Læknablaðið - 01.01.2014, Síða 48
48 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Læknadagar 2014 eru framundan með
viðamikilli og fjölbreyttri dagskrá.
Gunnar Bjarni Ragnarsson sérfræðingur
í krabbameinslækningum er fram-
kvæmdastjóri Fræðslustofnunar Lækna-
félags Íslands og stýrir sínum fyrstu
Læknadögum, en hann tók við keflinu af
Örnu Guðmundsdóttur í fyrra.
Gunnar Bjarni segir að þrátt fyrir
sívaxandi umfang Læknadaga, þétta 5
daga dagskrá frá morgni til kvölds, taki
hann við svo góðu búi að ekki sé hægt að
kvarta. „Arna Guðmundsdóttir og Mar-
grét Aðalsteinsdóttir ásamt stjórn Fræðslu-
stofnunar hafa komið þessari fræðsluhátíð
okkar lækna í slíkt fyrirmyndarhorf að
það er ánægjulegt að taka við Læknadög-
unum. Ég nýt krafta Margrétar áfram við
skipulagið og undirbúninginn og margir
hafa verið í stjórninni í nokkur ár sem
er mikilvægt til að reynsla þeirra nýtist
áfram. Við höfum átt í farsælli samvinnu
við Iceland Travel um framkvæmd ráð-
stefnunnar og að lokum má ekki gleyma
því að læknar á Íslandi gera ráðstefnuna
mögulega með framlagi sínu.“
Umsóknir um málþing og fyrirlestra
hafa aldrei verið fleiri en í ár svo úr vöndu
var að ráða að sögn Gunnars Bjarna. „Við
fengum fjölda mjög góðra umsókna um
erindi, svo dagskráin er að okkar mati
bæði fjölbreytt og mjög vönduð. Þetta sýn-
ir hve áhuginn á Læknadögum er mikill
og hann fer vaxandi. Við finnum ekki fyrir
kreppu í þessu starfi. Markmið okkar er að
dagskráin höfði til sem flestra lækna, svo
að allir finni þar eitthvað við sitt hæfi, en
hinn félagslegi þáttur Læknadaganna er
ekki síður mikilvægur en sá faglegi, enda
er þetta fyrir marga eina tækifærið á árinu
til að hitta kollega í öðrum sérgreinum og
kynnast því sem er efst á baugi á þeirra
sviði.“
Næring í víðustu samhengi
Hefð hefur skapast fyrir því að helga
fyrsta dag Læknadaganna ákveðnu þema
og í ár er fjallað um næringu í sem víðustu
samhengi. „Tvö stór málþing eru tileinkuð
efninu og er yfirskrift hins fyrra Nútíma-
mataræði og kúrar. Hið síðara er titlað: Þegar
almennu ráðleggingarnar duga ekki og á þeim
báðum fjalla læknar og næringarfræðingar
um lífsstíl og áhrif mataræðis á heilsufar
og sjúkdóma. Þá verður athyglisverður
hádegisverðarfundur um ræktun matjurta
í þéttbýli. Annar hádegisfundur sem vekja
má athygli á er fyrirlestur undir nafninu
Hvernig á að halda góðan fyrirlestur? en þar
gefst gott tækifæri til að kynnast aðferðum
við góða framsögu.“
Opnunarhátíð Læknadaganna með
ávarpi og skemmtiatriði fer fram kl. 16.10
og segir Gunnar að nokkur leynd hvíli
yfir skemmtiatriði dagsins. „Það er enn í
undirbúningi en ég get þó upplýst að ástir
og örlög koma þar eitthvað við sögu enda
finnst okkur mörgum sem ástalíf innan
heilbrigðiskerfisins hafi gleymst að miklu
leyti á þessum síðustu og verstu tímum.“
Gunnari Bjarna vefst skiljanlega tunga
um tönn þegar hann er beðinn að nefna
nokkra helstu fyrirlestra og málþing
Læknadaga. „Það er eiginlega ekki hægt
að gera upp á milli þeirra og helst vildi
ég telja upp alla dagskrána. En til að gefa
hugmynd um fjölbreytnina má nefna tvö
málþing um mismunandi krabbamein og
meðferðir þeirra, vinnubúðir um faralds-
og líftölufræði fyrir klíníska lækna, mál-
þing um langvinna streitu, afleiðingar
höfuðhögga meðal íslenskra ungmenna,
gigt og verkjameðferð, meðferð sprautu-
fíkla, nýjungar í augnlækningum, meðferð
og greining geðhvarfa og geðklofa, stað-
göngumæðrun, kjaramál lækna, líðan og
heilsa lækna, og er þá aðeins fátt eitt nefnt
af því sem er í boði.“
Holsjárspeglun í beinni útsendingu
Forvitnileg nýjung felst í því að sýnd
verður holsjárskoðun í „beinni“ útsend-
ingu frá speglunareiningu meltingarsjúk-
dómadeildar Landspítalans og verða fram-
kvæmdar tvær holsjárskoðanir á vélinda,
maga og skeifugörn annars vegar og ristli
hins vegar. Í framhaldinu af því verður svo
málþing um skimun ristilkrabbameina,
Tíðni ristilkrabbameina eykst svo líkja má
við faraldur. Sýnt hefur verið fram á að
skimun fyrir ristilkrabbameinum bjargar
mörgum mannslífum og í rauninni er til
skammar að skipulögð skimun hafi ekki
verið tekin upp á Íslandi.
Félag áhugamanna um sögu læknis-
fræðinnar veltir fyrir sér spurningunni Var
Jón Sigurðsson með sýfilis? og einnig mun
Óttar Guðmundsson skoða geðhöfn stjórn-
málamanna, húmor Ólafs Thors og geð-
hvörf Churchills.
Erlendir fyrirlesarar eru á annan tug-
inn og segir Gunnar Bjarni að á vegum
Fræðslustofnunar komi 11 erlendir fyrirles-
arar og þrír íslenskir læknar sem búsettir
eru erlendis verða einnig með fyrirlestra.
„Til viðbótar eru nokkrir erlendir fyrirles-
arar á morgunverðar-, hádegis- og síðdegis-
fyrirlestrum í boði lyfjafyrirtækja. Í þessu
samhengi má einnig nefna að á fimmtudeg-
inum og föstudeginum verða vinnubúðir
sem breski heimilislæknirinn Iona Heath
tekur þátt í að skipuleggja ásamt Stefáni
Hjörleifssyni. Hún verður einnig með há-
degisfyrirlestur á föstudeginum undir yfir-
skriftinni Divided we fail.“
Gunnar Bjarni bendir á að fjallað sé
um stöðu lækna, kjaramál og vinnuað-
stæður frá ýmsum hliðum á nokkrum
málþingum. „Við beinum athyglinni að
læknunum sjálfum, en ekki bara viðfangs-
efnum þeirra. Það er þarft og gagnlegt að
líta í eigin barm og taka stöðuna, ekki síst
núna í ljósi umræðna um stöðu íslenska
heilbrigðiskerfisins.“
Samstarf við lyfjafyrirtæki er í mót-
uðum farvegi að sögn Gunnars Bjarna.
„Lyfjafyrirtæki geta sótt um að halda
fundi utan hefðbundinnar dagskrár,
snemma á morgnana, í hádeginu og
eftir klukkan 16 á daginn. Þetta er eftir-
sótt og er fullskipað alla dagana. Þá geta
lyfjafyrirtækin sótt um sýningarpláss á
Læknadögum og verið með kynningar á
vörum sínum og starfsemi. Framlag lyfja-
fyrirtækjanna er mjög mikilvægur þáttur
í kostun Læknadaga en taka verður skýrt
fram að þetta hefur ekki áhrif á dagskrána
Glæsileg dagskrá Læknadaga 2014
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson