Frjáls verslun - 01.04.2010, Side 33
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0 33
HVER ER ROSS J. BEATY?
Ross J. Beaty, aðaleigandi Magma, er menntaður jarðfræðingur
en hann tók við sem stjórnarformaður Pan American Silver
Corpo ration árið 1994 og er óhætt að segja að þar hafi hann
fyrst vakið athygli á sér sem rekstrarmanni. Allt frá árinu
1985 hefur hann komið að stofnun og rekstri allmargra náma-
fyrirtækja, bæði í Norður- og Suður-Ameríku. Meðal fyrirtækja
sem hann hefur stýrt eru Northern Peru Copper og Global
Copper Corp. Samkvæmt nokkurra ára gömlu yfirliti Forbes-
tímaritsins, sem fylgist vel með auðmönnum, hefur Beaty halað
inn um einn milljarð Bandaríkjadala í stofnfé og skilað um
fjórum milljörðum til hluthafa. Beaty var um skeið forseti Silver
Institute í Washington DC og félagi í Jarðfræðingafélagi Kanada.
Hann hefur verið heiðraður sem Námumaður ársins í Kanada.
aðstoðarmaður Ásgeirs. Ásgeir sagði sjálfur í samtali að þeir Magma
menn teldu það óheppilegt að Norðurál kæmi inn í hluthafahóp HS
Orku í ljósi þess að þeir eru í dag stærsti viðskiptavinur félagsins og
eru það rök sem ekki er hægt að sniðganga.
Fjárhagsstyrkur Magma
En hvaða burði hefur Magma til að vera leiðandi fjárfestir í HS
Orku og fjármagna frekari uppbyggingu félagsins? Um það eru
menn ekki sammála þótt flestar fjárhagsupplýsingar um Magma
ættu að liggja fyrir þar sem félagið er skráð í kanadísku kauphöllina.
Félagið er augljóslega enn í uppbyggingu og fjárfestingin í HS Orku
er í raun sú fyrsta sem telst umtalsverð. Fyrir átti félagið 14 MW
raforkuver í Nevadaeyðimörkinni sem einn viðmælandi blaðsins
sagði að væri „ljótasta virkjunin í NorðurAmeríku“!
Magma er því óskrifað blað þótt ljóst sé að Beaty njóti tiltrúar
margra eins og sést af því að honum tókst að draga saman nokkurt
fjármagn á sama tíma og fjárfestar forðuðust alla áhættu eins og
pestina. Um leið gætu Íslendingar reynt að virða það við Beaty að
hann hefur ekki misst áhugann á Íslandi þótt hér hafi orðið „bús
áhalda bylting“ og andrúmsloftið í garð fjárfesta almennt ekki mjög
jákvætt.
Samkvæmt nýjasta þriggja mánaða uppgjöri Magma er lausa
fjár staða félagsins um 40 milljónir Bandaríkjadala eða um fimm
milljarðar króna sem ætlað er að styðja við framkvæmdir á vegum
félagsins. Einn viðmælenda taldi að markaðsvirði félagsins væri
ofmetið en eins og áður hefur komið fram er það skráð félag en
viðskipti stopul.
Mikið starf er framundan hjá HS Orku ef félagið ætlar að ráðast í
þær virkjanir sem eru á döfinni og fjármagna þær. HS Orka áformar
að virkja um 230 MW á næstu fimm til sex árum og er áætlað að
það kosti 60 til 70 milljarða króna. Áætlanir þeirra Magmamanna
gera ráð fyrir að um 40% af því þurfi að koma sem nýtt hlutafé
inn í HS Orku, stærðargráðan á því er um 25 milljarðar króna. Það
virðast þeir vera bjartsýnir á að leysist.
Félagslegur styrkur
Þá skiptir ekki síður máli að félagið sé með „félagslegt leyfi“ til starf
seminnar og vert er að geta þess að sá sem hafði þessi orð uppi er
mikill hægrimaður! Með þessu er hann að orða þau augljósu sann
indi að mikil átök eru fyrirsjáanleg um nýtingu og eignarhald á
orkuauðlindinni. Jafnvel þótt vilji Reyknesinga sé augljós er ekki
hægt að horfa framhjá því að annar ríkisstjórnarflokkurinn er mjög
andsnúinn málinu öllu og virðist tilbúinn að ganga verulega langt
til að stöðva áform Magma. Með því að breyta um stefnu varðandi
meirihlutaeignarhald tók Beaty talsverða áhættu og einn viðmælandi
Ross J. Beaty og Ásgeir
Margeirsson, forstjóri
Magma Energy.
ÁHRIF MAGMA
Magma á nú 98,53% hlut í HS Orku sem á virkjunina í
Svartsengi sem og Reykjanesvirkjun og nýtingarrétt á allri
orku sem kann að finnast á Reykjanesi næstu 45 árin að
minnsta kosti. Suðurorka, félag í eigu Íslenskrar orkuvirkjunar
og HS Orku sem er í eigu Magma Energy, áformar að reisa
Búlandsvirkjun í Skaftárhreppi. Raforkuframleiðsla virkjunarinnar
yrði um 150 megavött. Félagið hefur samið við flesta
vatnsréttarhafa á svæðinu og bíður átekta. Í gegnum hlutinn í
HS Orku eignast Magma tæplega fjórðungshlut í Bláa lóninu.
Fyrst blasir við að Beaty þarf að útskýra
af hverju félagið hverfur frá þeim yfir lýs
ingum sem gefnar voru fyrir ári um að
vera ekki meirihlutaeigandi að íslensku
orkufyrirtæki.