Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 89

Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 89
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 89 vinnusemi, forgangs- röðun, forvitni … Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já: Sigríður Margrét Oddsdóttir segir að góður rekstrarárangur í kjölfar töluverðra breytinga hjá fyrirtækinu standi upp úr. Við höfum undanfarið lagt mikla áherslu á vöru­þróun og mun sú áhersla aukast á komandi mánuðum. Við höfum sett tvo nýja vefi í loft ið, iceland.ja.is og stjörnur.is, og erum aftar stolt af því að hafa þróað eitt mest notaða íslenska snjallsímaforritið, „Já í símann“, sem er nafnabirtiþjónusta fyrir farsímanotendur.“ Sigríður Margrét telur upp það sem henni finnst mikilvægi góðrar stjórnunar: Vinnusemi, forgangsröðun, forvitni og stöð­ ug þekkingarleit, virðing fyrir samstarfsfólki, auðmýkt, að hafa auga fyrir tækifærum og hugrekki til að breyta. Sigríður Margrét nefnir fyrst jákvæðan ríkisrekstur þegar hún er spurð um brýnustu verkefnin við stjórn efnahagsmála næstu mánuði. „Ég myndi líka vilja sjá stjórnvöld halda á lofti tölulegum markmiðum um það hlutfall landsframleiðslunnar sem er skattlagt og bera það saman við önnur lönd. Fram kemur í skýrslu um íslenska skattkerfið sem AGS gaf út í júní 2010 að samanburðarhæft skatthlutfall landsframleiðslu er næsthæst á Íslandi innan OECD­ríkjanna. Ísland er háskattaríki, því myndi ég vilja breyta.“ Sigríður Margrét situr í stjórn­ um Samtaka atvinnu lífsins og Samtaka versl un ar og þjón ustu, hún er í skólanefnd Verzl unarskóla Íslands og í stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálf stæðis fé laganna í Reykjavík. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir segir að það sem standi upp úr á árinu sé góður árangur fyrirtækisins á Íslandi auk þess sem finnskt félag í eigu sömu aðila sé að stækka. „Félagið verður sífellt öflugra í Finnlandi. Við eigum tíu Pizza Hut­ veitingastaði þar í landi auk þess sem við erum með nýtt vörumerki, Jogo, sem er jógúrtbar.“ Þórdís Lóa segir að sitt besta ráð í stjórnun sé að halda vel í þá stefnu sem lagt var af stað með og aðlaga sig aðstæðum hverju sinni. „Ég er með annað ráð og það er að treysta fólkinu sínu og trúa á það. Viðskipti snúast alltaf um fólk; tölurnar eru tölur en það er alltaf fólk á bak við þessar tölur. Viðskipti snúast um samskipti, traust og áreiðanleika og það snýr allt að fólki.“ Þórdís Lóa segir að gjaldeyrishöftin verði að fara og nauðsynlegt sé að ganga frá samn­ ingnum við Evrópusambandið og sjá hvort það komi Íslendingum ekki inn á farveg sem væri eðlilegur í alþjóðlegu samhengi. „Þessi íslensku höft sem við búum við verða að fara, við verðum að verða miklu alþjóðlegri og hætta þessari þjóðernishyggju þegar kem ur að efnahagslífinu. Það hefur lengi verið skoðun mín að við séum of innilokuð. Við erum með ónýtan gjaldeyri og fáránlega verðtryggingu sem fólk í öðrum löndum þarf ekki að búa við.“ Þórdís lóa er stjórnarformaður naskur ehf., Finnsk­íslenska viðskiptaráðsins, Fresko ehf., naskar ehf. fjárfestingarfélags, aladin Invest ehf. og hún er í stjórn askur Oy og Jogo Oy. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, einn eigenda og framkvæmdastjóri Pizza Hut. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já. tíu veitingastaðir í finnlandi Þórdís lóa Þórhallsdóttir, einn eigenda og framkvæmdastjóri Pizza Hut:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.