Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 121
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 121
Ætlum að vera númer
eitt í þjónustu
Forgangurinn hjá útibúinu á Eiðistorgi er ávallt að finna leiðir til að þjónusta
viðskiptavininn betur og finna lausnir sem henta hverjum og einum.
Hildur Kristmundsdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka, Eiðistorgi: „Við erum að verða sérfræðingar í að bregðast við óvæntum aðstæðum
og finna lausnir, þannig að forgangurinn er
skýr: Við ætlum að vera númer eitt í þjón
ustu.“
Hvað finnst þér um lögin sem taka gildi 1.
september 2013 og kveða á um að hlutfall
hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórn
um stærri fyrirtækja?
„Ég held að ég sé ein af fáum sem hafa
verið fylgjandi þessum lögum frá upphafi.
Það hefur löngu sýnt sig að ekki gengur að
brjóta upp karlaklúbbana á annan hátt. Það
er mér með öllu óskiljanlegt að eigendur skuli
ekki hafa áttað sig á að það eru verðmæti í
því að hafa blandaða stjórn með sem flestum
sjónarmiðum. Auðvitað er það miður að
jafn vægið skuli ekki hafa þróast sjálfkrafa í
þessa átt, en ég held að til lengri tíma litið
muni þessi lög sanna sig og ákvarðanatökur
í stjórnum verði byggðar á víðari grunni en
hefur verið og því betri ákvarðanir.“
Hvernig snerta þessi lög þitt fyrirtæki? Hversu
margar konur eru í stjórn fyrirtækis ins?
„Það eru tvær konur í sjö manna stjórn hjá
okkur og svo er auðvitað forstjórinn kona
þannig að við erum í ágætum málum.
mentor-verkefnið
Í febrúar 2012 var öllum konum sem starfa
hjá Íslandsbanka boðið að sækja um að
vinna með lærimeistara (mentor) en með því
viljum við leggja aukna áherslu á framgöngu
kvenna innan bankans. Í „mentoring“ leita
reynsluminni konur í viskubrunn þeirra reynd
ari. Þetta er öflug aðferð til að þróa eigin
getu, vitneskju og færni. Að auki hvetur þetta
fólk til að hámarka möguleika sína og þroska
hæfileika. Í haust er gert ráð fyrir að bjóða
karlmönnum einnig upp á lærimeistara. Ég er
þátttakandi í verkefninu, er með mentor og er
að verða mentor sjálf. Mentorinn minn er sterk
kona með mikla og langa reynslu í viðskiptalíf
inu og því hafsjór af þekkingu og reynslu …
svo er hún þrælskemmtileg kona!“
Aldur: 46 ára.
Menntun: Ég er með fil.kand.-próf í
sálfræði frá Lundi eins og
Georg Bjarnfreðarson. Svo
er ég með MBA frá HÍ og
MSc-próf í alþjóðlegri fjár-
mála- og bankastarfsemi frá
Bifröst.
Hjúskaparstaða: Gift Kristjáni Þórarinssyni
og eigum við samanlagt
fjögur börn … og eitt barna-
barn á leiðinni.
Tómstundir: Ég er í svona ástar-/hatur-
ssambandi við golfið –
aðeins meira hatur en ást
– og er búin að vera byrjandi
í allt of mörg ár en lofaði
eiginmanninum að reyna
fyrir alvöru í sumar.
Það gengur ekki vel. Svo hef
ég verið í „Bíddu aðeins“-
skokkhópnum sem ég ætla
að fara á fullt aftur í núna en
hef verið frá vegna tognunar.
Þarf að komast alla vega 10
km í Reykjavíkurmaraþoninu,
mikill metnaður hjá starfs -
mönnum að vera með. Öll
útivist er svo æðisleg og
íslensku sumrin þau bestu í
heimi.
Sumarfríið 2012: Ég var að koma úr göngu á
Hornströndum með „Virðis -
keðjunni“ sem samanstend -
ur af sex konum en við
útskrifuðumst saman úr MBA
frá HÍ 2004 og höfum haldið
hópinn vel síðan. Núna
gengum við frá Ófeigs-
firði og yfir í Reykjarfjörðinn. Þaðan gengum við svo á
Hrolleifsborgina á Drangjökli
í frábæru veðri og fengum
útsýni sem ekki er hægt að
lýsa með orðum.
„Ég held að ég sé ein af fáum sem hafa verið fylgjandi þessum lögum
frá upphafi. Það hefur löngu sýnt sig að ekki gengur að brjóta upp kar
laklúbbana á annan hátt.“
Hildur Kristmundsdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka, Eiðistorgi.
Í s l a n d s b a n k i
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson