Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2012, Side 143

Frjáls verslun - 01.05.2012, Side 143
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 143 egar Katie Couric, frétt a ­ kona hjá CBS­sjónvarps stöð­ inni, spurði í jan úar 2008 þáverandi for set a fram ­ bjóðanda Barack O bama hvaða bók hann myndi taka með sér í Hvíta hús ið, aðra en Biblíuna, svar aði hann: Team of Rivals (Keppnislið keppinautanna). Þetta er metsölubók frá árinu 2005 eftir Har vard ­ kennarann, pulitzer verð launa haf ann og sagn fræð ing inn Doris Kearns Goodwin og fjallar um hvernig Abraham Lincoln leiddi þjóð sína á meðan á Þræla stríðinu í Bandaríkjunum stóð. Fyrstu mánuðina í starfi gerði Obama for seti lýðum ljóst að hann byggði stjórn ­ ar hætti sína að hluta á stjórn visku þessa forvera síns í embætti. Með því að safna í ráðuneyti sitt þungavigtar stjórn mála ­ mönn um sem sjálfir ýmist eru, eða voru, lík legir til að hyggja á forsetaframboð hefur Obama endurvakið þá ráðkænsku Lincolns að búa til liðsheild sem skipuð er hæfustu and stæðingum hans, fólki sem er óhrætt við að vera honum ósammála og hefur fullt traust á eigin leiðtogahæfileikum. Ef núverandi forseti Bandaríkjanna getur lært ýmislegt af Abraham Lincoln þá á viska hans ekki síður erindi inn í við ­ skiptalífið þar sem leiðtogar og stjórnar for­ menn eiga nú erfiða tíma. Til að komast að því hvaða lærdóm sé helstan að draga af stjórnarháttum Lincolns ræddi Diane Coutu, ritstjóri Harvard Busi ness Review, við höfund bókarinnar Doris Kearns Goodwin. Hún hefur skrifað bækur um fleiri Bandaríkjaforseta, eins og No Ord inary Time (Engir venjulegir tímar) um Franklin og Eleanor Roosevelt, The Fitz geralds and the Kennedys og Lyndon B. John son and the American Dream. Í tveggja klukkustunda samtali sem fór efnislega út um víðan völl lýsti Goodwin þeim eiginleikum sem gerðu Lincoln kleift að „mynda óvenjulegasta ráðuneyti sög ­ unnar úr óánægðum andstæðingum“, gaf nýja forsetanum nokkur góð ráð í bar átt ­ unni við efnahagsvandann og lýsti þeirri skoðun sinni að Bandaríkin myndu standa þetta veður af sér eins og þau hefðu oft gert í fortíð sinni. Hér á eftir fylgir stytt og meitluð útgáfa af því sem þeim fór á milli. Hvaða lærdóm geta Barack Obama for seti og aðrir leiðtogar dregið af for - setatíð Abra hams Lincolns? Það er ýmislegt hægt að tileinka sér. Til dæmis það að Lincoln valdi sér sterka ein­ staklinga að nánustu samstarfsmönnum, jafnvel þótt þeir væru pólitískir andstæð ­ ingar hans, metnaðargjarna einstaklinga sem voru óhræddir við að standa uppi í hárinu á honum. Sem dæmi um þetta má nefna Salmon Chase sem var fjármála ­ ráðherra Lincolns í þrjú ár, þrátt fyrir að Lincoln væri mætavel kunnugt að Chase þráði ekkert heitar en að verða forseti sjálfur og nýtti því hvert tækifæri til að grafa undan trausti annarra ráðherra, þings ins og þjóðarinnar á Lincoln. En á meðan hann stóð sig í starfi sínu sem ráð ­ herra þótti Lincoln það mikilvægara en persónu leg ágreiningsmál. Obama er auðsjáanlega að gera það sama fyrir aðalkeppinaut sinn, Hillary Clinton, með því að gera hana að utanríkisráðherra, gera annan keppinaut, Joe Biden, að varaforseta og setja svo valdamikla repú­ blik ana í ýmis ráðherraembætti, eins og til dæmis Robert Gates og Ray LaHood. En eitt má ekki gleymast, hugmyndin er ekki einvörðungu að koma keppinautum sínum í áhrifastöður – lykilatriðið er alltaf að velja hæfasta einstaklinginn í hvert embætti, þann sem kemur þjóðinni best. Þegar Lincoln komst til valda var þjóðin í vanda og hann var nógu greindur og sjálfsöruggur til að gera sér grein fyrir því að hann þyrfti bestu einstaklingana sér við hlið, fólk sem sjálft hafði leiðtogahæfileika og þekkti styrk sinn. Þetta er mikilvæg vitn eskja fyrir þjóðarleiðtoga en ekki síður fyrir forstjóra stórfyrirtækis. En hver er skuggahliðin á því að búa til keppnislið úr keppinautum þínum? Hér segir frá einstökum leiðtogahæfileikum Abrahams Lincolns Bandaríkjaforseta. Greinin birtist í Harvard Business Review í apríl 2009 og er viðtal Diane Coutu, ritstjóra tímaritsins, við Harvardkennarann Doris Kearns Goodwin. Hún er höfundur bókarinnar Team of Rivals sem er um Abraham Lincoln. Goodwin er pulitzervinningshafi og hefur einnig skrifað um Franklin Roosevelt, John F. Kennedy og Lyndon B. Johnson. STJórnunarSTÍLL aBraHaMS LInCoLnS Leiðtoganámskeið með Abraham Lincoln: TexTi: BrynHildur BjörnsdóTTir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.