Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2014, Qupperneq 36

Læknablaðið - 01.03.2014, Qupperneq 36
164 LÆKNAblaðið 2014/100 S A G A L Æ K N I S F R Æ Ð I N N A R Mynd 1. Árangursdreifing og fjöldi íslenskra læknanema á nýlegu prófi. Rammi 3. Framhaldsmenntun lækna á Íslandi (1987). Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga til að læknadeild Háskóla Íslands geti tekið að sér og haft yfirumsjón með menntun kandídata. 1. Takast þarf náið samstarf heilbrigðismálaráðuneytis og menntamálaráðuneytis um framkvæmd. 2. Læknadeild skipuleggi starf kandídata þannig að það nýtist sem best sem starfsþjálfun og viðhaldsmenntun að loknu embættisprófi. 3. Klínískt nám læknastúdenta verði nátengt postgraduate þjálfun. 4. Stefnt skal að því að ábyrgð kandídata á sjúklingum verði stóraukin undir tryggu eftirliti sérfræðinga. 5. Breytt verði vinnutillögum á ýmsum deildum sjúkrahúsa til þess að störf kandídata nýtist þeim til framhaldsþjálfunar. M.a. skuli kannað hvort breyta þurfi fyrirkomulagi á bráðavöktum til að kandídötum og stúdentum gefist tækifæri til að fylgja sjúklingum eftir um lengri tíma (auka continuitet). Það hefur verið ánægjulegt að sjá hvað nemendur hafa verið framtakssamir og hversu vel þeim hefur gengið að skipuleggja námskeið sín og velja sér ábyrgðarmann (handleiðara). Margir velja verkefni tengd klínísku deildunum á Landspítala eða í heilsugæslu. Sumir sækja hluta námskeiðsins til útlanda og verja gjarnan um þriðjungi námstímans erlendis. Þar eru Bandaríkin, Bretland, Noregur, Svíþjóð, Sviss og Danmörk á lista, en auk þess Nepal, Indland, Tasmanía, Tansanía, Bahamaeyjar, Úganda, Nýja-Sjáland, Chile, Mexíkó og Malaví. Þarna skapast sambönd sem nemendur nýta og má segja að þeir hafi á þennan hátt valið „Global medicine“ sem deildin myndi ekki hafa haft bolmagn til að skipuleggja. Fjöldi þeirra sem notuðu valtímabilið undir rann- sóknaverkefni, ýmist í framhaldi af 3. árs verkefni eða í nýrri þekk- ingaleit, er einnig umtalsverður. Comprehensive Clinical Science Examination (CCSE) CCSE hefur verið haldið frá 2007. Það hefur verið talið nauðsynlegt fyrir jafn litla deild og læknadeild HÍ að leita eftir viðurkenningu erlendra aðila. Viðræður kennslustjóra við aðila í Bandaríkjunum hófust þegar árið 1990, við Educational Commission for Foreign Medical Graduates (ECFMG) og National Boards of Medical Ex- aminers (NBME). Eftir síðustu aldamót komst skriður á málið. Árið 2007 var nemendum á 6. ári í fyrsta sinn gert að gangast undir bandarískt próf, CCSE, sem deildin keypti frá NBME. Prófið veitir ekki réttindi til að stunda framhaldsnám í Bandaríkjunum líkt og USMLE – step 2 (United States Medical Licencing Examina- tion), en árangur á þessum prófum er hliðstæður. Prófið er nú tekið á tölvu og hefur læknadeild aðstoðað nemendur við undirbúning með sérstökum æfingaprófum. Frammistaða íslenskra læknanema hefur verið með miklum ágætum í samanburði við bandaríska kollega þeirra (mynd 1). Jafnframt fær deildin yfirlitsupplýsingar um frammistöðu í einstökum greinum og þótt prófið miði vissu- lega við bandarískan raunveruleika, hefur það ekki komið að sök. Þá er í undirbúningi að leggja fyrir í fyrsta skipti samskonar próf í grunngreinum læknisfræðinnar (Comprehensive Basic Science Examination) á vormisseri 2014. Tekist hefur ágætt samband við NBME og hefur stofnunin verið áhugasöm um frekara samstarf, svo sem um þróun slíkra prófa fyrir evrópska læknaskóla. Erlend samskipti Erlend samskipti hafa verið mikil og víðtæk, má þar nefna samskipti við stofnanir og samtök eins og Nordisk Federation for Medicinsk Undervisning fram til ársins 1993, og öflun þekkingar og reynslu til Association for Medical Education in Europe (AMEE) og World Federation for Medical Education. Í gegnum þessi sambönd og í gegnum persónuleg sambönd lækna sem hafa farið til bestu staða í Bandaríkjunum og Evrópu, hafa myndast og haldist tengsl sem hafa reynst afar verðmæt fyrir þróun læknanemakennslu á Íslandi. Fyrirhugað er að árið 2023 verði allir læknaskólar komnir með alþjóðlega viðurkenningu og þarf deildin brátt að fara að undirbúa slíkt mat. Í viðræðum við ECFMG á síðasta ári kom þó fram að þeim ráðagerðum er nú ekki beinlínis beint að skólum eins og þeim íslenska, en það er sjálfsagt að fylgjast með og taka þátt. Áður en að því kemur verður gerð sérstök úttekt á vegum mennta- málaráðuneytisins, sennilega á næsta ári. Klínísk kennsla/nám Þróun klínískrar kennslu hefur dregið dám af breytingum sem orðið hafa í heilbrigðisþjónustu. Lítillega voru áður nefndar breyt- ingar í lyflæknisfræði og handlæknisfræði á 4. og 6. ári. Þar hefur náðst mikil og góð samvinna milli Landspítala og læknadeildar, heilsugæslunnar og Sjúkrahússins á Akureyri. Sameiginlegir starfsmenn Landspítala og Háskóla Íslands hafa dregið vagninn, aðlagað nám og kennslu að þeim breytingum og skorðum sem niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefur sett kennslu og háskóla- starfi, til dæmis á Landspítala. Samstarf kennara í lyflækningum og skurðlækningum, myndgreiningu og meinefnafræði við endurskipulagningu náms á 4. ári hefur leitt af sér nýjar áherslur, aukna teymisvinnu, sérstaka þemadaga og þátttöku nemenda í kennslu. Kennsla á 5. ári, barnalækningar, kvensjúkdómar og fæðingarhjálp, taugalæknisfræði og geðlæknisfræði, hefur ekki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.