Frjáls verslun - 01.05.2012, Síða 123
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 123
Nýr ferðavefur fyrir
erlenda ferðamenn
Það eru mörg spennandi verkefni framundan hjá Já þar sem stöðugt er unnið að
því að bæta og þróa þjónustuna, allt til hagsbóta fyrir viðskiptavini.
J á
Það nýjasta sem Já hefur verið að þróa og hanna er heildstæður ferða vefur fyrir erlenda ferðamenn: „Fyrstu viðtökur lofa mjög góðu og verður spennandi að fylgj ast með
þessum nýja vef,“ segir Lilja Hallbjörnsdótt
ir, þjónustustjóri hjá Já. „Um sagnarvefurinn
„stjörnur.is“, þar sem neytendur geta gefið
fyrirtækjum og þjónustu umsagnir og stjörnur,
fer einnig mjög vel af stað, þrátt fyrir að kynn
ingarstarf sé rétt hafið. Svo að sjálfsögðu er
margt spennandi í farvatninu.
hvar er næsti golfvöllur?
Sumarið er tími mikilla anna hjá 118. Í dag
erum við með tvö þjónustuver, í Reykjavík
og í Reykjanesbæ, þar fer fram svörun fyrir
þjónustunúmerin okkar 118, 1818 og 1811,
auk skiptiborðsþjónustu fyrir fyrirtæki. Æ
fleiri nýta sér þá frábæru þjónustu að fá
leiðbeiningar eftir korti eða upplýsingar um
fjarlægðir milli staða, og fyrirspurnir eins
og hvar er næsti golfvöllur, tjaldstæði eða
sundlaug eru mjög algengar á sumrin. Þá er
hentugt að láta tengja sig við númerið og fá
sms í kjölfarið með upplýsingum. Það hefur
orðið mikil breyting á eðli fyrirspurna síðustu
ár en við veitum ekki eingöngu upplýsingar
um símanúmer og heimilisföng, stefnan er
að svara öllum fyrirspurnum sem til okkar
berast.“
lagasetningin jákvæð
Hvað finnst þér um lögin sem taka gildi 1.
september 2013 og kveða á um að hlutfall
hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórn
um stærri fyrirtækja?
„Mér finnst það mjög jákvætt og góð þróun
að hlutfall kvenna og karla sé svipað í stjórn
um fyrirtækja. Það er hollt að hafa sjónarmið
bæði karla og kvenna þegar ákvarðanir
eru teknar og metnar. Þó verð ég að segja
að mér finnst skipta mestu máli að í stjórn
um fyrirtækja sé hæft fólk og þeir valdir til
verksins sem hæfastir eru hverju sinni, óháð
kyni.“
Hvernig snerta þessi lög þitt fyrirtæki?
Hversu margar konur eru í Já?
„Lögin hafa ekki áhrif á okkur hjá Já þar sem
við erum með þriggja manna stjórn, tvo karl
menn og konu sem stjórnarformann. Ástæða
þessa er hlutfall kvenstjórnenda innan Já, þar
sem af átta stjórnendum eru sex konur.“
Aldur: 46 ára.
Menntun: Diplóma í markaðssamskipt -
um frá HR og stjórnunarpróf
frá Leadership Management
International.
Hjúskaparstaða: Gift Atla Ingvarssyni og á tvö
börn, Fanneyju 23 ára og
Ingvar 19 ára.
Tómstundir: Golf, útilegur og bústaðurinn.
Sumarfríið 2012: Ég ætla að njóta lífsins og
gera það sem mér dettur í
hug.
„Það hefur orðið mikil breyting á eðli fyrirspurna síðustu ár en við veit
um ekki eingöngu upplýsingar um símanúmer og heimilisföng, stefnan
er að svara öllum fyrirspurnum sem til okkar berast.“
Lilja Hallbjörnsdóttir, þjónustustjóri Já.
Meiri dýpt og dýnamík
með aðkomu kvenna
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson