Frjáls verslun - 01.05.2012, Side 105
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 105
Leyndarmál
tekjuhárra kvenna
kenni sem hún sér sameiginleg
með þeim konum sem hún átti
viðtöl við og gerir þannig öðrum
kon um kleift með einföldum
hætti að ná sama árangri.
Þegar höfundur fór að skoða
handrit viðtala sinna ofan í kjöl
inn komst hún að því að allar
hátekjukonurnar sem hún átti
samtöl við áttu fjögur einkenni
sameiginleg:
Þær hafa markmið um að
hagn ast og hafa jákvætt
viðhorf til þess að eiga pen-
inga.
Þær búa yfir dirfsku og hafa
ítrekað þurft að fara út fyrir
þægi ndahringinn.
Þær eru þrautseigar og hafa
vilja til að halda áfram þó að á
móti blási.
Þær eru í hvetjandi sambönd
um við sína nánustu sem gefa
þeim orku og kraft.
Þessu til viðbótar tiltekur höf
undur þrjú einkenni sem ekki
eru skilyrði fyrir auknum árangri
en hjálpa til. Þau eru:
1) Góð sjálfsþekking.
2) Að eiga auðvelt með að
sleppa tökum af því sem ekki
virkar.
3 Fjármálalæsi, þ.e. flestar
konurnar sem náð hafa
góðum árangri eru læsar á
fjármál og vita hvernig pen
ingar hegða sér.
á allra færi
Höfundur heldur því fram að
þessir sjö eiginleikar séu á færi
allra kvenna. Það þarf ekki að
fara í langt nám til að ná tökum
á þeim né vinna myrkranna á
milli. Eina sem þarf til er viljinn
til að breyta og staðfestan til að
halda sig við breytinguna. Með
því að gera æfingarnar sem í
bókinni eru í kjölfar umræðunn
ar um muninn á hátekju og
lágtekjukonum má gera þær
breyt ingar sem til þarf til að auka
tekjurnar umtalsvert og þann
ig leggja sitt af mörkum til að
útrýma launamun kynjanna.
Eru þínar tekjur of lágar?
Ég gef gjarnan þjón
ustu mína (sjálfboða
vinna, vinn meira en ég
fæ greitt fyrir)
Það er svo erfitt að
biðja um launahækkun
(eða hækkun á taxta)
að ég sleppi því bara.
Ég hef neikvæðar
tilfinn ingar til peninga
og/eða efnaðs fólks.
Ég er stolt af hæfni
minni til að komast af
með lítið.
Ég skulda mikið, á lítið
sparifé og hef ekki
hugmynd um í hvað
peningarnir fara.
Ég set þarfir annarra
framar mínum eigin.
Spurningarnar þrjátíu
eru hugsaðar til að
meta viðhorf lesandans
til peninga og hvar
tækifæri eru til að gera
breytingar.
Margir rugla tæki
færum saman við
heppni eða örlög
og kvarta um skort
á þeim í sínu lífi. Í
raunveruleikanum
hefur heppni ekkert
með árangur að
gera. Staðfesta, ekki
örlög, gerir gæfu
muninn. – Barbara Stanny
Í bókinni er áhugavert sjálfsmat þar sem lesandinn er spurður 30 spurninga
um tekjur og vinnulag sitt. Út frá matinu má sjá hvort við erum að tak marka
tekjumöguleikana með hegðun okkar. Hér eru dæmi um spurning arnar:
Galdurinn við að
breyta vana
Margar konur þurfa að gera breyt
ingar á viðhorfi sínu og hegð un
til að auka tekjurnar. Oft er það
svo að við sjálfar takmörkum
mögu leika okkar á tekjum. Til að
komast yfir þann hjalla þarf úthald
og kjark til að gera hlutina öðruvísi
en við erum vanar. Höfundur varar
við því að þegar við erum að
gera breytingar sem okkur finnst
óþægilegar þá er það vaninn
sem gerir það að verkum að við
gefumst upp. Það er óþægilegt að
breyta vana en til þess að geta gert
breytingar verðum við að sætta
okkur við óþægindin sem þeim
fylgja til skamms tíma til að upplifa
lang tímaávinninginn.
Átta leyndarmál tekjuhárra kvenna
Þegar höfundur bókarinnar hafði tekið viðtöl við fjölda kvenna kom í ljós hvað þær áttu sam
eiginlegt. Þess ir sameiginlegu þættir
mynda átta leyndar mál sem höfund
ur setur fram í bókinni. Leynd ar mál
sem löðuðu fram árang ur þessara
tekjuháu kvenna.
Hægt er að ná fjárhagslegum
árangri á hvaða sviði sem er og
skort ur á menntun þarf ekki að vera
fjöt ur um fót.
Það að leggja hart að sér þarf ekki
að þýða vinnu allan sólarhringinn.
Einbeittu þér að því að uppfylla
persónuleg gildi fremur en fjárhags
legan ávinning.
Það að elska það sem þú ert að gera
er mikilvægara en það sem þú gerir.
Finndu fyrir óttanum. Hlustaðu á
efasemdirnar. Láttu vaða þrátt fyrir það.
Til að öðlast jafnvægi milli vinnu
og einkalífs er vænlegra að hugsa
um að verið sé að láta eitt og fá
annað í staðinn frekar en að einblína
á fórnir.
Stundum þarftu að leyfa þér að
yppta öxlum og hlæja duglega.
Temdu þér að hugsa um að nóg
sé til fyrir alla frekar en að einblína
á skort.
Höfundur tekur fram að upp hæðin á launaseðlinum muni ekki hækka við það að til einka
sér eitt og eitt þessara leynd ar
mála. Til að ná árangri og hækka
laun in þurfi að beita þeim öllum í
sam einingu og með ákveðnum hætti
sem lýst er í bókinni. Tekin eru dæmi
um konur sem náð hafa að hækka
laun sín umtalsvert með því að beita
aðferðum höfundar.
Launamunur 10,6%
Þó svo að margt hafi
áunnist í jafnréttisbar
áttunni hefur enn
ekki tekist að útrýma
launa mun kynjanna.
Samkvæmt launakönn
un VR var kynbundinn
launamunur árið 2011
um 10,6% og hafði þá
hækkað um 0,5% á
milli ára. Þótt kannanir
sýni að launamunurinn
hafi á undanförnum
árum minnkað umtals
vert er óviðunandi
að hann sé enn eins
mik ill og raun ber vitni.
Margir halda því fram
að munurinn skýrist að
miklu leyti af viðhorfi
okkar kvenna sjálfra til
peninga og virðis okkar
sem starfsmanna.
Konur hafi tilhneigingu
til að biðja um lægri
laun en karlar. Þessu
þarf að breyta!
Höfundi verður tíðrætt um að konur þurfi að breyta viðhorfi sínu til
peninga og segir meðal annars: Þær sem sætta sig við brauðmola munu
aldrei eignast heilt brauð. – Barbara Stanny