalögum.“ allar forsendur fyrir
bensínlækkun
Sigurður B. Stefánsson, sjóðstjóri hjá
Eignastýringu Landsbankans:
ERLEND HLUTABRÉF
Sigurður B. Stefánsson segir að eftir 10% lækkun á heimsvísitölu hlutabréfa í mars, apríl
og maí 2012 hafi hluti þeirrar
lækk unar gengið til baka með
hækkun í fyrri hluta júní. „Sú
hækk un er mest á hlutabréfum
sterkra fyrirtækja á Wall Street
en vísitölur í Asíu og Evrópu hafa
hækkað minna og heimt til baka
aðeins um þriðjung af lækkun frá
mars til maí. Í lok júní 2012 fara
fjárfestar sér hægt vegna óvissu
og efnahagserfiðleika víða um
heim.“
Sigurður segir að tvennt vegi
þyngst þegar horfur eru metn ar
fram til haustsins og hvor ugur
þáttur sé til að auka bjartsýni
fjárfesta. „Horfur í heims bú
skapn um benda til minni hag
vaxtar í ár en árin á undan og
munar mest um minni vöxt í Kína
og hinum BRICríkjunum.
Lækkandi verð á hrávörum, olíu og málmum vegna
minni kaupa frá þessum löndum
kemur öðrum til góða og hefur
verðbólga hjaðnað vestan hafs
sem austan. Í Evrópu er búist við
samdrætti í framleiðslu á þessu
ári og í Bandaríkjunum lækk
ar seðlabankinn spá sína um
hagvöxt 2012 í 2,4% úr 2,9%.
Sumartíminn leiðir líka til dræmrar eftirspurnar eftir
hluta bréfum. Mánuðirnir maí til
októ ber skila að jafnaði engu
til hækkunar á verði hlutabréfa
í Bandaríkjunum ef litið er til
áranna frá 1950. Líkur eru á því
að hlutabréf lækki meira í verði á
næstu vikum en þau hafa þegar
gert áður en næsti hækkunar
leggur tekur við í lok sumars eða
með haustinu.“
ÞAu HAFA ORðIð
Mikilvægi hróss
Ingrid Kuhlman, framkvæmda -
stjóri Þekkingarmiðlunar:
Hrós getur skipt sköpum fyrir árangur, frammistöðu og vellíðan starfsmanna. Ingrid Kuhlman segir að Íslendingar séu alltof
sparir á að hrósa og hafa niðurstöður
starfs ánægjukannana ítrekað leitt það í
ljós. Ingrid segir að nokkur atriði geti komið
í veg fyrir að fólk kjósi að hrósa.
„Í fyrsta lagi er oft um að ræða endurtekin
verkefni. Af hverju ætti stjórnandi allt í einu
að hrósa gjaldkera sem sinnir vinnunni
sinni ágætlega og vinnur sömu verkefnin
dag eftir dag? Kannski bíður hann með
hrósið þangað til í árlega starfsmannasam
talinu sem missir þar með marks.“
Ingrid nefnir annað atriði en það er þegar
stjórnanda finnst starfsmaðurinn kannski
ekki eiga það skilið. „Á að hrósa starfs
manni sem loksins skilar villulausri skýrslu
á meðan yfirmanninum finnst eiginlega
sjálfsagt að hver skýrsla sé villulaus?
Hrósið gæti hugsanlega hvatt starfsmann
inn til að bæta frammistöðu sína. Á hinn
bóginn getur stjórnanda fundist óréttmætt
að hrósa fólki sem honum finnst ekki eiga
það skilið.
Enn eitt atriði er ótti við afbrýðisemi eða samkeppni milli starfsmanna. Ætti að
hrósa eingungis þeim sem stendur sig
vel þegar starfsmenn standa sig misvel?
Afleiðingin gæti verið að hinir upplifi að
stjórnandinn meti þá ekki jafnmikils. Sú
spurning gæti vaknað hvort allir eigi hrósið
jafnmikið skilið ef stjórnandi hrósar öllum
hópnum. Auk þess fær sá sem leggur sig
mikið fram ekki sérstaka viðurkenningu fyrir
framlag sitt.“
HOLLRÁÐ Í STJÓRNUN
Verðbólga hefur
hjaðnað
Mímir-símenntun
vinnur með atvinnulífinu
Námsleiðir
Námsleiðir eru kenndar eftir námsskrám staðfestum
af menntamálaráðuneytinu sem metnar eru til eininga
á framhaldsskólastigi. Lengd þeirra er frá 60 upp í 600
kennslustundir. Dæmi um námsleiðir er nám fyrir starfs-
fólk sem vinnur við jarðlagnir, verslun, flutninga og ferða-
þjónustu.
Nánari upplýsingar
í síma 580 1800
og á www.mimir.is
Sérhæfing í námi fyrir starfsmenn með stutta formlega skólagöngu
Íslenskunám fyrir erlenda starfsmenn
Íslenska er kennd á fimm stigum auk þess sem boðið er
upp á starfstengt íslenskunám þar sem lögð er áhersla
á starfstengdan orðaforða.
Náms- og starfsráðgjöf
á vinnustað
Vinnustaðir geta óskað eftir að náms-
og starfsráðgjafar komi í heimsókn
með kynningu og hvatningu til starfs-
manna um hvernig er hægt að efla
starfshæfni og finna námstækifæri við
hæfi. Þjónustan er vinnustöðum að
kostnaðarlausu.
Ráðgjöf, þarfagreining, aðstoð við styrkumsóknir, skipulagning og framkvæmd náms
Hagnýtar námsleiðir sem taka mið af þörfum atvinnulífsins og nemenda
Nánari upplýsingar hjá Mími símenntun, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, sími 580 1800 eða á www.mimir.is