Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2014, Side 28

Læknablaðið - 01.03.2014, Side 28
156 LÆKNAblaðið 2014/100 S A G A L Æ K N I S F R Æ Ð I N N A R gaf út Læknanemann frá árinu 1941 og er þar að finna gríðarlega miklar upplýsingar um starf læknadeildar. Nám og vinna Víða kemur þó fram í viðtölum, frásögnum og æviminningum að menn fara snemma að vinna við lækningar og bera meiri ábyrgð en stallbræður þeirra og systur í öðrum löndum. Frásagnir eru um læknanema sem eru fengnir á ferðalagi til að hjálpa konum í barnsnauð eða aðstoða reynda héraðslækna við uppskurði. Kannski má segja að þetta hafi verið eitt helsta einkenni lækna- kennslu á Íslandi. Menn fara fyrr að vinna og bera meiri ábyrgð en annars staðar og öðlast þannig reynslu og læra að taka ákvarðanir. Íslenskir læknar hafa yfirleitt staðið sig ágætlega úti í hinum stóra heimi. Ég hef um árabil unnið í Svíþjóð og haft mikið með sænska lækna að gera. Það bregst ekki að flestallir sænskir læknar hafa einhverja sögu að segja af íslenskum lækni sem þeir hafa unnið með. Þessar sögur eru venjulega jákvæðar og fullar af að- dáun. Ég held að þessir íslensku læknar hafi staðið sig með slíkum ágætum ekki vegna þess að þeir menntuðust í læknadeild Háskóla Íslands heldur þrátt fyrir þá staðreynd. Ólafur Ólafsson læknir staðfestir þetta: „Ef marka má af því hvernig menn stóðu sig sem fóru utan til framhaldsnáms að loknu námi í læknadeildinni hér heima held ég að fullyrða megi að deildin hafi verið allgóð. Menn töluðu hins vegar mikið um það á tímabili að hún væri slæm. Skömmu eftir að ég var orðinn land- læknir rakst ég á grein sem birst hafði í hinu virta læknatímariti Lancet og var síðan endurbirt í norrænu læknatímariti þar sem gerð var úttekt á því hvernig læknar frá ýmsum þjóðum sem tækju próf til að öðlast læknisréttindi í Bandaríkjunum stæðu sig. Þar kom fram að þrjár þjóðir skæru sig úr, það er að segja Bretar, Írar og Íslendingar. Yfir 90% lækna frá þessum þjóðum stæðust prófið og var lagt til að læknum þaðan yrði sleppt við að taka það. Sumir hörðustu gagnrýnendurnir urðu ærið langleitir við að heyra þetta.“ Kannski má segja að stefna deildarinnar hafi verið sú að mennta menn ágætlega á bókina í kenningum og meðferð læknis- fræðinnar og kasta þeim svo útí lífið og vona að þeir hefðu skyn- semi og dómgreind til að nýta sér þá menntun sem þeir höfðu fengið. Sem betur fer hefur þetta gengið upp í langflestum til- vikum og íslenskir læknakandídatar hafa haldið út í heim með höfuðið fullt af læknisfræðifróðleik sem þeim hefur tekist að nýta sér við mismunandi aðstæður. Helstu heimildir Pálsson S. Æfisaga Bjarna Pálssonar. Árni Bjarnarson, Akureyri 1944. Blöndal LH, Jónsson V. Læknar á Íslandi. Fyrra bindi. Reykjavík 1970. Jónsson JH. Læknakennsla á Íslandi. Læknaneminn 1966; 19: 42-6. Sigurjónsson H. Læknir í blíðu og stríðu. Æviminningar Páls Gíslasonar yfirlæknis og skáta- höfðingja. Bókaútgáfan Hólar, Akureyri 2010. Schram GG. Héraðslæknir fyrir hálfri öld: Bjarni Snæbjörnsson læknir í Hafnarfirði segir frá. Læknar segja frá. Setberg, Reykjavík 1970. Kolka PVG. Hálf öld. Vísindin efla alla dáð: afmæliskveðja til Háskóla Íslands 1961 / gefið út af Bandalagi háskólamanna; [ritnefnd Kristján Eldjárn, Ólafur Bjarnason, Sigurður Þórarinsson]. Hlaðbúð, Reykjavík 1961. Gröndal G. Æviminningar Kristjáns Sveinssonar augnlæknis. Setberg, Reykjavík 1982. Magnússon S. Endurminningar læknis. Iðunn, Reykjavík 1985. Sæmundsson MV. Minningar barnalæknis. Lífssaga Björns Guðbrandssonar. Forlagið, Reykjavík 1987. Þorsteinsson E. Æviminningar Erlings Þorsteinssonar læknis. Iðunn, Reykjavík 1990. Kristinsson VG. Ólafur landlæknir, endurminningar. Vaka-Helgafell, Reykjavík 1999. Læknaneminn 1941-1970. Læknablaðið 1915- Myndin er tekin 1908 við Reykjavikurtjörn. Matthías Einarsson læknir og Ellen Ludvika Einarsson konan hans með barnavagn á Tjarnargötunni. Ljósmyndari: Magnús Ólafsson. Staðfest sem 1. valkostur til viðhaldsmeðferðar. Við LLT á öllum stigum ®HEFJIÐ MEÐFERÐ MEÐ SPIRIVA (TÍÓTRÓPÍUM) 2��milljónir�sjúklingaára� **1 ��me��Spiriva ÞAÐ Á AÐ LIFA LÍFINU SPIRIVA: Langverkandi andkólínvirkt lyf til viðhaldsmeðferðar við LLT einu sinni á dag. SPIRIVA TÍÓTRÓPÍUM 16% FÆKKUN 2DAUÐSFALLA P< 0,05 • • • • • • • • Minnkar viðvarandi 3.4.* andnauð Minnkar marktækt hættu 5,6,*,+á versnun LLT Eykur marktækt lífsgæði 5,7,8,#.+ hjá LLT-sjúklingum Eykur marktækt líkamlegt 4,9,10,# úthald # Upplýsingarnar sem koma fram vísa til meðferðar með SPIRIVA 18 míkróg ®einu sinni á dag með HandiHaler + SPIRIVA breytti ekki skerðingarhraða lungnastarfsemi. Aukaendapunktur í UPLIFT sýnir að meðferðin leiðir til meiri bóta á lungnastarfsemi saman- borið við lyfleysu S p i- 1 3 -0 1 -1 0 m aj 2 0 1 3 Andkólínvirkt lyf með fyrirliggjandi upplýsingar um dauðsföll *Ábendingin: Tíótrópíum er ætlað sem berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð til að lina einkenni hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu (LLT). ** Í heiminum. Heimildir: 1. Yohannes, A.M. et al, Ten years of tiotropium: clinical impact and patient perspectives, International Journal of COPD 2013;8:117-125. 2. Samantekt á eiginleikum Spiriva innöndunardufti í hylkjum, samþykkt af heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku 19. júní 2012. „Lyfhrif: Í rannsókn sem stóð yfir í 4 ár sást bati á lungnastarfsemi (FEV1). Batinn hélst stöðugar öll 4 árin. Á meðferðartímanum sást 16% minnkun hættu á dauðsfalli.“ 3. Casaburi R et al. A long-term evaluation of once-daily inhaled tiotropium in chronic obstructive pulmonary disease. Eur Respir J 2002;19:217-224. 4. O'Donnell DE et al. Effects of tiotropium on lung hyperinflation, dyspnoea and exercise tolerance in COPD. Eur Respir J 2004;23:832-840. 5. Tashkin DP et al; for the UPLIFT® Study Investigators. A 4-year trial of tiotropium in chronic obstructive pulmonary disease. N Engl J Med 2008;359:1543-54. 6. Vogelmeier C et al; for the POET-COPD Investigators. Tiotropium versus salmeterol for the prevention of exacerbations of COPD. N Engl J Med 2011;364:1093-1103. 7. Troosters T et al; for the UPLIFT® Study Investigators. Tiotropium as a first maintenance drug in COPD: secondary analysis of the UPLIFT® trial. Eur Respir J 2010;36:65-73. 8. Tonnel AB et al; for the TIPHON study group. Effect of tiotropium on health-related quality of life as a primary efficacy endpoint in COPD. Int J Chron Obstruct Pulmon Dis 2008;3:301-310. 9. Casaburi R et al. Improvement in Exercise Tolerance With the Combination of Tiotropium and Pulmonary Rehabilitation in Patients With COPD. Chest 2005;127:809-817. 10. Maltais F et al. Improvements in Symptom-Limited Exercise Performance Over 8 h With Once-Daily Tiotropium in Patients With COPD. Chest 2005;128:1168-1178.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.