Læknablaðið - 01.03.2014, Qupperneq 3
Myndina á kápunni tók Magnús
Ólafsson árið 1910 en hann var einn
kunnasti ljósmyndari landsins á fyrri
hluta 20. aldar. Holdsveikraspítalinn
blasir við með Esjuna og Skarðsheið-
ina í bakgrunni en í forgrunni er salt-
fiskbreiðsla og stakkstæði á vegum
P. Thorsteinssonar á Kirkjusandi.
Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi
var vígður 27. júlí 1898. Hann var eitt
stærsta hús landsins, um 750 m2, og
líklega eitt stærsta timburhús sem
byggt hefur verið hérlendis. Spítalinn
var byggður fyrir erlent gjafafé
sem Oddfellow-reglan í Danmörku
safnaði og uppfyllti allar þarlendar
kröfur um spítala. Spítalinn markar
upphaf nútímaspítala á Íslandi en þó
hann hafi ekki verið fyrsti spítalinn,
var hann sá eini sem uppfyllti kröfur
þess tíma.
Holdsveikraspítalinn var tveggja
hæða hús með risi á steyptum
kjallara. Hann var málaður gulum lit
en gluggakarmar ýmist rauðir, bláir
eða grænir og að innan voru notaðir
ljósir bjartir litir. Aðkoman var sérlega
glæsileg og gengið var inn í stóran
forsal en sjúkraherbergi með stórum
gluggum voru á hæðunum og sneru
út. Herbergin voru eins og tveggja
manna en alls var rúm fyrir um 60
sjúklinga og tvö salerni voru á hverri
hæð. Gangar og þjónusturými, þar á
meðal eldhús, þvottahús og líkhús,
sneru inn og voru norðanmegin. Í
risinu bjó allt starfsfólk spítalans.
Sæmundur Bjarnhéðinsson
(1863-1936) var ráðinn yfirlæknir og
gegndi því starfi til ársins 1934 og
samkvæmt kröfu gefanda var einnig
ráðin hjúkrunarkona, Christophine
Mikkeline Jørgensen (1868-1943),
en þá voru engar hjúkrunarkonur á
Íslandi. Christophine giftist Sæmundi
1902 og þá tók Harriet Kjær við og
var yfirhjúkrunarkona 1902-1929.
Undir stjórn þessara dönsku hjúkr-
unarkvenna var komið á viðurkennd-
um erlendum spítalaaga. Nokkrar
ungar konur sem réðust til starfa við
spítalann lærðu fyrstu handtökin þar
en luku síðan námi í Danmörku og
spítalinn gegndi þannig mikilvægu
hlutverki í menntun hjúkrunarfræð-
inga. Holdsveikraspítalinn var einkum
hjúkrunar- og einangrunarstofnun
en þar voru reynd margvísleg lyf til
lækninga á holdsveikinni. Spítalinn
var einnig búinn rannsóknartækjum
og þar voru stundaðar skipulagðar
sjúkdómskrufningar og aðrar rann-
sóknir á sjúkdómssýnum sem vöktu
athygli víða um heim.
Fyrstu sjúklingarnir, feðgar, komu
í spítalann 10. október 1898 en tíu
dögum síðar komu strandferðaskip
til Reykjavíkur og með þeim fjöldi
holdsveikrasjúklinga sem hafði verið
safnað saman um landið. Fljótlega
varð hvert rúm skipað og þótt
dánartalan væri há fyrstu árin bætt-
ust nýir sjúklingar við, en talið er að
holdsveikir hafi verið um 250 talsins.
Fljótlega fór starfið að skila árangri
og spítalinn útskrifaði sjúklinga og
var því aðeins nýttur að hluta en
þá sáu yfirvöld sér leik á borði og
notuðu hluta hans fyrir geðsjúklinga.
Árið 1940 tók breski herinn spítalann
yfir og voru hinir fáu sjúklingar sem
þar voru þá fluttir á Kópavogshælið.
Spítalinn brann til kaldra kola 7. apríl
1943.
Jón Ólafur Ísberg
LÆKNAblaðið 2014/100 131
læknablaðið
the icelandic medical journal
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104 – 564 4106
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1750
Áskrift
12.400,- m. vsk.
Lausasala
1240,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Holdsveikraspítalinn
í Laugarnesi
Stríðsáramynd tekin 1941-43, hér sést Laugarneskampur sem var einn af þeim stærstu í Reykjavík og stóð framan við Holdsveikraspítal-
ann. Síðasti bragginn var rifinn 1980. Ljósmyndarinn er óþekktur. Myndirnar eru allar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Myndin er tekin árið 1916 og er af pípulagningamönnum við spítalann. Ljósmyndari:
Magnús Ólafsson.
Yfirlitsmynd Ólafs Magnússonar sýnir Laugarnesið og upphaf götumyndunar þar. Esjan
er á sínum stað. Spítalinn stóð þar sem nú er bílastæðið við safn Sigurjóns Ólafssonar.
Holdsveikraspítalinn kemur fyrir í sögunni sem hreppti Íslensku bókmenntaverðlaunin
2013, Mánasteinn, drengurinn sem aldrei var til, eftir Sjón. Þar er sögusviðið
Reykjavík 12. október til 6. desember 1918, Katla gýs og spænska veikin heldur bæjarbúum
í heljargreipum.
Ný meðferð fyrir sjúklinga með sykursýki tegund 2
Ný leið til að lækka
umframmagn af glúkósa
- fjarlægir hann1
Eina meðferðin sem
fjarlægir umframmagn
af glúkósa um nýrun1
FJARLÆGIR
um 70 g af glúkósa
daglega.
Getur leitt til þyngdartaps1
1 Heimild: Sérlyfjaskrártexti Forxiga (dapagliflozin),
apríl 2013.
LÆKKAR
BLÓÐSYKUR
HbA1C1
Nýtt!
1
2
-2
0
1
3
-0
1