Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2014, Síða 28

Læknablaðið - 01.01.2014, Síða 28
28 LÆKNAblaðið 2014/100 Undanfarin ár hefur færst í vöxt að beita hugrænni atferlis- meðferð samhliða annarri meðferð við þyngdarstjórnun og sýna rannsóknir að árangursríkt sé að bæta henni við meðferð til að breyta lífsstíl sem beinist að mataræði og hreyfingu.12 Hugræn atferlismeðferð er sú sálfræðimeðferð sem er í hvað örustum vexti og mest rannsökuð í dag.13 Hún var upphaflega þróuð sem þung- lyndismeðferð en komið hefur í ljós að hún er einnig árangursrík til að takast á við kvíða, átröskun og fleira.14 Helsti kostur hennar er talinn felast í langtímaárangri og fallvörn.13 Vísbendingar eru um að samtvinnun meðferðarforma skili góðum árangri.5 Þjálfun svengdarvitundar (Appertite Awareness Training) er þró- uð af Lindu W. Craighead og samstarfsaðilum sem gáfu út með- ferðarhandbók árið 2006, sem var íslenskuð árið 2012.15 Þjálfun svengdarvitundar byggir á hugrænni atferlismeðferð og leggur áherslu á að fylgja merkjum líkamans um svengd og seddu. Með- ferðin var upphaflega þróuð til að takast á við lotuát og hefur sýnt góðan árangur við því16 en einnig reynst gagnleg sem forvörn gegn þróun átraskana hjá háskólanemum.15,17 Rannsakendum þótti áhugavert að rannsaka hve vel þjálfun svengdarvitundar nýttist hópi of feitra kvenna án tillits til lotuáts. Í þjálfun svengdarvit- undar er lögð áhersla á að gera greinarmun á svengd og löngun í mat og á hvern hátt tilfinningar og umhverfisáhrif hafa áhrif á matarlöngun. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að sættast við líkamann og reynt að rjúfa tengsl sjálfsmyndar og líkamsþyngd- ar.15 Konur sem eru of feitar eru líklegri til að bæta heilsutengda áhættuþætti þegar þær sættast við þyngd og læra að þekkja maga- mál sitt.18 Slökun hefur verið beitt samhliða hugrænni atferlismeðferð með góðum árangri.14 Reglubundin slökun lækkar blóðþrýsting, dregur úr súrefnisþörf líkamans, vöðvaspennu og kvíða og hægir á öndun og hjartslætti.19 Bandarísk rannsókn leiddi í ljós að í 5 vikna meðferð of feitra kvenna dró þriggja vikna þjálfun í reglubundinni slökun marktækt úr áti af tilfinningalegum toga í samanburði við hóp sem ekki lærði slökun.20 Hreyfing hefur löngum verið notuð til að hafa stjórn á þyngd vegna þess hve mikilvæg hún er talin til að viðhalda árangri. Hreyfing er ekki síður mikilvæg vegna jákvæðra áhrifa á andlega og líkamlega heilsu.21 Að framansögðu má vera ljóst að offita er flókinn vandi sem ógnar lýðheilsu Íslendinga. Rannsakendur telja fá úrræði bjóðast í grunnheilbrigðisþjónustu og því var meðferðin „Njóttu þess að borða“ þróuð. Ákveðið var að hún yrði hópmeðferð þar sem hún er talin hagkvæmari og álitin skila jafnvel betri árangri en ein- staklingsmeðferð, og hópur veitir aðhald og stuðning.22 Við skipu- lagningu meðferðar var haft í huga hve erfitt reynist að viðhalda þyngdartapi eftir meðferð23 og að léttast er ekki eina forsenda já- kvæðra áhrifa á heilsu.15,24 Meðferðin er 15 vikna hópmeðferð fyrir konur með líkamsþyngdarstuðul 30-39,9 kg/m². Í meðferðinni er fléttað saman hugrænni atferlismeðferð, þjálfun svengdarvitund- ar, hreyfingu, slökun og ráðleggingum um mataræði. Tilgangur rannsóknar var að rannsaka áhrif framangreindrar meðferðar hjá konum með líkamsþyngdarstuðul á bilinu 30-39,9 kg/m2 og var tilgáta rannsakenda að meðferðin hefði jákvæð mælanleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu þeirra. Efniviður og aðferðir Þægindaúrtaki 20 kvenna var skipt af handahófi í tvo hópa, A (n=10) og B (n=10). Starfsmenn heilsugæslu í Árbæ, Mjódd og Mosfellsumdæmi öfluðu þátttakenda sem voru konur á aldrinum 19-44 ára, með líkamsþyngdarstuðul á bilinu 30-39,9 kg/m². Frá- bendingar voru þungun, brjóstagjöf, þátttaka í öðrum úrræðum til að stjórna þyngd, nýgreind sykursýki og alvarleg líkamleg fötlun. Áhrif meðferðar á hóp A voru rannsökuð (ágúst-desember 2010) en hópur B var til samanburðar, síðan var víxlrannsóknarsniði beitt og hópur B fékk meðferð (janúar-apríl 2011). Eftirfylgd var 6 og 12 mánuðum eftir meðferð hjá hvorum hópi fyrir sig (mynd 1). Markmið meðferðar þar sem hugrænni atferlismeðferð, þjálfun svengdarvitundar, hreyfingu, slökun og ráðleggingum um mat- aræði er fléttað saman var að þátttakendur breyttu lífsstíl varan- lega til að draga úr afleiðingum offitu. Þátttakendum var kennt að skynja betur tilfinningu um svengd og seddu, takast á við niður- rifshugsanir, setja sér markmið, takast á við ytra áreiti og tilfinn- ingalegt át. Einnig að bæta stjórn á mataræði, auka þekkingu á áhrifum næringar, hreyfingar og slökunar auk þess að stuðla að Hópur Ágúst-Desember 2010 Janúar-apríl 2011 Júní 2011 Október 2011 Desember 2011 apríl 2012 A Meðferð ↔ Eftirfylgd (6 mánuðir) Eftirfylgd (12 mánuðir) B Bíður/samanburður ↔ Meðferð ↔ Eftirfylgd (6 mánuðir) Eftirfylgd (12 mánuðir) Lok rannsóknar Mynd 1. Tímabil meðferðar (15 vikur) og eftirfylgdar (12 mánuðir). 120 mínútur Hópefli/spjall Þema/fræðsla Heimavinna Hreyfing Hóptími Laugardaga 9:30-11:30 15 mínútur Spurningar Hópefli Spjall 40 mínútur Fræðsla um ákveðið viðfangsefni 10 mínútur Kynning á næsta heimaverkefni 45 mínútur Gönguferð 25 mínútur Teygjur 10 mínútur Slökun 10 mínútur Mynd 2. Skipulag hóptíma í meðferðinni „Njóttu þess að borða“. R a n n S Ó k n

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.