Læknablaðið - 01.01.2014, Page 39
LÆKNAblaðið 2014/100 39
Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í
Eru breytingar framundan á
landslagi sjálfstætt starfandi lækna?
Í gegnum árin hafa sjálfstætt starfandi
læknar í Læknafélagi Reykjavíkur gert
samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ)
eða forvera þeirrar stofnunar. Þetta hefur
byggst á því að hver einstakur læknir
hefur haft samning uppá ákveðin læknis-
verk sem tilheyra hans sérgrein. Hin
síðustu ár hefur þetta þróast þannig að
margir læknar hafa safnast saman, oft eftir
nokkurs konar sérgreinaskiptingu í stærri
stöðvar eins og Læknastöðina Glæsibæ,
Læknasetrið og Orkuhúsið. Þó svo að þetta
hafi gert læknum kleift að ráðfæra sig
hvor við annan, innan og utan sinnar sér-
greinar, og samnýta dýran tækjabúnað má
segja að það sé að fullu ríkjandi einyrkja-
fyrirkomulag. Þetta fyrirkomulag er ekki
frekar en flest önnur gallalaust.
Til dæmis má hugsa sér sjúkling sem
kemur í aðgerð sem krefst svæfingar.
Hann fær þá í raun rukkun frá tveimur
læknum sem vinna hvor eftir sinni gjald-
skrá. Reyndar getur sú staða komið upp
að annar vinni eftir samningi en hinn
ekki. Er þá sjúklingurinn sjúkratryggður
að hluta? Við þessar aðstæður getur slík
læknastöð orði hálf óvirk þegar hagsmunir
læknanna, sjúklinganna og stöðvarinnar
fara ekki saman. Einnig má segja að þegar
SÍ gerir samning við marga einyrkja er
ekki hægt að krefjast mikilla skyldna til
dæmis um opnunartíma, staðsetningu og
kannski nákvæmlega hvaða læknisverk er
greitt fyrir.
Til eru samningar SÍ við nokkur fyrir-
tæki eins og Salastöðina, Röntgen Domus
og fleiri. Í nýgerðum samningum SÍ við
LR er opnað fyrir að fara í fleiri slíka
samninga. Það verður ekki túlkað öðruvísi
en að það sé vilji SÍ að gera slíkt.
Aukin þjónusta og/eða lægri kostnaður
hljóta að vera hvati SÍ fyrir þessari áherslu.
Nýlega var í fréttum kynning á metn-
aðarfullri áætlun um uppbyggingu
stærstu lækna- og heilsumiðstöðvar Ís-
lands í fyrrum húsakynnum skemmti-
staðarins Broadway. Það ber að fagna
því framtaki sem er áhugavert og getur
aukið möguleika lækna á að vinna utan
stóru sjúkrahúsanna og hafa hugsanlega
aðgengi að legudeild.
Í nágrannalöndunum er algengt að aðil-
ar sem ekki eru læknar komi að rekstri og
fjármagni einkarekna heilbrigðisþjónustu
en það er nýlunda hér. Reynsla mín af því
að vinna hjá slíkum fyrirtækjum í Noregi
er að læknar hafa lítil áhrif og krafan um
mikil afköst er rík.
Það vaknar upp sú spurning að ef
ætlun SÍ er að ná hagkvæmari samningum
um læknisverk hvort ekki sé hætta á að
kjör lækna skerðist ef á milli þeirra og SÍ
kemur þriðji aðili?
Stjórn lÍ
Þorbjörn Jónsson, formaður
orri Þór ormarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Salome Á. Arnardóttir, ritari
Björn Gunnarsson
Guðrún Jóhanna Georgsdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir
Ólöf Birna Margrétardóttir
Þórarinn Ingólfsson
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Magnús
baldvinsson
sérfræðingur í
læknisfræðilegri
myndgreiningu
magnus.baldvinsson@simnet.is
FYRIRBYGGJANDI GEGN HEILASLAGI
P
R
A
-1
3
-0
1
-7
5
, A
u
g
u
st
2
0
1
3
FYRIRBYGGJANDI MEÐFERÐ GEGN HEILASLAGI OG SEGAREKI Í SLAGÆÐUM
HJÁ FULLORÐNUM SJÚKLINGUM MEÐ GÁTTATIF, SEM EKKI TENGIST HJARTALOKUM,
MEÐ EINN EÐA FLEIRI ÁHÆTTUÞÆTTI*
*Einhvern tíma fengið heilaslag, tímabundna blóðþurrð í heila eða segarek í slagæð; Útfallsbrot vinstri slegils < 40%; Hjartabilun með einkennum, NYHA (New York Heart Association) flokkur II; Aldur 75 ár; Aldur 65≥ ≥
ár og jafnframt eitt af eftirfarandi: sykursýki, kransæðasjúkdómur eða háþrýstingur. Ráðlagður skammtur er Pradaxa 150 mg, 2 sinnum á dag. Pradaxa 110 mg, 2 sinnum á dag fyrir sjúklinga > 80 ára og sjúklinga sem
eru samhliða á meðferð með verapamili.
Sjá nánari upplýsingar í styttri samtekt á eiginleikum lyfsins á bls. XX
Hætta á heilaslagi vegna blóðþurrðar minnkar
um samanborið við warfarín225%
Hætta á heilaslagi og segareki minnkar
um samanborið við warfarín235%
PRADAXA (DAB
IGATRAN)®
EINA NÝJA S
EGAVARNAR
LYFIÐ TIL INN
TÖKU
SEM BYGGIR
Á LANGTÍMA
UPPLÝSINGU
M
LENGUR EN 4 Á
R1
Heimildir: 1) Connolly SJ et al. The Long Term Multi-Center Observational Study of Dabigatran Treatment in Patients with Atrial Fibrillation (RELY-ABLE ) study. Circulation 2013; doi:10.1161/CIRCULATIONAHA.®
112.001139 Connolly SJ, et al. Dabigatran versus warfarin in patients with atrial fibrillation. N Engl J Med 2009; 361:1139-51.2)
Fræðsludagur heimilislækna
– astraZeneca dagurinn
1. mars 2014
Hinn árlegi fræðsludagur heimilislækna verður haldinn á Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars.
Öldrunarlæknar og endurhæfingarlæknar eru sem fyrr hjartanlega velkomnir.
Fræðsludagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og styrktur af AstraZeneca.
Dagskrá hefst kl. 9.00
Nánari dagskrá verður send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH
AstraZeneca