Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2014, Side 53

Læknablaðið - 01.03.2014, Side 53
LÆKNAblaðið 2014/100 181 tíma kom fyrir að við vorum spurðar hvort við værum „Björks’ dancers“. Það fannst okkur mjög fyndið.“ Stúlknakórinn sem Björk tók með sér héðan frá Íslandi var upphaflega 24 stúlkur en fjöldinn hefur verið nokkuð breytilegur eftir því sem persónulegir hagir breytast, að sögn Elínar Eddu, nám, barneignir og ýmislegt annað hefur eðli- lega haft sín áhrif á ferðamöguleikana, svo stundum hafa þær verið færri, en aldrei fleiri. „Þegar við fórum fyrst út sumarið 2011 vissum við ekkert hvað við vorum að fara útí. Þetta var heimur sem engin okkar þekkti og skyndilega vorum við farnar að umgangast heimsfrægar stjörnur úr tón- listarbransanum. Við héldum þá að þetta yrði ekkert meira en þetta verkefni, um haustið yrði þetta búið og við allar komn- ar í okkar eðlilegu rútínu aftur. Þá var haft samband og okkur boðið á tónlistarhátíð á Isle of Wight í Bretlandi. Fljótlega kom svo í ljós að þetta var miklu stærra verkefni en við höfðum haft hugmynd um og Björk hafði hugsað sér að hafa kórinn með sér á tónleikaferðum um allan heim næstu eitt til tvö árin. Okkur var því í rauninni boðin vinna við þetta og það var sannarlega mjög spennandi. Þetta kom í kjölfarið á tónleikunum átta sem Björk hélt hér heima í Hörpunni í tengslum við Airwaves-há- tíðina í október 2011. Það var ekkert mál að taka þátt í því, þó ég væri komin á annað ár í læknisfræðinni, enda æfingar og tón- leikar ekki á skólatíma.” Aðspurð um hvort líf rokkstjörnunnar hafi heillað, segir hún að þetta hafi verið ævintýri frá upphafi til enda. „Einhver gæti kannski haldið að maður fengi nóg eftir eina eða tvær ferðir en svo var alls ekki. Þetta var alltaf alveg ótrúlega spenn- andi og frábært að fá tækifæri til að sjá alla þessa staði. Þetta sameinar svo ótal margt. Fá innsýn í líf rokkstjarnanna og venjast því að hitta þær baksviðs og fara út að skemmta sér með heimsfrægu fólki. Svo var auðvitað hópurinn sem ferðaðist með okkur samansettur af miklum fagmönnum úr öllum áttum og vorum við í lokin orðin eins og ein stór fjölskylda. Tónlistarmenn- irnir, tæknimenn og Björk ásamt ýmsu aðstoðarfólki og vinum voru að jafnaði um 40 talsins. En þrátt fyrir að hafa verið í hópi góðra vina, þá naut ég þess alltaf að skoða landslag og borgir ein míns liðs og hafði yfirleitt tíma til að leyfa mér slíkt í þessum ferðum.” Um veturinn 2011 var kórinn kallaður til að syngja í sjónvarpsþætti Jools Holland í breska sjónvarpinu ásamt Red Hot Chili Peppers og Noel Gallagher, svo einhverjir séu nefndir. „Við vorum auðvitað sjúklega spenntar fyrir þessu. Þetta var eiginlega of mikið fyrir okkur. Næsta verkefni var síðan fimm vikna tónleikaröð í New York í febrúar 2012. Við Begga (Bergljót Rafnar) tókum þá ákvörðun að við gætum ekki farið út ásamt því að halda áfram á sama stað í náminu. Stelpurnar voru því aðeins færri í þetta skiptið og í framhaldinu var farið í tónleikaferð um nokkur lönd Suður- Ameríku, meðal annars Mexíkó, Brasilíu og Argentínu. Þetta stóð alveg fram í maí og nokkrar stelpnanna þurftu að taka sér hlé frá námi vegna þessa. Við Begga vorum heima og kláruðum annað árið í læknisfræðinni á meðan. Um sumarið 2012 var okkur svo boðið að taka þátt í tónleikaferð um Marokkó og Evrópu, ferð sem stóð frá byrjun júní fram í miðjan ágúst, akkúrat sumarfríið. Þarna upplifðum við ekta líf rokkstjarn- anna, ferðuðumst á milli tónlistarhátíða í svokölluðum „tourbus“ með ýmsum fríð- indum og bjuggum á hótelum á hverjum stað þess á milli. Þetta var bara… geðveikt. Við vorum 14 í kórnum í þessum túr, allar á svipuðum aldri, og búnar að vera vinkonur frá unga aldri. Hversu frábært er það að ferðast heilt sumar með vinkvenna- hópi og syngja fyrir tugþúsundir á tón- leikum með einni stærstu stjörnu veraldar Á fullri ferð á tónleikum á Fuji Rock tónlistarhátíðinni í Japan sumarið 2013. Björk er lengst til hægri á myndinni, en Elín Edda lengst til vinstri. Ljósmynd/Kenji Kubo.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.