Læknablaðið - 01.03.2014, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2014/100 177
M i n n i n G a R G R E i n
Þorkell á baki eftirlætishestinum Gangvara. Hann átti reyndar
aldrei sjálfur þennan gæðing. Fyrst eignaðist Bergþóra dóttir hans
hestinn, en síðar eiginkona hans, Ester Eggertsdóttir. Málverkið
gerði U. Kimpfler eftir ljósmynd.
Mynd af málverki: Þorkell Þorkelsson.
hver maður sem hefur hana á hnakknefinu
á að komast klakklaust allar þessar leiðir
og þekkja hvert leiti á leiðinni með nafni!
Þorkell var brautryðjandi í háskóla-
kennslu í lyfjafræði á Íslandi að fyrirrenn-
urum hans ólöstuðum, sem voru báðir
hinir mætustu menn og góðir kennarar.
Hann tók upp þann sið að hafa lækni sem
stundaði klínísk störf í tímum hjá sér til
að tryggja að kennslan yrði ekki síður
hagnýt en fræðileg. Einnig fór hann að
halda kvöldfundi með stúdentum þar sem
farið var yfir ákveðið svið. Þar mættu aðrir
kennarar greinarinnar auk utanaðkom-
andi lækna sem notuðu þessi lyf daglega
í starfi sínu. Þar gátu orðið hörð skoð-
anaskipti milli fræðimannanna og þeirra
sem stunduðu lækningar og höfðu allir
viðstaddir gaman af.
Ég sat stundum í tímum hjá honum og
kynntist því hvílíkur afbragðs kennari
hann var. Hann talaði hægt, og þegar kom
að aðalatriðum sagði hann oft: „Ég endur-
tek“ og fór síðan aftur yfir það sem hann
vildi leggja áherslu á. Þorkell þekkti það
af eigin raun að sumum hentar að taka
skrifleg próf en öðrum munnleg. Hann var
tilbúinn að leggja það á sig og aðra kenn-
ara greinarinnar að bjóða stúdentum að
velja hvorn háttinn þeir vildu frekar. Hann
vissi sem var að aðalatriðið var að prófa
kunnáttu stúdentsins. Prófformið skipti
ekki máli. Því miður bönnuðu háskólayfir-
völd honum þetta eftir að það hafði varað
í fáein ár. Annað sem einkenndi kennslu
hans var að íslenska öll fræðiheiti, og voru
þeir kollegar hans, Magnús Jóhannsson,
Jakob Kristinsson og aðrir kennarar í
lyfjafræði, mjög samstíga á þessu sviði.
Þeir voru áhugamenn um íslenskt mál og
duglegir nýyrðasmiðir, alltaf tilbúnir að
breyta orðum til hins betra ef það fyrsta
reyndist ekki vel. Ég er ekki viss um að
allir geri sér grein fyrir hvert þjóðþrifaverk
þessir menn unnu. Legg aðeins til að fólk
líti í Læknablaðið eða Læknanemann frá 6.
áratug síðustu aldar til að kynna sér mál-
far stéttarinnar.
Þorkell sinnti rannsóknarskyldu
prófessors með afbrigðum vel og vann að
vísindum nánast fram í andlátið. Læt ég
nægja að vísa í ágætar minningargreinar
þeirra Jóns Snædals og Magnúsar Karls
Magnússonar varðandi það.
Ég verð aðeins að minnast á hesta-
mennsku Þorkels sem færði honum mikla
lífshamingju. Hann var að upplagi mikill
dýravinur, hafði ætlað sér að læra dýra-
lækningar þótt tilviljun ylli því að hann
sneri sér að læknisfræðinni. Hestar hans
voru vinir hans, duglegir ferðahestar en
engir sýningargripir. Yfirleitt tamdi hann
þá sjálfur. Yrði þeim misdægurt hefði
engin móðir hugsað betur um barn sitt.
Helsta athugasemd við fóðrun þeirra var
að þeir voru í feitara lagi, eins og hann
reyndar sjálfur! Það er erfitt að lýsa Þor-
keli svo fullnægjandi sé. Hann var meðal-
maður á hæð, mjög þrekvaxinn án þess að
vera beinlínis feitur. Hann var rammur að
afli, svipsterkur en ekki smáfríður og það
sópaði að honum. Hann stamaði, en mér
fannst það aldrei há honum, jafnvel styrkja
hann í kennslunni af því hann talaði ekki
hratt vegna þess. Hann var mjög vel gef-
inn, einhver fjölfróðasti maður sem ég hef
kynnst. Hann var skoðanafastur og mjög
rökfastur, gat verið þrjóskur. Hann skrifaði
stundum stuttar hnitmiðaðar greinar í
Morgunblaðið um mál sér hugleikin sem
unun var að lesa. Gallalaus var hann ekki
frekar en við hin. Í honum var bæði gull
og grjót. En mér fannst grjótið klæða
hann, það var hluti af karakternum. Gullið
sem hann hafði í svo ríkum mæli naut sín
því betur en ella.
Þorkell átti við mikið heilsuleysi að
stríða sín síðustu ár en lét það lítið á sig
fá. Hann sinnti öllum sínum áhugamálum
nema helst hestamennskunni fram í
andlátið. Hann varð bráðkvaddur í veislu
sem hann var nýkominn til. Þorkell trúði á
líf að þessu loknu. Hafi hann rétt fyrir sér
hlakka ég til að hitta hann aftur.
Tryggvi Ásmundsson