Læknablaðið - 01.01.2014, Síða 43
LÆKNAblaðið 2014/100 43
a ð S E n T
Öll námskeið í fyrirbyggjandi læknis-
fræði, embættislækningum og félags-
lækningum kenna að þar sem fátækt er
einn orsakavaldur sjúkdóma þá hlýtur
læknisfræði líka að vera félagsleg fræði-
grein. Fjöldamargar rannsóknir hafa sýnt
fram á að fátækt og mikil misskipting auðs
er heilsuspillandi.1 Allir læknanemar og
læknar eru þessu sammála; læknar eiga að
bregðast við þegar aðstæður í samfélaginu
verða heilsuspillandi.
Á Íslandi hefur það sama gerst og alls
staðar þar sem bólur og fjármálakreppur
ríða yfir, fátækt almennings vex en mikill
auður safnast á fárra hendur. En þrátt
fyrir ágætt nám í félagslækningum hefur
læknum láðst að láta í sér heyra. Sú staða
sem nú er komin upp í heilbrigðiskerfinu
var algerlega fyrirsjáanleg og var oft rædd
áður en tekin voru lán til þess að fresta
hruninu (lán sem nú eru að komast á
gjalddaga). Samt má ekki segja upphátt
að vandi Landspítalans sé bein afleiðing
hrunsins, það er orðið tabú.
Fjölmargir virðulegir aðilar hafa álykt-
að um fjárhagsvanda Landspítalans, bæði
prófessoraráð, læknaráð, hjúkrunarráð og
fleiri. Krafist er aukinna fjárframlaga frá
„skilningslausum ráðamönnum þjóðar-
innar“. En því miður eru þetta algerlega
marklausar og ábyrgðarlausar yfirlýsingar
þegar ekki er bent á hvaðan þessir fjár-
munir eiga að koma. Á að minnka fjár-
framlög í staðinn til menntamála eða
dómsmála? Eða á að hækka skatta? Skattar
greiðast af millistéttinni, en flestir starfs-
menn Landspítalans tilheyra þeirri stétt;
er verið að fara fram á aukna skatta á
sjálfan sig?
Í Íslandssögunni eru engin dæmi þess
að landsmenn hafi nokkurn tíma risið upp
gegn óréttlæti eða kúgun. Þetta er einstakt
meðal þjóða Evrópu. Halldór Laxness lýsir
þessu þannig: „Það er álitið að fáar þjóðir
hafi þolað kúgun og yfirgang af meiri
kurteisi og undirgefni en Íslendingar. Um
aldaraðir, allt fram á þennan dag, lifðu
þeir í skilningsríkri sáttfýsi við kúgun, án
þess að gera nokkru sinni tilraun til upp-
reistar. Engri þjóð var byltingarhugtakið
jafn framandi. Æfinlega voru Íslendingar
reiðubúnir að kyssa þann vöndinn er sár-
ast beit …“.2 Í stað þess að segja meiningu
sína við kúgarana, þögðu Íslendingar, fóru
heim af þeirra fundi og lömdu konuna og
spörkuðu í hundinn. Íslendingum er ge-
netískt lífsins ómögulegt að snúa spjótum
sínum til baka að árásaraðilanum.
Ályktanir virðulegra ofannefndra sam-
kunda á Landspítalanum beinast að eigin-
konum og hundum þessa lands. Vandi
Landspítalans er ekki til kominn vegna
þess að skattar eru of lágir á Íslandi, eða af
því að „skilningslausir ráðamenn“ setja of
mikið fjármagn til annarra þátta velferðar-
samfélagsins, vandinn er til kominn vegna
bólunnar/hrunsins. Ég spurði samstúdent
minn og sveitunga þegar hann varð fjár-
málaráðherra 2009 hví ekki væri byrjað á
því að ná í fjármagnið til þeirra sem prett-
uðu það af fólkinu. Svarið var: „Ég held
þeir eigi öngva peninga.“ Annað hefur
komið á daginn.
Of langt mál er að rekja hér hversu
óréttmætar eignir auðmanna Íslands eru;
Ísland var orðið skuldugasta ríki heims
þegar árið 2004, og með allt í áhættufjár-
festingum; peningamagn í umferð var
fjórfaldað á örfáum árum, það er gjald-
miðillinn var þynntur fjórfalt. Stjórn-
málamenn, Seðlabanki og fjölmiðlar héldu
hlífiskildi yfir bönkunum og leyndu því
fyrir þjóðinni hversu illa bankarnir stóðu.
Bankamenn nýttu leyndina til þess að fá
óvitandi landsmenn til þess að veðja á
móti sér að krónan myndi styrkjast. Bara
eitt krónuveðmál eins bankaeiganda var
uppá þrjá nýja háskólaspítala. Lífeyrissjóð-
ur læknanna tapaði mörgum milljörðum
á krónuveðmálum meðan stjórnarmaður
í lífeyrissjóði þeirra græddi stórfé á sama
tíma á að veðja öfugt, að krónan myndi
styrkjast. Þetta er ástæðan fyrir versnandi
heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Erlendis eru
læknar oft í broddi fylkingar að vinna
gegn heilsuspillandi félagslegu óréttlæti,
líkt og okkur er kennt að gera í félags-
lækninganáminu. Næsta ályktun frá Land-
spítalanum um úrbætur á fjárhagsvanda
spítalans ætti að enda á: „Kostnaðinn af
þessum umbótum skal greiða með því
að lagður verði 95% skattur á allar eignir
tilkomnar vegna hagnaðar af krónuveð-
málum og útgreidds hagnaðar úr fyrir-
tækjum sem skömmu síðar fóru á hausinn.
Ef ekki er lagastoð fyrir þessu ákvæði
verði sett lög sem leyfa það; ef það brýtur
gegn stjórnarskrá verði gerðar nauðsyn-
legar breytingar á stjórnarskrá þannig að
slík lög megi setja.“ Svona einfalt er þetta í
raun og veru.
1. Leon DA, Walt G. Poverty, inequality and health: an inter-
national perspective. Oxford University Press 2001.
2. Laxness HK. Ósigur ítalska loftflotans í Reykjavík 1933.
Rauðir pennar. Mál og menning, Reykjavík 1938: 114-24.
Áttavilltar ályktanir
andrés
Magnússon
geðlæknir
andresm@landspitali.is