Frjáls verslun - 01.05.2012, Síða 46
46 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
forðast sviðsljós fjölmiðla
Eyjamönnum finnst ekkert dularfullt við Guðbjörgu Matthíasdóttur og engum þeim sem þekkir hana. En utan þess
hóps eru margir forvitnir að vita meira um
kennarann, sem er trúlega ríkasta kona á
Íslandi. Og það sem meira er: Hún stendur
sterk eftir bankahrunið.
Helstu eignir Guðbjargar eru verðbréf í
gegnum félag sitt Kristin ehf. – sem og fyrir
tækin Ísfélag Vestmannaeyja, Lýsi hf. og hlut í
Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Ísfélagið í Vestmannaeyjum er bakbeinið í
eignum Guðbjargar. Félagið var stofnað árið
1901 og er elsta hlutafélag á Íslandi. Veldi
Guð bjargar er í gegnum hlutafélagið Fram ehf.
Það félag á aftur tvö félög og í gegnum þau
liggja þræðirnir. Þetta eru fjárfestingarfélagið
Kristinn ehf. og ÍV Fjárfestingar ehf.
Það var á vormánuðum 2009 sem Guðbjörg
ásamt fleiri fjárfestum undir stjórn Óskars
Magn ússonar keypti Morgunblaðið. Fyrirtækið
Þórsmörk keypti þá Árvakur, útgáfufélag
Morgunblaðsins. Það var svo á árinu 2009 sem
Guðbjörg eignaðist stóran hlut í Lýsi hf. en
forstjóri þess félags er Katrín Pétursdóttir.
Guðbjörg er ekkja eftir Sigurð Einarsson,
forstjóra Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, og
þá tengdadóttir Einars „ríka“ Sigurðssonar,
eins frægasta útgerðarmanns á Íslandi. Við
lát manns síns árið 2000 fór Guðbjög frá
kennarapúltinu og að stjórn fyrirtækisins,
óundir búin að því er virtist. Þeir sem best
þekkja til segja að svo hafi ekki verið því hún
hafi ætíð fylgst náið með því sem var að gerast
í fyrirtækjunum.
Guðbjörg kenndi í Eyjum í 24 ár. Hún var
vel liðinn kennari og kom að því er virtist ekki
nærri viðskiptum manns síns meðan hann var
á lífi. Og þó. Heimildamenn okkar segja að
hún hafi haft meira að segja um reksturinn en
margur hélt.
„Ég veit að Sigurður bar allt undir Guð
björgu. Hún var alltaf með í ráðum,“ segir
Ómar Garðarsson hjá Eyjafréttum og einn úr
vinahópi Sigurðar heitins. Hún tók því ekki við
rekstrinum ókunnug með öllu árið 2000.
Ómar og aðrir Eyjamenn lýsa Guðbjörgu
sem afskaplega blátt áfram konu, jarðbundinni
og ekki fyrir að láta á sér bera.
Óskar Pétur Friðriksson, fyrrverandi sjó
maður á skipum fyrirtækisins, orðar það svo
að Guðbjörg vilji helst standa við hliðina á
sviðsljósunum. „Hún er alls ekki feimin en
mjög alþýðleg í allri framkomu og síst af öllu
mannafæla. En hún tranar sér ekki fram,“ segir
Óskar.
Ein auðugasta kona landsins:
Hér kemur brot af nærmynd Gísla Kristjánssonar blaðamanns fyrir Frjálsa verslun um Guðbjörgu Matthíasdóttur frá árinu
2010. Guðbjörg er fámál opinberlega um eigin hagi og forðast sviðsljós fjölmiðla.
Úr nærmynd fv frá 2010
TexTi gísli krisTjánsson / Mynd: óskar PéTur friðriksson