Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2014, Síða 49

Læknablaðið - 01.03.2014, Síða 49
LÆKNAblaðið 2014/100 177 M i n n i n G a R G R E i n Þorkell á baki eftirlætishestinum Gangvara. Hann átti reyndar aldrei sjálfur þennan gæðing. Fyrst eignaðist Bergþóra dóttir hans hestinn, en síðar eiginkona hans, Ester Eggertsdóttir. Málverkið gerði U. Kimpfler eftir ljósmynd. Mynd af málverki: Þorkell Þorkelsson. hver maður sem hefur hana á hnakknefinu á að komast klakklaust allar þessar leiðir og þekkja hvert leiti á leiðinni með nafni! Þorkell var brautryðjandi í háskóla- kennslu í lyfjafræði á Íslandi að fyrirrenn- urum hans ólöstuðum, sem voru báðir hinir mætustu menn og góðir kennarar. Hann tók upp þann sið að hafa lækni sem stundaði klínísk störf í tímum hjá sér til að tryggja að kennslan yrði ekki síður hagnýt en fræðileg. Einnig fór hann að halda kvöldfundi með stúdentum þar sem farið var yfir ákveðið svið. Þar mættu aðrir kennarar greinarinnar auk utanaðkom- andi lækna sem notuðu þessi lyf daglega í starfi sínu. Þar gátu orðið hörð skoð- anaskipti milli fræðimannanna og þeirra sem stunduðu lækningar og höfðu allir viðstaddir gaman af. Ég sat stundum í tímum hjá honum og kynntist því hvílíkur afbragðs kennari hann var. Hann talaði hægt, og þegar kom að aðalatriðum sagði hann oft: „Ég endur- tek“ og fór síðan aftur yfir það sem hann vildi leggja áherslu á. Þorkell þekkti það af eigin raun að sumum hentar að taka skrifleg próf en öðrum munnleg. Hann var tilbúinn að leggja það á sig og aðra kenn- ara greinarinnar að bjóða stúdentum að velja hvorn háttinn þeir vildu frekar. Hann vissi sem var að aðalatriðið var að prófa kunnáttu stúdentsins. Prófformið skipti ekki máli. Því miður bönnuðu háskólayfir- völd honum þetta eftir að það hafði varað í fáein ár. Annað sem einkenndi kennslu hans var að íslenska öll fræðiheiti, og voru þeir kollegar hans, Magnús Jóhannsson, Jakob Kristinsson og aðrir kennarar í lyfjafræði, mjög samstíga á þessu sviði. Þeir voru áhugamenn um íslenskt mál og duglegir nýyrðasmiðir, alltaf tilbúnir að breyta orðum til hins betra ef það fyrsta reyndist ekki vel. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir hvert þjóðþrifaverk þessir menn unnu. Legg aðeins til að fólk líti í Læknablaðið eða Læknanemann frá 6. áratug síðustu aldar til að kynna sér mál- far stéttarinnar. Þorkell sinnti rannsóknarskyldu prófessors með afbrigðum vel og vann að vísindum nánast fram í andlátið. Læt ég nægja að vísa í ágætar minningargreinar þeirra Jóns Snædals og Magnúsar Karls Magnússonar varðandi það. Ég verð aðeins að minnast á hesta- mennsku Þorkels sem færði honum mikla lífshamingju. Hann var að upplagi mikill dýravinur, hafði ætlað sér að læra dýra- lækningar þótt tilviljun ylli því að hann sneri sér að læknisfræðinni. Hestar hans voru vinir hans, duglegir ferðahestar en engir sýningargripir. Yfirleitt tamdi hann þá sjálfur. Yrði þeim misdægurt hefði engin móðir hugsað betur um barn sitt. Helsta athugasemd við fóðrun þeirra var að þeir voru í feitara lagi, eins og hann reyndar sjálfur! Það er erfitt að lýsa Þor- keli svo fullnægjandi sé. Hann var meðal- maður á hæð, mjög þrekvaxinn án þess að vera beinlínis feitur. Hann var rammur að afli, svipsterkur en ekki smáfríður og það sópaði að honum. Hann stamaði, en mér fannst það aldrei há honum, jafnvel styrkja hann í kennslunni af því hann talaði ekki hratt vegna þess. Hann var mjög vel gef- inn, einhver fjölfróðasti maður sem ég hef kynnst. Hann var skoðanafastur og mjög rökfastur, gat verið þrjóskur. Hann skrifaði stundum stuttar hnitmiðaðar greinar í Morgunblaðið um mál sér hugleikin sem unun var að lesa. Gallalaus var hann ekki frekar en við hin. Í honum var bæði gull og grjót. En mér fannst grjótið klæða hann, það var hluti af karakternum. Gullið sem hann hafði í svo ríkum mæli naut sín því betur en ella. Þorkell átti við mikið heilsuleysi að stríða sín síðustu ár en lét það lítið á sig fá. Hann sinnti öllum sínum áhugamálum nema helst hestamennskunni fram í andlátið. Hann varð bráðkvaddur í veislu sem hann var nýkominn til. Þorkell trúði á líf að þessu loknu. Hafi hann rétt fyrir sér hlakka ég til að hitta hann aftur. Tryggvi Ásmundsson

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.