Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.01.2014, Page 4

Læknablaðið - 01.01.2014, Page 4
4 LÆKNAblaðið 2014/100 F R Æ Ð I G R E I N A R 1. tölublað 2014 7 Engilbert Sigurðsson Læknablaðið 100 ára Afmælisbarnið ber háan aldur vel enda er efni þess í stöðugri endurskoðun. Á þessum merku tímamótum er rétt að minnast þeirra sem ruddu brautina. 11 Karl Erlingur Oddason, Tómas Guðbjartsson, Sveinn Guðmundsson, Sigurbergur Kárason, Kári Hreinsson, Gísli H. Sigurðsson Má bæta notkun blóðhluta á gjörgæsludeildum? Samanburður við klínískar leiðbeiningar Þriðjungi sjúklinga á gjörgæsludeildum Landspítalans voru gefnir blóðhlutar, oftast rauðkornaþykkni. Um 6% rauðkornagjafa og að minnsta kosti 14% blóðvökvagjafa og þriðjungur blóðflögugjafa fylgdu ekki leiðbeiningum. Ljóst er að fækka má óþarfa blóðhlutagjöfum á gjörgæsludeildum Landspítala þótt niðurstöðum svipi til erlendra rannsókna. 19 Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, Ólöf Guðný Geirsdóttir, Inga Dóra Kristjánsdóttir, Hjördís Jóhannesdóttir, Bára Benediktsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólrún Rúnarsdóttir, Pálmi V. Jónsson fyrir InterRAI ED rannsóknarhópinn Eldra fólk á bráðamóttöku: íslenskar niðurstöður úr fjölþjóðarannsókn InterRAI Öldrunarheilkenni og færnitap hrjáði meirihluta eldra fólks sem leitaði á bráða- deild. Taka þarf tillit til þessa við hönnun á bráðadeildum og þróun verkferla er lúta að þjónustu við eldra fólk svo hámarka megi skilvirkni, öryggi og gæði. 27 Helga Lárusdóttir, Helga Sævarsdóttir, Laufey Steingrímsdóttir, Ludvig Á. Guðmundsson, Eiríkur Örn Arnarson Áhrif meðferðarinnar „Njóttu þess að borða“ á heilsu og líðan kvenna sem flokkast með offitu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir offitu sem heimsfaraldur og mesta lýðheilsuvanda nútímans. Algengi offitu fullorðinna hefur tvöfaldast frá árinu 1980. Þá voru 4,8% karla og 7,9% kvenna talin hafa líkamsþyngdarstuðul hærri en 30 kg/m² en árið 2008 voru 9,8% karla og 13,8% kvenna yfir þeim mörkum. Líkamsþyngdarstuðull er hæstur í Bandaríkjunum, á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu. 100. ÁRGANGUR LÆKNABLAÐSINS 34 Stefán B. Matthíasson Tilurð Læknadaga Á tímum hagræðingar og aðhalds í ríkisfjármálum getum við vonandi sem flest, eftir að hafa sótt næstu Læknadaga, tekið okkur í munn orð Hannesar Finnbogasonar eftir fyrsta haustþing læknafélaganna árið 1961: „Er það vissa mín, að fé því hafi ekki öllu verið á glæ kastað þar sem þeir sem námskeiðið sóttu muni í mörgum tilfellum lækna með betri árangri á miklu hagkvæmari hátt en áður, öllum aðilum til hagsbóta.“ 9 Þorbjörn Jónsson Er gefið of mikið blóð á Íslandi? Blóðhlutagjöf má líkja við lyfjagjöf, jafnvel líf- færagjöf, og mikilvægt er að ekki sé gripið til slíks nema full ástæða sé til. L E I Ð A R A R

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.