Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 74
74 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
stjórnun krefst staðfestu
og sveigjanleika
Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri atlantsolíu:
„Það sem helst stendur upp úr hjá Atlantsolíu í ár er að fyrirtækið
hefur náð þeim áfanga að verða tíu ára. Það er alls ekki sjálfgefið að
fyrirtæki nái að fóta sig á grónum mörkuðum eins og eldsneytismark
aði. Einnig erum við mjög stolt af því að hafa unnið Ánægjuvogina
annað árið í röð í hópi fyrirtækja á eldsneytismarkaði. Þá mun Atlants
olía opna átjándu bensínstöðina í Stykkishólmi nú í sumar og það er
alltaf stór áfangi að opna nýja stöð.“
Framkvæmdastjórinn segist telja það nauðsynlegt að allir í fyrirtækinu hafi ávallt stefnu
fyrir tækisins að leiðarljósi í störfum
sínum. „Til þess að það takist þarf
stefnan að vera skýr og starfsfólk
þarf að hafa átt þess kost að taka
þátt í mótun hennar. Stjórnun krefst
stað festu en líka sveigjanleika. Þá
er nauðsynlegt að hlusta og bera
virð ingu fyrir fólki með ólíka sýn og
skoð anir en maður hefur sjálfur. Það
er nauðsynlegt að gefa fólki svigrúm,
hvetja það og fela því ábyrgð.“
Guðrún Ragna segir að nauðsynlegt
sé að auka fjárfestingu og vinna bug
á atvinnuleysi í landinu. „Við þurfum
að auka erlenda sem og innlenda
fjár festingu, auka verðmætasköpun og
ná þannig að stækka kökuna öllum til
hagsbóta. Atvinnuleysi er nokkuð sem
við Íslendingar þolum illa. Við erum
ýmsu vön í efnahagssveiflum en ég
held að atvinnuleysið komi alltaf verst
við okkur.“
Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu.
Margrét Pála Ólafsdóttir, forstjóri Hjallamiðstöðvarinnar:
„Fyrirtækið vex og dafnar og við erum að bæta við okkur
þremur skólum í þremur sveitarfélögum. Í sumar tökum við
yfir rekstur leikskóla bæði í Sandgerði og Vestmannaeyjum
og svo tökum við reksturinn á leikskóla, grunnskóla og
tónlistarskóla á Tálknafirði.“
Það gleður mig sér stak lega því ég er lands byggðar kona sjálf og með
þessu erum við að stað festa
að Hjallastefnan er ekki eitt
hvert lúxusfyrirbrigði á höfuð
borgarsvæðinu heldur erum við
reiðubúin að starfa um allt land.“
Margrét Pála segir að sitt besta
ráð í stjórnun sé að þora að
treysta jafnvel á eigin hyggjuvit
og dómgreind samstarfsfólksins
og nota góðan skammt af gleði
og frjálslyndi í daglegri stjórnun.
Þegar hún er spurð hvort hún
telji að konur séu frábrugðnar
körlum þegar kemur að stjórnun
segir hún: „Ég reikna með að
konur séu dugmeiri við að leita
álits og fá fleiri að ákvörðunum
en karlar. Eins eru konur ekki
eins áhættusæknar. Hjallastefnan
hefur farið gætilega en við höfum
líka haft kjarkinn til þess að grípa
tækifærin og treyst á getu okkar
og hæfni til þess að taka stökkin.
Við drögum þá bara andann
djúpt rétt á meðan.“
Margrét Pála segir að brýn
ustu verkefnin við stjórn efna
hags mála séu að styðja við að
uppbygging eigi sér stað og
styrkja þannig grundvöllinn að
efna hagsbata. „Fyrst og fremst
með því að hvetja til nýrra tæki
færa og áframhaldandi vaxtar og
ný breytni.“
Margrét er í stjórn Við skipta
ráðs og í stjórn fulltrúa ráðs
Samtaka atvinnulífsins.
Margrét Pála Ólafsdóttir, forstjóri Hjallamiðstöðvarinnar.
dugmeiri að leita álits